Færsluflokkur: Bloggar
13.6.2013 | 10:26
Ráðaleysi nýrrar Ríkisstjórnar sem er föst í klafa hagsmunagæslu
Hvenær skyldum við eignast ríkistjórn skipaðri fólki sem kanna að sjá lausnir þegar vandi steðjar að. Nú þegar menn væla um 27 milljarða gat í fjárlögum er það fyrsta sem menn sjá eru tannviðgerðir barna?
Aukum tekjurnar og sláum tvær flugur í einu höggi eða reyndar þrjár.
50 þús tonna aukning á þorski, 40 þús tonna aukning á ufsa og 20 þús tonna aukning á karfa verði seldar hæstbjóðendum á árinu. Einungis þeir sem ekki eru í áskrift á aflaheimildum fá að bjóða í og mega eiga sem nemur einu fullfermi af aflaheimildum í hverri tegund.
Ávinningur:
Brotist út úr kvóta hugsuninni og opnar fyrir nauðsynlega nýliðun í greininni.
Fjárlaga gatinu bjargað.
Tönnum barna bjargað (og tekjum tannlækna).
Stórauknar gjaldeyristekjur.
Ráðist í að endurheimta markaðshlutdeild sem útgerðin er búin að glutra niður.
Stóraukið flæði fjár um þjóðfélagið sem mun virka sem drif fjöður á almennt athafnalíf í landinu og skaffa auknar tekjur fyrir ríkissjóð.
Lesandi góður ekki hugsa "þetta er ekki hægt" if there is a will there is a way. Þarf ekki annað en að setja þetta í framkvæmd og byrja. Blásum á stanslausa neikvæðni LÍÚ og setjum þá á hliðarlínuna þar sem þeir eiga heima með sinn afturhalds áróður og undirförult plott.
![]() |
Sérstaka veiðigjaldið lækkað í nýju frumvarpi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.6.2013 | 10:45
LÍÚ lyginni er troðið allstaðar og láta Hag-Álfar-LÍÚ í Háskóla Íslands sitt ekki eftir liggja
Var að horfa á ágætis þátt í sjónvarpinu þar sem fjallað var um sögu útgerðar í gegnum aldirnar. Þarna kom vel fram hvernig sveitavargurinn hafði beitt einokun í samstarfi við Danakonung til að koma í veg fyrir að hver sem er færi að stunda veiðar hérna á Íslandsmiðum.
Á dauða mínum átti ég von þegar birtast ekki á skjánum Hagálfar LÍÚ með æðsta álf í broddi fylkingar. Og ekki þurfti að bíða lengi eftir að lyga áróðurinn sem þeir hafa stundað fyrir útgerðina léti kræla á sér.
1983 var svo þrengt að útgerðinni að grípa varð til örþrifa ráða svo hér færi ekki allt í kalda kol? Hvaða lyga uppspuni er þetta? Staðreyndin er að eina sem menn höfðu áhyggjur af árið 1983 var að ekki var hægt að auka við sóknardaga eins og hugur manna hafði staðið til.
Af hverju var það? Jú Kjartan Jóhannsson sjávarútvegsráðherra hafði stoppað innflutning á togurum í ca 85 skipum og virtist það vera nóg til að sækja á þau mið sem þá voru í vinnslu. En þá skeði slysið þegar Steingrímur Hermannsson "lét plata sig" til að gefa út leyfi fyrir 45 skipum! Steingrímur viðurkenndi að þetta voru mistök.
Þrátt fyrir þennan fjölda af skipum voru öll helstu skipin um 70 skip sem vel voru mönnuð að gera það mjög gott sem sýnir sig að þrátt fyrir 60 stoppdaga á ári voru skipin að skila 3500 til 5500 tonnum af fiski og var góður rekstur á þessum skipum sem voru ný skip innan við 10 ára gömul.
Kvótakerfið er til komið af því að nokkrir frystihús eigendur Sambandsfrystihúsa fyrir Norðan gátu ekki sætt sig við að sitja við sama borð og aðrir og fóru á fund spilltasta stjórnmálamanns Ísland og fengu hann til að troða í gegnum þingið lögum um kvótakerfi til reynslu. Þetta hefur sýnt sig að vera versti og skaðvænlegasti glæpur gegn þessari þjóð sem endaði með hruni og nú að verða þess valdandi að með svikum er verið að reyna að láta þjóðina afsala sér "nýtingaréttinum" á auðlidinni.
Hag-Álfarnir eru verkfæri í höndum þeirra manna sem standa að þessum svikum við þjóðina. HÍ setur niður að leyfa þeim að leika lausum hala eins og þeim sé "borgað fyrir það" og ætti að taka fyrir svona áróðursbragð sem er beytt gegn hagsmunum meirihluta landsmanna.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.6.2013 | 13:05
"Að kjósa sér hlutskipti". Skoðana ofbeldi Eimreiðarinnar útskýrt af Birni Bjarnasyni.
Björn Bjarnason fyrrverandi dómsmálaráðherra lýsir skoðun sinni á uppljóstrurum sem vara við afleiðingum vondrar stjórnsýslu. Um Edward Snowden segir hann að "hann kaus sér sjálfur hlutskipti og býr við það".
Hér opnast enn einn glugginn inn í skoðana heim EIMREIÐARINNAR illræmdu sem tróðst til valda í Sjálfstæðisflokknum með þessum hætti "þeir sem ekki eru sammála okkur verða eyðilagðir". Ef ekki er annað þá hætta þeir að borða "Gunnar á brauð".
Undirritaður benti á hættuna af kvótaveðunum (orskavaldur hrunsins) í blaðagrein 1995 og varð þar með að sætta mig við hlutskipti mitt. Að vera rekinn af skipi mínu ásamt allri áhöfn og síðan að vera hótað brottrekstri úr góðri vinnu ef ég hefði uppi skoðanir á kvótakerfinu á opinberum vettvangi eða tæki þátt í stjórmála starfi.
Ég hef nú verið hundeltur af þessu fólki í 16 ár og þurft að þola afkomu ofbeldi af verstu gerð af því ég kaus mér það hlutskipti.
Eigum við ekki að fara að losa okkur við áhrif þessara manna á þjóðfélagið? Eigum við ekki að fara stoppa óða grægina sem stjórnar yfirgangi útgeðarinnar? Hvernig þjóðfélag viljum við eiginlega?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
11.6.2013 | 00:25
Þetta sagði þjóðhetja Íslendinga Guðmundur Kjærnesteð
Nú þegar ríkisstjórn LÍÚ hótar að gefa útgerðinni nýtingaréttinn á miðunum að þjóðinni forspurðri er vert að lesa hvað hetjurnar sem lögðu líf og limi áhafna sinna undir í baráttu við ofureflið til að tryggja okkur yfirráð yfir auðlindunum í þorskastríðunum sögðu.

http://nilli.blog.is/blog/nilli/entry/943312/
Ég hélt satt að segja að með því að berjast fyrir því að fá yfirráð yfir okkar fiskveiðilögsögu væri vandinn leystur. En það er nú eitthvað annað, mér sýnist vandinn hafa aukist, segir Guðmundur Kjærnested, fyrrum skipherra hjá Landhelgisgæslunni, í samtali í nýútkomnum Ægi, tímariti um sjávarútvegsmál.
Ég segi fyrir mig, að ég hefði ekki staðið í þessari baráttu öll þessi ár ef ég hefði getað ímyndað mér að staðan yrði svona nokkrum árum síðar, segir Guðmundur og vísar til þess að hann sé síður en svo sáttur við núgildandi fiskveiðistjórnunarkerfi. Hann telur að kerfið hafi orðið til þess að aflaheimildirnar hafi færst á hendur nokkurra útgerða og litlu sjávarplássin standi eftir meira og minna kvótalaus.
Mér sýnist að það hljóti að vera eitthvað mikið að. Aflaheimildirnar hafa verið að minnka undanfarin ár, þótt nú berist fréttir af einhverjum bata. Með fullri virðingu fyrir fiskifræðingunum okkar, sem ég átti ágætt samstarf við í mörg ár, þá eru þeir ennþá að notast við bók Bjarna Sæmundssonar, sem var eini fiskifræðingur landsins þegar hann skrifaði bókina, og hafa sáralitlu við hana bætt, segir Guðmundur.
Ein af meginástæðunum fyrir því að við Íslendingar færðum landhelgina út í 200 mílur var að menn vildu forðast svokallaða ryksugutogara á miðunum, sem fóru á milli hafsvæða og þurrkuðu upp heilu fiskigöngurnar, segir Guðmundur einnig í viðtalinu. Við vildum sem sagt losna við þessa togara, en ég spyr: Hvað erum við að gera í dag? Eru ekki allir að kaupa frystitogara eða verksmiðjutogara og hætta að koma með aflann til vinnslu í landi? Á þessum skipum er umtalsverðu magni af afskurði og slógi hent fyrir borð. Það ég best veit eru verksmiðjutogarar ekki leyfðir innan 200 mílna við Bandaríkin og það sama hygg ég að sé uppi á teningnum hjá Færeyingum. Og Færeyingar banna líka stærri togara innan 50 mílnanna, þar er hins vegar smábátaflotinn.
![]() |
Boðar sátt um kjör og umhverfismál |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þjóðin verður að skilja að framsal "NÝTINGARÉTTARINS" til útgerðarinnar jafngildir framsali "FULLVELDISINS" og þar með ákvörðunar rétti komandi kynslóða um nýtingu auðlindarinnar.
"Spyrjið ykkur". Er betra að afhenda, fámennis klíku sem búin er í yfir 20 ár að berja niður alla umræðu og skoðanaskipti um stórgallað kvótakerfi með ofbeldi, auðlindina, en að til dæmis að vera í samstarfi við ESB um nýtingu miðanna þar sem við sitjum þó jöfn við sama borð og aðrar þjóðir.
Menn tala um að leggja niður EINOKUN OG HÖFT? Hvað er kvótakerfið íslenska annað en EINOKUN OG HÖFT? (HHG)
Þessari spillingu, svikum og prettum í kringum fiskveiðarnar verður að linna. Þetta hefur ekkert að gera með fjárfestingar í sjávarútvegi eða að rétta við atvinnulífið. Kvótakerfið er búið að stórskaða útfulning okkar eins og sést núna greinilega á tapaðri MARKAÐSHLUTDEILD og við sáum með hruninu sem er bein afleiðing af kvótaveðunum.
VAKNI ÞJÓÐ OG TÖKUM STJÓRNA VEIÐANNA Í EINGIN HENDUR GÖMLU FLOKKARNIR ERU ÓHÆFIR VEGNA SPILLINGAR. SIÐSPILLINGAR.
![]() |
Ísland verði í fararbroddi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.6.2013 | 07:56
Kannski NETFRELSI en ekki MÁLFRELSI
Aumingja maðurinn heldur að Ísland sé himnaríki á jörðu. Hefur hann ekki heyrt um Þorstein Má og félaga hans innan LÍÚ sem komist hafa upp með afkomu ofbeldi í skjóli íslenskra stjórnvald í 20 ár?
Afkomu ofbeldi til að þagga niður mestu spillingu og rán sem farið hefur fram á Íslandi þar sem eign þjóðarinnar, fiskurinn í sjónum, er notaður sem eign fé útgerðanna í viðskiptum við bankanna.
Íslensk stjórnvöld eru orðin sér til skammar að láta glæpaklíkur komast upp með að beita þegna landsins einstaklinga og fjölskyldur afkomu ofbeldi og enginn innan kerfisins þorir að taka á þessum málum.
![]() |
Uppljóstrari stígur fram |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Lítið fer fyrir umfjöllunum um hinn mikla skaða sem Kvótakerfið og EINOKUN á aflaheimildum hefur valdið á fiskmörkuðum okkar Íslendinga.
Nú þegar Norðmenn og Rússar hafa snúið við blaðinu í fiskveiðistjórninni og eru farir að veiða sinn fisk sitjum við íslendingar eftir með 5.ta stórafla árið án þess að veiða. Við horfum á Norðmenn hagnast um milljarða á auknum útflutningi inná svelta þorskmarkaði á meðan við látum fiskinn synda hjá og úrelt frystiskip framleiða fisk sem allir eru að skaffa og hrapar nú í verði og í raun lítill markaður fyrir.
Eftir fall ráðstjórnarríkjanna varð öllum endanlega ljóst að EINOKUN og HÖFT eru verstu tæki til hagstjórnar í atvinnulífinu (HHG) og standa í vegi framþróunar allstaðar sem þeim hefur verið beitt eins og við sjáum nú besta á Íslandsmiðum og í íslenskri fiskvinnslu.
Íslendingar verða að átta sig á því að "við verðum að afnema hér kvótakerfið og EINOKUN fárra" á auðlindum þjóðarinnar. Innleiða verður hér frelsi einstaklingsins og kraft markaðarins til að rétta við hlut okkar á fiskmörkuðum heimsins. Ekkert er því til fyrirstöðu að afnema kvótakerfið á morgun og breyta yfir í sóknarmark með allan fisk á markað. (Allirsem mæla gegn því fara með lygi og bull.) Stór auka þar með fiskmagn veitt og flæði fjármangs um sveltar æðar þjóðfélagins.
( Afhverju er þetta ekki stefna Sjálfstæðisflokksins? Getur einhver sagt mér það? )
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.6.2013 | 09:22
Lausn á borðinu í sjávarútvegi. EINOKUNINA BURT.
EINOKUN í sjávarútvegi er ekki bara mesta skömm íslensk atvinnulífs heldur hefur kvótastýring á veiðunum stór skaðað þjóðar hag. Í fyrstalagi getur kvótastýring aldrei hámarkað afrakstur greinarinnar eins og hefur greinilega sýnt sig síðustu 5 ár*og síðan hefur takmörkun á aflaheimildum í þeim tilgangi að halda uppi kvótaverði stórskaða markaðshlutdeild okkar sem er nánasta að hrynja þegar Norðmenn og Rússar hafa með réttu ákveðið að stór auka sínar veiðar.
Ríkisstjórnin hefur nú ákveðið sumarþing til að létta af auðlindagjaldinu sem stórskuldug útgerðin segist kikna undan. Útgerð sem vinnur í skjóli EINOKUNAR (hafta) kiknar á endanum og höftin verða þeim nauðsynlega og fólkið í forystu greinarinnar verður hrætt við allt annað fyrirkomulag og sér dauðann framunda verði EINOKUNIN ekki tryggð um alla framtíð.
Því lengur sem þetta ófremdar ástand varir því verra fyrir eiganda auðlindarinnar þjóðina og sérstaklega alvöru sjómenn. En nú er lag að brjótast út úr þessum viðjum EINOKUNARINNAR. Nú þegar Hafró LOKSINS viðurkennir að stórauka má afla úr ekki bara þorski heldur einnig karfa og ufsa er lag að sleppa LÍÚ mönnum gersamlega við þennan afla sem eingöngu mun auka á þjáningar þeirra. Betra að úthluta þessum alfa í formi sóknarmarks (Matta Bjarna) til nýrra kvótalausra útgerða og nýrra útgerða sem fengju að veiða aukninguna á sóknarmarki með skilyrði að landa öllum fiski á markað. Á markaði yrði tekið gjald í auðlindasjóð 2,5% af fyrsta flokks fiski, 5% öðrum flokki og 15 % af þriðja flokks fiski. Eins rynni 25% af sölu á undirmálsfiski í auðlinda sjóð.
Komið yrði í veg fyrir að nokkur tengsl væru milli núverandi kvótahafa (nema þeir leggi inn kvóta sína í þetta nýja fyrirkomulag) og þessara útgerða sem tækju þátt í sóknarmarkinu.
Með þessu yrði komið á réttlæti og opnaðar dyr fyrir nauðsynlega nýliðun" í sjávarútvegi um leið og "frjálsar" fiskvinnslur fengju stöðugt framboð af fiski til að geta notað í að tryggja sér markaði og sóknarfæri á erlendum mörkuðum.
Ef reynsla af þessu fyrirkomulagi verður góð (sem ekki þarf að efa) þá yrði eftir 3 ár byrjað að höggva af kvóta úthlutunum og sá afli færður yfir í frjálsa sóknarmarkið og um leið gætu gömlu kvótaútgerðirnar sem telja sig betur settar í sóknarmarkinu lagt sinn kvóta rétt inní sóknarmarkskerfið og komið aftur í alvöru útgerð.
PS ég er að tala um að hér yrði stefnt að 50 þus tonna aukningu í þorksi 20 karfa og ufsa og ýsu eftir þörfum.
* þjóðin hefur tapað milljörðum á afturhaldi á aflaheimildum
Bloggar | Breytt 10.6.2013 kl. 21:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Stor eksport-økning for torsk Det gjelder eksport av både fersk- og fryst torsk. Nesten dobling i eksport av fersk torsk. Foto: Bjørn Tore Forberg Tekst: Standard tekst Standard tekst Standard tekst Powered by Translate Det melder Norges Sjømatråd. Eksporten av fersk torsk fra fiskeri, inkludert filet, økte med 49 millioner kroner i mai til en total eksportverdi på 101 millioner kroner. I mai økte eksporten av fryst torsk, inkludert filet, med 55 millioner kroner til totalt 160 millioner kroner.
Að mér er lagt að nota ekki orðið FÍFL á blogginu. En til hvers var orðið fífl til? Varð það ekki til til að lýsa fólki eins og sat í síðustu ríkisstjórn sem sat undir hvatningarorðum frá kjósendum að standa við stóru orðin og afnema kvótann. Hlusta rökstuðning leikna og lærðra sem hvöttu óspart til að hætta að hlusta á ráðgjöf LÍÚ (Hafró) og auka fiskveiðar sértaklega á þorski.
Hugsið ykkur skaðann sem orðið hefur á síðustu 4 árum á að kvótakerfið var ekki afnumið og aukið við þorskveiðarnar, karfann, síldina svo ekki sé talað um ufsann? Við höfum tapað milljörðum bara á síðustu 4 árum og nú er Noregur búinn að hasla sér völl og erfitt verður að endurheimta markaðshlutdeildina sem við höfðum fyrir fáránleika kvótakerfisins.
Afnám kvótakerfisins er stærsta hagsmunamál íslensku þjóðarinnar og því miður standa allir gömlu flokkarnir á móti þjóðinni í að afnema þessa þjóðarsvívirðu og græðgi. Við þjóðin verðum að afnema kvótann og EINOKUNINA sem viðhaldið er um fiskimiðin annars sökkvum við dýpra í fátækt og þrældóm.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.6.2013 | 13:03
SF fólk í algerri villu. Neitar staðreyndum
Hvernig getur formaðurinn sem fór beint gegn Stjórnarskránni þegar fyrir lá stuðnings yfirlýsing 32 þingmanna við frumvarpið og kastaði því í tætarann.
Hvernig gat flokkur sem lofaði og setti í stjórnarsáttmála fyrningu kvótans stutt frumvarp um 20 ára (eilífðar ) nýtingarétt til kvótahirðarinnar?
Menn eru bara vaðandi í villu og neyta að horfast í augu við staðreyndir. Vona að þessi flokksómynd sem hundsaði sín eigin stefnumál og hag fólksins hverfi af sjónarsviðinu. Lyga flokkar eiga ekki erindi lengur inní íslenska pólitík vonandi höfum við öll lært það núna.
Berja sér á brjóst að hafa gert eitthvað en ekkert sem nýst hefur kjósendum í betri kjörum þrátt fyrir að hafa mörg tækifæri til eins og í lánafærslunum úr gömlu bönkunum.
![]() |
Áttuðum okkur ekki á skuldavanda |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)