Færsluflokkur: Bloggar

Valdhrokinn í kringum Flugvöllinn, umræðan er algjörlega galin.

Maður er eiginlega kjaft stopp gagnvart þeim valdhroka sem kemur fram í umræðunni um Flugvöllinn og byggingu nýs flugvallar. Það er ekki bara lítilsvirðingin gagnvart landsbyggðinni heldur er hér um skattpeninga Borgarbúa og landsins alls að ræða. Og að ætla að fara að fækka brautum og fíflast með rándýran ljósabúnað í þeim eina tilgangi að þyrla upp moldviðri í kringum útivistarsvæði á bara ekki að vera inní myndinni að mínum dómi. 

Eftir alla þá umræðu sem búin er að fara fram um þann valdhroka sem varð til þess að við misstum að mestu tekjurnar af fiskveiðunum og síðan olli hruninu skilur maður hreint ekki hvað vakir fyrir þeim sem fara gegn vilja bæði bæjarbúa og landsbyggðafólks?

Á flugvellinum er sennilega ein mesta veðursæld í nágreni eða í Reykjavík sem gerir flugið öruggar en annars staðar. Frábær staðsetning í nálægt miðborgarinnar og stjórnsýslunnar svo ekki sé talað um þægindin fyrir ferðamenn að geta jafnvel labbað eða hjólað niður á flugvöll ef því er að skipta.

Nóg annað er við skattpeningana okkar að gera en að leika sér að því að farga flugvöllum og byggja nýja og ef þessu fólki finnst að við séum of vel sett fjárhagslega er hægt að lækka gjöldin á íbúana. Það myndi fá betri hljómgrunn en þessi skrattagangur með flugvöll allra landsmanna. 


mbl.is SAF mótmæla flutningi flugvallar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að sjálfsögðu verður Flugvöllurinn áfram í Vatnsmýrinn og samgöngur skipulagðar í kringum hann þar

Hvaða æðibunugangur er þetta með Innanlands flugvöllinn. Er hann ekki bara fínn þar sem hann er? Kostar lítið og minna en ef fara ætti í annan flugvöll. Hann er miðsvæðis án þess að skapa hættu. Og það er viss þjónusta og umhyggja okkar Reykvíkinga að hafa völlinn nálægt miðborginni svo landsbyggðarmenn geti stokkið uppí ódýran taxa inní miðborgina eða til næstu hótela. 

Það er eins og pólitíkusar og borgarstarfsmenn haldi að það séu til nógir peningar? Ef það er of mikið af peningum hjá borginni þá á að lækka skattana sem því nemur. Ekki ausa þeim í einhverjar hugrenningar.

En mér sýnist borgin hafa nóg af mikilvægum verkefnum til að taka á svo ekki sé verið að eyða orku í að byggja nýjan flugvöll. 


mbl.is Verði farinn eftir tíu ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég er sammála Vigdísi og styð hana í að finna alla dólga sem stunda EINELTI hvaða nöfnum sem það nefnist

Ég styð Vigdísi Hauksdóttur og bið hana afsökunar að hafa sýnt henni tillitleysi þegar hún stakk hausnum í steinninn. Það var óþarfa aula háttur af minni hálfu að henda af þessu gaman og er ég maður af minni.

Nú stend ég með Vigdísi og bið fólk að flykkja sér að baki henni því nú ætlum við að koma upp um eineltinga og koma lögum yfir þá sem læðast undir huliðskufli og hrekkja menn. 

Ljótur siður hefur tíðkast í innsta kjarna LÍÚ og það er að leggja menn í einelti sem tjá skoðanir sínar á kvótakerfinu og siðleysinu sem í kringum það tíðkast. Sama og með eineltið sem Vigdís lýsir hér tekur það engan enda og á sér engin landfræðileg takmörk.

Eins og ráðist er á Vigdísi í Netheimum er ráðist á menn í atvinnulífinu farið í fyrirtæki þar sem þeir vinna og hótað viðskiptaþvingunum verði viðkomandi ekki rekinn. Farið er bakdyramegin inní verkefni sem viðkomandi kemur á legg og honum bolað út og skilin eftir með erfiðið og skuldirnar þegar fyrirtækinu er náð af honum.

Stanslaust haldið áfram að leggja steina í veg þessara manna í áratugi og viðist þessum aðilum innan LÍÚ ekkert heilagt þegar þeir ráðast á menn vegna skoðana þeirra.

Já Vigdís og ég ætlum að koma upp um þessa fanta og koma lögum yfir þá HA, DO, KR og ÞMB því þá þekkjum við nú þegar að tengjast þessu illræmda einelti og með því að taka þessa menn úr umferð er stigið stórt skref í að uppræta einelti á Íslandi. 

Kvótakerfið og eineltið er löngu komin yfir vitleysingastigið. 

STÖNDUM ÖLL AÐ BAKI VIGDÍSI - ÍSLAND HREINT LAND 


mbl.is „Komið yfir vitleysingastigið“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sáttanefndin og samsæri gömlu flokkanna

Sáttanefndin og tillögur kvótamanna í henni er stærsta árás gegn mannréttindum á Íslandi sem framin hefur verið. Falsið og lygin sem lá að baki þegar þetta fáránlega ferli var sett af stað og hugmyndin sem út úr starfinu kom boðaði þveröfuga stefnu á vilja kjósenda. Fast setningu hins illræmda kvótafyrirkomulags og EINOKUNINNI í kringum það. 

Lítil klíka með um það bil 25 til 30% þjóðarinnar að baki sér ætlar að stofna hérna hirð sem "eiga" mun nýtingarréttinn á fiskistofnum landsins og geta gert það sem þau vilja við þann rétt og haldið þar með hreðjataki á þjóðinni sem mun að mestu verða að lúta þeim í einu og öllu.

Komist núverðandi ríkisstjórn LÍÚ upp með að í lög setja þessa áratuga nýtingarsamninga eins og ætlunin er samkvæmt stjórnarsáttmálanum voru ekki bara þorskastríðin unnin fyrir gíg heldur hefur þjóðin tapað sjálfstæði sínu og er orðin nýlenda fámennis klíku sem með skipulögðum hætti hefur sölsað undir sig eign þjóðarinnar.

Ég vona að kjósendur fari nú að skilja að afnám kvótakerfisins er stærsta hagsmunamál okkar. Hér verður enginn hagvöxtur heimilanna fyrr en einokun um sjávarútvegin verður afnumin og sett fiskveiðistjórnun sem tryggir hámörkun afraksturs fiskstofnanna og frjálst flæði arðsins af fiskveiðum og vinnslu fer eðlilega hringrás um þjóðfélagið.

Vonandi erum við nógu meðvituð um hættuna sem fellst í því að þjóðin afsali sér nýtingarréttinum til að stoppa með öllum ráðum þessar fyrirætlanir LÍÚ og kvislinga þeirra á þingi. 


AFNÁM KVÓTANKERFISINS, AUKINN AFLI OG GREITT FLÆÐI FJÁR UM ALLT LANDIÐ

Haldið er áfram að fara í kringum stærsta vandamál íslensk atvinnulífs þótt EINOKUN Á KVÓTANUM SÉ AÐ KEYRA ÞJÓÐINA Í KAF. 

Við höfum séð kreppur áður en aldrei hefur þjóðin ekki átt möguleika á að ná sér upp á innan við 4 árum eins og núna sem kemur til af því að við búum við MÚRA EINOKUNNUNAR UM SJÁVARAUÐLINDINA.

Skaðinn af annars vegar EINOKUN og hins vegar KVÓTAKERFI er tví þætt.

Kvótakerfið kemur í veg fyrir að við höfum og getum í framtíðinni HÁMARKAÐ AFRAKSTUR af greininni. Aldrei hefur verið hægt með árs fyrirvara að segja til um fiskgengd og allra síst með árs fyrirvara. Þetta hefur verið að birtast okkur með skýrum hætti undan farið (síldin í Kolgrafarfirði, mikil ýsugengd þegar kvóti af minnkaður á ýsunni og þorskur að fljóta á land). Síðustu 20 ár er þjóðin búin að verða af milljörðum í útflutnings tekjum á hverju ári og nú er komið í ljós það sem verra er að við höfum tapað markaðshlutdeild okkar. Þessi vandamál verða ekki leyst nema með afnámi kvótans.

EINOKUNIN og flæði fjár um æðar þjóðfélagsins. Við skiljum ekki neitt í neinu að þrátt fyrir óða gróða útgerðar varin bak við múra einokunar gengur ekki að rétta við laun fólksins, rétta við hag fyrirtækja og rétta við hag ríkissjóðs. Hvers vegna er þetta? Jú samþjöppun og skuldsetning aflaheimilda gerir það að verkum að gróðinn af góðri stöðu  á mörkuðum og lágu gengi krónunnar rennur beint inní bankanna til að borga upp fyrirfram greiddan arð til útgerðanna. Lánin sem ullu BÓLUNNI.

Bæði þessi vandamál er hægt að leysa fljótt og vel. Afnám kvótakerfisins og allur fiskur settur á markað myndi færa okkur stór aukinn afla í því árferði eins og búið er að vera núna og tekjur í greininni flæði óhindrað um hendur fólksins, fyrirtækja og ríkis með eðlilegum hætti. Allur fiskur á markað myndi færa þeim fiskinn sem kynnu að vinna og selja.  Laun myndu hækka innan frá í þjóðfélaginu. Þeir sem skapa og þjóna myndu hækka í launum fyrst og síðan með réttlátum hætti "upp" stigann. Enginn verðmæta sköpun eða þjónusta lægri laun. 


mbl.is Lækkun skulda næst ekki án hagvaxtar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Margur verður af "ódýrum" aurum api

Er ekki eitthvað að þegar menn valsa um með svo mikla peninga að þeir geti verið að splæsa á sig 2,8 milljón króna úri? 

Ef hér er maður sem stritað hefur allt sitt líf í álveri eða á sjó og sambærilegum störfum til að safna fyrir þessu kemur mér þetta ekki við en ef hér eru kvótapeningar eða afskriftarlán frá einum bankanna finnst mér að það eigi að upplýsa hvaðan svona út um gluggann peningar koma.  

Munum við ekki eftir fólki sem keypti flott einbýlishús á "góðum stað" reif þau til að byggja nýtt hús? Það voru kvótapeningar eða stolið fé. 


mbl.is Tekinn með 2,8 milljóna króna úr
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þegar hetjurnar tala eigum við hin að hlusta.

Guðmundur Kjærnested var fremstur meðal jafningja í gegnum þorskastríðin. Hann var í því hlutverki að þurfa að leggja líf og limi í hættu í stríði við ofurefli til að tryggja rétt okkar yfir auðlindunum. Rétt sem nú er búið að tapa í stríðinu við græðgina. Þetta skrifar Guðmundur. Vonandi lesa formennirnir þetta áður en þeir taka ákvörðun um framhald endaleysunnar.

Ég hélt satt að segja að með því að berjast fyrir því að fá yfirráð yfir okkar fiskveiðilögsögu væri vandinn leystur. En það er nú eitthvað annað, mér sýnist vandinn hafa aukist", segir Guðmundur Kjærnested, fyrrum skipherra hjá Landhelgisgæslunni. „Ég segi fyrir mig, að ég hefði ekki staðið í þessari baráttu öll þessi ár ef ég hefði getað ímyndað mér að staðan yrði svona nokkrum árum síðar", segir Guðmundur og vísar til þess að hann sé síður en svo sáttur við núgildandi fiskveiðistjórnunarkerfi.

Hann telur að kerfið hafi orðið til þess að aflaheimildirnar hafi færst á hendur nokkurra útgerða og litlu sjávarplássin standi eftir meira og minna kvótalaus. „Mér sýnist að það hljóti að vera eitthvað mikið að. Aflaheimildirnar hafa verið að minnka undanfarin ár. Með fullri virðingu fyrir fiskifræðingunum okkar, sem ég átti ágætt samstarf við í mörg ár, þá eru þeir ennþá að notast við bók Bjarna Sæmundssonar, sem var eini fiskifræðingur landsins þegar hann skrifaði bókina, og hafa sáralitlu við hana bætt", segir Guðmundur.

„Ein af meginástæðunum fyrir því að við Íslendingar færðum landhelgina út í 200 mílur var að menn vildu forðast svokallaða ryksugutogara á miðunum, sem fóru á milli hafsvæða og þurrkuðu upp heilu fiskigöngurnar", segir Guðmundur. „Við vildum sem sagt losna við þessa togara, en ég spyr: Hvað erum við að gera í dag? Eru ekki allir að kaupa frystitogara eða verksmiðjutogara og hætta að koma með aflann til vinnslu í landi? Á þessum skipum er umtalsverðu magni af afskurði og slógi hent fyrir borð. Það ég best veit eru verksmiðjutogarar ekki leyfðir innan 200 mílna við Bandaríkin og það sama hygg ég að sé uppi á teningnum hjá Færeyingum.


mbl.is Fóru saman út úr bænum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvalveiðar að sjálfsögðu. Nýta á auðlindir þjóðarinnar af skynsemi og ekki að láta aðrar þjóðir segja okkur fyrir verkum í því.

Gott að þjóðin fái aukna útflutningstekjur og haldi mörkuðum sínum gangandi. Erfiðara að finna markaði en að halda þeim. Vona að veiðarnar gangi vel og þjóðin njóti afraksturs baráttu Kristjáns fyrir þessum rétti þjóðarinnar að hafa stjórn á eigin málum.
mbl.is Hvalveiðar hefjast að nýju
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Minnir sterklega á það sem fram fór gegn Formanninum Kortér i kosningar?

Ég get ekki varist þeirri hugsun að þetta ógeðfellda athæfi sem á sér stað í kringum Sigmund Davíð og virðist gagn gert beinast að því að eyðileggja stjórnarsamvinnu kost með Sjálfstæðisflokki.

Staða Bjarna Benediktssonar  yrðið greinilega sterkari í Flokknum ef hann yrði ráðherra í sterkri stjórn hvort sem hann stýrir henni sjálfur eða ekki.

Hverjir eru það sem hafa gefið skít í þjóðarheill ef þeirra óskir eru annars vegar síðastliðin 20 ár? Eimreiðin vill greinilega öllu ráða og þætti mér ekki undarlegt að þeir séu þarna bak við tjöldin nú sem endranær.

Vonandi nær Formaðurinn nógu sterkri stöðu til að geta sópað Framsóknarflórinn og þar með Eimreiðinni út úr Valhöll. 


mbl.is Fordæma árásir á Sigmund Davíð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Krossgötur Stjórnmálaskörungs eða loddar? SDG á völina.

Sigmundur Davíð á völina að verða stjórnmálaskörungur og leiðtogi eða detta í gamla Framsóknarfarið. Davíð Oddsson hafði svipað tækifæri einu sinni og valdi Framsóknarfarið þar sem hann dró allan flokkinn með sér í spillingu og eiginhagsmuna pot og spillingar vörslu. Vonandi hefur Sigmundur Davíð meiri virðingu fyrir sjálfum sér og kjósendum sínum.
mbl.is Ræðir við Bjarna aftur í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband