SÁR VONBRIGÐI. Hvað fær nútíma stjórnmálaforingja til að lofa spilltan leiðtoga sem sveik flokksbræður og þjóðina alla.

Með veika von á brjósti beið maður Landsfundar Sjálfstæðisflokksins. En eftir ræðu formanns þarf ekki að vona og bíða. Lofræða um spilltasta og svikulasta stjórnmálamann allra tíma Davíð Oddsson er löðrungur í andlit flokksmanna og kjósendur alla.

Ég vona að allir sem ætlað hafa sér að kjósa þennan gæfu snauða flokk skilji að  ætlunin er að nota trúgirni ykkar einu sinni enn til að flykkja þessum flokk í lykil stöðu á Alþingi. En Íslands vegna má það aldrei ske að fólk sem ætlar sér að framhalda viðbjóslegri stefnu fyrrverandi formanns komist til valda. Eyðileggingin er nóg fyrir. Fjölda gjaldþrot fjölskyldna í kjölfar fjárdráttar úr bönkum í skjóli Sjálfstæðisflokksins ætti að vera nóg til að snúa alfarið baki við þessu fólki sem enn skríður fyrir TRÚÐNUM. 

Enn í dag beitir fyrrverandi formaður, sem nú situr óverðugur í ritsjórastól, skoðana kúgun og notast við landsfrægan fant til að þagga niður skoðanir sem segja sannleikann um einkavinina. 

Kæru hægri menn spyrjið sjálf ykkur: Hvernig getur Sjálfstæðisflokkurinn af öllum flokkum staðið fyrir EINOKUN í helstu atvinnugreinum þjóðarinnar??? Hvar er "FRELSI EINSTAKLINGSINS TIL ATHAFNA"? og "STÉTT MEÐ STÉTT?" Nei því miður Sjálfstæðisflokkurinn er handónýtur flokkur með forystu sem svamlar enn vonlaus í haughúsi Framsóknar.

Vinsamlega takið eftir ég nefnidi hvorki græðgi, kvótapúka, hyski eða útgerð. BANNAÐ


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

Hvað nú.Er kanski bannað að minnast á Kvótapúkann.Hann fer nú um Evrópu og Afríku í áróðri sínum fyrir ESB. Er Kvótapúkinn ekki á landsfundinum.Hefurðu ekki séð hann.Er hann kanski orðinn heilagur andi í þínum augum.

Sigurgeir Jónsson, 19.11.2011 kl. 09:40

2 Smámynd: Ólafur Örn Jónsson

Sæll og blessaður Sigurgeir gaman að sjá þig. Gott að þú fylgist með.

Ólafur Örn Jónsson, 19.11.2011 kl. 10:18

3 Smámynd: Guðmundur Kristinn Þórðarson

Kvótanum var ekki komið á í tíma Davíðs á alþingi Íslendinga,framsal fiskveiðiheimilda var komið á af ráðuneytis Steingríms Hermannssonar árið 1990.Reyndu nú að láta laga þessi Davíðs heilkenni

Guðmundur Kristinn Þórðarson, 19.11.2011 kl. 11:34

4 Smámynd: Ólafur Örn Jónsson

Sagan er kritaltær og skollaleikur felur ekki sannleikann. Sjáðu you-tube stjörnuna Hannes Hólmstein Guðmundur Kristinn "þarna var alltí einu fullt af pening".

Ef þú vilt lifa í þykjustu leik þá þú um það eins og ég sagði SANNLEIKURINN ER HANN ER KRISTAL TÆR OG AÐ HANN SÉ LJÓTUR LÆTUR HANN EKKI HVERFA. 

"Moka framsóknarflórinn" var slagorð Davíðs þegar hann komst á þing. En hann rann á rassgatið í Framsóknarfjósinu og ofaní flórinn og þar svamlaði Sjálfstæðisflokkurinn í 3 kjörtímabil í haughúsi Framsóknar.  Því miður sýnist mér forystan svamla þar ennþá. 

Það er kölluð siðblinda þegar menn þekkja ekki spillingu, ofbeldi og óheiðarleika. Sjálfstæðismönnum skortir hugrekki og kjark til að horfast í augu við staðreyndir. Er mönnum ógnað?

Ólafur Örn Jónsson, 19.11.2011 kl. 17:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband