GRÆÐGIN er að eyðileggja frelsið og lýðræðið.

Nú þegar landsfundur Sjálfstæðisflokksins stendur sem hæst er illt að finna fnykinn úr haughúsi framsóknar umlykja Valhöll. Hvað þarf að koma til til að Sjálfstæðismenn skilji að pólitík á að snúast um einstaklinginn? Snúast um að skapa frelsi og svigrúm fyrir kynslóð eftir kynslóð fólks með nýjar hugmyndir og kraft til að útvíkka sjóndeildarhringinn og auka afköstin.

Sjálfstæðisflokkurinn á ekki að standa fyrir einokun í atvinnulífinu og setja veggi til að vernda úrkynjaða valdastétt heldur ryðja  og opna veginn fyrir unga athafnamenn sem vilja og kunna og eru reiðubúnir að hleypa nýju blóði í staðnaðar atvinnugreinar sem lifa í skjóli einokunar.

Pólitík á að snúast um einstaklinginn og skapa honum svigrúm til athafna. Fólk á að hafa frelsi til að mennta sig og tjá sig en ekki eiga á hættu að vera barið niður með ofbeldi fyrir skoðanir sínar og hæfni. Sjálfstæðimenn þurfa að skilja að tími Davíð-ismans er liðinn. Kjörnir fulltrúar flokksins eru fulltrúar einstaklinga sem treysta þeim til að fara með hagsmuna mál þeirra á þjóðþinginu. Þú þjónar ekki tveim herrum. Hagsmunapot er ekki stæll Sjálfstæðismanna heldur skal hafa í heiðri frelsi einstaklingsins og vernda hann og styrkja til hagsbóta fyrir þjóðfélagið.

Því miður hefur ofbledi og skoðana kúgun náð tökum á íslensku mannlífi. Það er hlutverk allra flokka og sérstaklega Sjálfstæðisflokksins að koma í veg fyrir þessa þróun því þetta er til skammar íslensku þjóðfélagi og skýrt er tekið á í alþjóðamannréttindalögum að ríkinu ber að vernda einstaklingana geng slíkum aðförum að hvers kyns tagi.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband