Færsluflokkur: Viðskipti og fjármál

Snowden boðið hæli á Íslandi þegar i stað. Ísland á að vera vígi tjáningafrelsis.

Tek undir orð Jóns Magnússonar það er furðulegt að Bjarni Benediktsson og sjálfstæðismenn allir styðji ekki umsókn Snowden um íslenskan ríkisborgararétt. 

Ég held að fólk eigi að þrýsta á ríkisstjórnina um að gera Snowden þegar i stað kleift að koma hingað og gefum honum þau réttinda sem þarf til að verja hann gegn ofsóknum bandaríkjamanna.

Þótt útgerðin á Íslandi hafi komist upp með að beita menn harðræði heima og erlendis má það ekki eyðileggja ímynd Íslands út á við. Höfum ekkert að gera með að blaðra um frelsi í orði ef það er ekki á borði.


mbl.is Öfugsnúin barátta fyrir réttindum Snowden
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Megum skammast okkar að kalli Snowden sé ekki svarað "nema hann sé í landinu.

Spillingin og sukkið veður uppi hérna innan lands og er það vegna kjána í okkar röðum sem skilja ekki tilgang atkvæði síns. 

En hingað til höfum við haldið reisn okkar á erlendum vettvangi og getað hreykt okkur af að vera verndarar tjáningarfrelsis. Af hverju er þá ekki búið að bjóða Snowden velkominn til Íslands og send eftir honum rella. Það væri stórmannlegra en fólksflutningarnir á Króatískum fjölskyldum hér um daginn.

Maðurinn kom upp um ólöglegar hleranir og eftirlit með lífi og samskiptum einstaklinga í Bandaríkjunum og annars staðar. Ef menn sem sjá svona lagað eiga ekki að eiga viðreisnar von ef þeir upplýsa um svona athæfi hvað er þá átt við með tjáningarfrelsi??

Á kannski líka að taka upp sömu gildi og útgerðin á Íslandi styðst við þegar þeir þeytast um allan heim til að koma í veg fyrir að menn sem tjáð sig hafa upp viðbjóðinn sem átt hefur sér stað innan þeirra raða geti þrifist. Skrifar Þorsteinn Már Baldvinsson kannski reglur um hælis veitingar á Íslandi?  


mbl.is Viðbrögð við hælisumsókn misjöfn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bandaríkin haga sér eins gegn Snowden og LÍÚ gerir gegn þeim sem segja sannleikann um kvótakerfið

Hugsið ykkur yfirganginn við að ná sér niður á uppnjósnaranum Snowden þar sem löndum er hótað að þau verði beitt "þrýstingi" ef þau hýsa manninn sem sagði frá glæpsamlegir starfsemi Bandaríkjanna gegn þegnum ekki bara bandaríkjamanna heldur er að koma í ljós að hér erum miklu víðfeðmari njósnir að ræða. 

Þetta er nákvæmlega eins og ÞMB og félagar hans hafa hagað sér gegn þeim sem sagt hafa frá þeim tvísýnu athöfnum sem farið hafa fram í kringum kvótakerfið. Menn ég þar á meðal hafa verið hundeltir og þeir sem ráðið hafa mig í vinnu eða haft hafa viðskipti við mig beittir "þrýstingi".

Það sem meira er LÍÚ er nú að komast upp með að stofna "KLASA" um þessa ofbeldis starfssemi þar sem öll fyrirtæki sem vilja hafa viðskipti við þá sem í dag EINOKA fiskveiðar og vinnslu verða að gangast við að vera meðlimir í "SJÁVARKLASANUM" og ljá nafn sitt ógeðslegum lyga áróðri útgerðarinnar sem er að freista þess að stela nýtingaréttinum af þjóðinni.  


mbl.is Sótt um hæli í 21 landi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

EINOKUNIN í sjávarútvegi réttlætir hátt auðlindagjald. Fnykur úr forinni

Í hvert skipti sem sjávarútvegsmál koma upp í umræðunni verður þjóðinni ljósari spillingin og sorinn sem á sér stað í kringum greinina og EINOKUNINA sem stjórnmálamenn standa vörð um.

Nú þegar á að borga gjald fyrir að halda á EINOKUN á veiðiréttinum kemur í ljós að margar útgerðir eru hreinlega á hausnum. Ekki vegna auðlindagjalda heldur vegna þess að þær eru illa reknar og þurfa að vinna í arfavitlausu KVÓTA umhverfi. 

Það er að koma í ljós að verslun með kvóta er notuð til að svíkja fé út úr ríkinu sem tekur við ógreiddum lánum sem tekin voru til að borga "kvótaeigendum" ekki þjóðinni milljarða fyrir eign þjóðarinnar. Menn eru að labba úr greininni með troðna vasa af kvótagulli sem sem lendir í skuldum þjóðarinnar sem við og afkomendur okkar þurfa að borga. Öll þessi viðskipti gætu farið fram á vegum ríkisins ef hér væri eitthvað réttlæti en nei hér skríður stjórnmálastéttin fyrir kvótahirðinni og við þurfum að borga. Ég og þú. 

Tökum gott dæmi um Mónu á Hornafirði sem fékk af einhverjum óskiljanlegum ástæðum afskrifaðar 2,6 milljarða EFTIR HRUN til að eigendurnir gætu borgað sér hundruðir Milljóna í arðgreiðslur. 

Elsku besta þjóð þetta er GLÆPUR! Kvótakerfið er GLÆPUR Einokunin er GLÆPUR GEGN OKKUR SEM ÞJÓÐ. Við verðum að afnema þetta við en ekki stjórnmálamenn eins og Árni Páll Árnason sem opinberaði óheiðarleika sinn gagnvart kjósendum í skilmerkilegri ræðu í þinginu í gærkvöldi.


mbl.is Ræddu í allt kvöld um veiðigjöld
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

AFNÁM KVÓTAKERFISINS er lausnin á vanda heimilanna.

Milljarða afskriftir og risaskuldir útgerða sýna okkur hversu arfavitlaust og óhagkvæmt þjóðinni kvótakerfið er. Þessar afskriftir eru bara gjaldþrot og ekkert annað.

Þegar litið er til þess að við náum aldrei að hámarka afrakstur botnfiskstofnanna  og töpum þar milljörðum í óveiddum fiski og síðan þess að búið er að láta falla á þjóðina milljarða sem notaðir hafa verið til að "borga" fólk út úr greininni þá ætti þjóðin alvarlega að fara hugsa sinn gang varðandi áframhald kvótakerfisins? 

Við afnám kvótans sem hægt er að framkvæma með einu penna striki og tekur innan við viku. Lægi beint við að taka upp Sóknarmark Matta Bjarna með allan fisk á markað.

Þessi fiskveiðistjórn er slípuð að íslenskri fyrirmynd og ekkert til vandkvæða að taka upp þegar í stað. Með þessari aðferð myndi strax koma í ljós að fiskimiðin eru vannýtt eins og  bent hefur verið á og fólk séð í fréttum að fiskur jafnvel flýtur á land. 

Skipum myndi fjölga eitthvað og nýir aðilar taka við veiðum og koma inní vinnslu í gegnum markaðina. Þetta ásamt auknum alfa myndi stórauka flæði fjár um þjóðfélagið þannig að atvinnuleysi hyrfi og laun hækka. Fyrirtækin í verslun, þjónustu og framleiðslu myndu sjá aukna veltu og fjárhagur ríkissjóður styrkjast verulega. 

Af hverju gerum við þetta ekki? ?  ? Er það af því að hér er mafía sem stendur með skipulögðum hætti gegn því að við getum gert þetta?

Í kjölfar þorskastríðanna þegar við hófum stjórnun veiðanna stóð aldrei til að hér yrði komið á kvótahirð sem EINOKAÐI sjávar auðlindina. Af hverju er það þannig núna? ? ? Er  það af því að hér er mafía sem með skipulögðum hætti kemur í veg fyrir að þjóðin ráði sínum málum í þessu sem öðru? 


VAKNAÐI við að hér er skoðana kúgun á hæsta stigi.

Það er furðulegt hversu værum svefni þjóðin svaf í DRAUMALANDINU fyrir hrun þar sem allt of margar útgerðir komust upp með að læðast með veggjum og stunda fjárdrátt út á eignir þjóðarinnar. Núna er að koma í ljós að hér hefðu orðið fjölda gjaldþrot þrátt fyrir góðæri til gengis og markaða ef bankarnir hefðu ekki afskrifað kvóta lánin sem mynduðu FROÐUNA. Froðuna sem olli hruninu.

Hvernig gat þetta gerst að flokkur manna óð um bankana eins og þeir ættu þá og tæki sér fé eftir þörfum?Hvernig getur það gerst þrátt fyrir að við vitum að hér gengur eign þjóðarinnar kaupum og sölum og þjóðin verður að borga??? Við borgum afskriftirnar sem leggjast á skuldir ríkissins.

Þetta sögðu Hag-álfarnir okkur ekki? 

Jú ÞÖGGUN! Engum var eirt sem leyfði sér að fjalla um þessa spillingu og óðagræðgi sem átti sér stað. Vaðið var í menn og miðla sem voguðu sér að viðra skoðanir á ófremdar ástandinu, framsalinu, höftum á úthlutun kvóta, risalántökum svo ekki sér talað um brottkastið og framhjá vikt. 

Ofbeldis slóð eftir KR og ÞMB liggur í gegnum íslenskan sjávarútveg síðustu 20 ára og þjóðin kærir sig kollótta þótt þessir menn séu búnir að komast upp með að eyðileggja milljarða útflutnings verðmæti og stór skaða markaðshlutdeild þjóðirnar í þeim eina tilgangi að tryggja EINOKUN sína á kvótanum eign þjóðarinnar.

Þjóðin sjálf þarf að afnema kvótakerfið eins og það leggur sig. Hvernig í hinum vestræna heimi hafa hagsmuna samtök komist upp með annan eins yfirgang og brútal ofbeldi eins og einstaklingar hafa orðið fyrir sem vöruðu við óþverrahættinum í kringum kvótann.


Virðingin fyrir tjáningarfrelsinu á vera næg ástæða til að bjóða Snowden hæli.

Íslendingar eru að sjá og lifa ört vaxandi áhuga alheimsins á landinu og við eigum að gera allt sem við getum til að styrkja ímynd landsins. Jafnvel þótt hér komist klíka fárra upp með að brjóta á fólki og ný ríkisstjórn ætli sér að vaða gegn vilja meirihluta þjóðarinnar eigum við samt að ljúga því að hér sé tjáningarfrelsi í hávegum haft. 

Ef við höldum rétt á málum þá eigum við að geta haldið uppi túrisma hérna en við verðum að hafa okkur öll við til að svo verði slíkir easy money liggja ekki á lausu og margir eru um hituna.  

Nú er fegurðarsamkeppnin í brennideplinum en þar er sama uppá teningunum. Landkynning. Náttúrulega verður að vera vel að verki staðið. Það hefur sýnt sig í gegnum tíðina að það er hægt að gera þetta vel og svo miður en vonandi tekst vel til núna og við finnum eins og oft áður verðugan keppanda sem eykur hróður þjóðarinnar og vekur athygli. 


mbl.is Ono hvetur Íslendinga til að veita Snowden hæli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fiskveiðarnar lausar úr snöru ESB nú þarf bara að aflétta "einokun" LÍÚ

Fiskveiðarnar eru og verða traustasta og arðbærasta tekjulind þjóðarinnar um ókomin ár. Þessum gífurlegu verðmætum hefur þjóðin náð að halda í baráttunni við stórþjóðir sem ágirntust auðinn og völdin sem fólust í yfirráðum yfir stórri og auðugri fiskveiðilögsögu Íslendinga.

ESB vill nota fríverslunarsamninga til að ná völdum yfir lögsögunni og möguleika að ná yfirráðum yfir kvótunum eins og kemur fram í þessari grein. Þetta er ástæða þess að við megum ekki og getum ekki gegnið í ESB það er á hreinu.

En þá kemur að EINOKUN útgerðarinnar á fiskimiðunum og nýtingu þeirra?  ESB býður okkur allskonar fríðindi og jafnvel styrki eftir að þeir verða búnir að stela af okkur auðlindinni, hvað fáum við frá LÍÚ? 

Við Íslendingar verðum að skilja að það er ekkert eðlilegt við EINOKUN útgerðarinnar á fiskveiðum og vinnslu við landið. Þetta fyrirkomulag er búið að stór skaða útflutning okkar svo milljörðum skiptir og nú er komið í ljós að markaðshlutdeild okkar á mikilvægum mörkuðum sem unnust fyrir kvótakerfið er hrunin.

Afnám kvótakerfisins er langstærsta réttinda og hagsmunamál íslensku þjóðarinnar og mun ráða því hvort hér nást aftur sambærileg kjör fyrir þorra þjóðarinnar eða ekki.  Við háðum þorskastríð þar sem við hættum fólki og góðum samskiptum við nágrannaþjóðir til verja og halda í auðlindina. Ekki til að setja hér á fót KVÓTAHIRÐ sem EINOKAÐI AUÐINN heldur til að halda hér uppi sterku og sjálfbæru velferðakerfi þar sem allir sætu við sama borð. 


mbl.is Valdið hjá Evrópusambandinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Góðverk að létta af þeim okinu. AFNEMUM KVÓTANN og leyfum þeim að róa sem róa vilja.

Útgerðar elítan er að kikna undan heimtufrekju eiganda sjávarauðlindarinnar sem heimtar borgun fyrir afnotaréttinn. 


EIGNARHALDIÐ OG NÝTINGARÉTTURINN ER ÞAÐ SAMA. Hvorugu má þjóðin afsala sér

Lögfræðingar LÍÚ voru áður en sáttanefndin var kölluð saman búnir að benda á að fókusa ætti á NÝTINGARÉTTINN og blöffa lýðinn með að gefa þeim EIGNARHALD á auðlindinni. 

Við megum ekki vera svo heimsk að láta plata okkur svona eins og reyndar Samfylkingin gerði og lét draga sig á asna eyrunum í að fara að afsala sér NÝTINGARÉTTINUM á auðlindinni. Nú ætlar ríkisstjórn LÍÚ að nota sér svikaplott þeirra Steingríms og Björns Vals og afhenda útgerðinni NÝTINGARÉTTINN til eilífðar. Takið eftir ekki 20ára heldur til eilífðar hér er ekki verðið að tala um neitt annað.  

NÝTINGARÉTTURINN OG EIGNARHALDIÐ er nákvæmlega það sama og má ekki framselja til lengri tíma en eitt ár í senn. Útgerðin á ekki neina kröfu á þjóðina umfram önnur fyrirtæki í landinu að krefjast meiri "rekstraröryggis".

"Rekstraröryggi" í fiskveiðum byggist á fiskgengd, markaðsaðstæðum og kunnáttu. Ríkisstjórnin á ekkert með að vera með puttana í að veita útgerðinni EINOKUNAR AÐSTÖÐU undir því yfirskyni að skapa "rekstraröryggi".

Tökum útgerðina og það rekstaröryggi sem þeir hafa skaffað sjómönnum síðan þetta kvótakerfi var tekið upp. Rekstraröryggi sjómanna byggist á því að  þeir eru örugglega reknir ef þeir nefna kvótann og eyðileggingu hans á nafn. Á að fara verðlauna svona hegðun gagnvart fólki? 

Réttast er að afnema kvótann í hvelli áður en framkvæmd hans veldur meiri eyðileggingu á íslensku efnahagslífi, sjávarútvegi og markaðstækifærum okkar um allan heim. Það tekur eitt pennastrik að afnema kvótann og kostar ekki krónu. Látið engan segja ykkur neitt annað.  


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband