Færsluflokkur: Viðskipti og fjármál

Nú þarf VORHREINGERNINGAR Í VALHÖLL

Nú þegar það liggur fyrir að Eimreiðingar eru búnir að standa að baki rógi á Formann flokksins síðan fyrir síðasta Landsfund er kominn tími til vorhreingerninga í Valhöll.

Staðreyndin er að Eimreiðingar áttu aldrei erindi í Sjálfstæðisflokkinn sem sýndi sig best i óheiðarleika og spillingu sem einkennt hefur þeirra veru í flokknum frá upphafi. Þeir eru Framsóknarmenn enda leið þeim best í haughúsinu með Halldóri Ásgrímssyni og kvótabjálfunum hans. 

Íslendingar þurfa á Sjálfstæðisflokknum að halda án Eimreiðinga og kvótapúka. EINOKUN Í ATVINNULÍFINU ER EKKI STEFNA SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS OG MUN ALDREI VERÐA. 


mbl.is Styðja formann flokksins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það var þá ROTTAN Í RITSTJÓRNARSTÓLNUM eftir allt saman

Það er ömurlegt að sá sem rann á rassgatið við að moka FRAMSÓKNARFLÓRINN og endaði í haughúsi FRAMSÓKNAR skuli í dag vega að FORMANNI SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS ÚR LAUNSÁTRI. Frekjan og yfirgangur ritstjórans er slík að honum sér ekki fyrir og er andskotans sama um Flokkinn svo lengi sem hann heldur völdum.

Munum að þessi ritstjóri hefur þann háttinn á ef honum líkar ekki skrif þeirra sem senda blaðinu efni að hann sendir FANTA SÍNA á höfunda greina og pistla til að hóta þeim og "EYÐILEGGJA. 


Eimreiðin má ekki til þess hugsa að missa völdin þótt þeir séu að drepast úr elli.

Formaðurinn á að grípa um stýrið og sveigja frá EINOKUN OG HAGSMUNAPOTI og setja strikið á FRELSI EINSTAKLINGSINS og STÉTT MEÐ STÉTT. Sannir Sjálfstæðismenn munu flykkja sér um flokkinn ef stýrt verður út úr haughúsi Framsóknar þangað sem flokkurinn átti aldrei neitt erindi. 

Að vera neyddir til að hanga eins og hengil mænur í pontu Alþingis og verja kvótahirðina í stað þess að vera fremstir í flokki aukins Lýðræðis og frelsis er ekki Sjálfstæðisflokkurinn heldur Framsókn sem átti þar heima eins og sást. 

Þeir sem vilja Davíðisman áfram vilja að sjálfsögðu Hönnu Birnu og ekki leynir sér starfsaðferðir Eimreiðarinnar sem fór fremst í flokki þeirra sem óðu yfir allt og alla og "eyðilögðu" menn sem ekki jáuðu og sleiktu á þeim rass***ið.  


mbl.is „Ég útiloka ekkert“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ANDREMMAN ÚR AFTURSÆTINU

Engum sem fylgst hafa með Sjálfstæðisflokknum og þróun mála þar eftir HRUNIÐ hefur dulist hvernig kverkar tök útgerðarinnar stjóra þar öllu. Komið hefur glöggt fram á Landsfundum flokksins að það er enn útgerðin með styrkri hönd EIMREIÐARINNAR sem ráða þar lögum og lofum og skirrast þau ekki við að eyðileggja menn sem reyna að koma vitinu fyrir þá.

Nýja sýnilega flokksforystan  vildi gera upp Davíðisman og HRUNIÐ eins og sannarlega var þörf á en voru keyrð í kaf og síðan hefur ekki mát HORFA Í BAKSÝNIS SPEGILINN. 

En að sjálfsögðu lét hinn almenni flokksmaður hinn sanni Sjálfstæðismaður ekki draga sig endalaust á asnaeyrunum í kvótastýringum og EINOKUNAR tilburðum þar sem hagsmunagæslan kom á undan skynseminni. Sennilega hefur fíflagangurinn á þingi þar sem þingmenn gerðu sig að fíflum hangandi í pontu dag eftir dag viku eftir viku. 

Þó ég skilji ekki flóttann ofaní haughús Framsóknar þá virðast mönnum alla vegna líka þar betur en í andremmu kvótahirðar og eimreiðar. 


Hvernig rýrir EINOKUN kvótakerfisins afkomu þina og þinna???

Þetta er ekki flókið þegar menn gera sér grein fyrir hvernig þessu var háttaði fyrir kvótakerfið og samþjöppun aflaheimildanna. Áður en útgerðin byrjaði að veðsetja aflaheimildirnar uppí topp. 

Við veðsetninguna og stærri einingar í útgerð þjappaðist þjónustan við útgerðina saman og varð jafnvel partur að samsteypunni í stað þess að vera fyrirtæki á opnum markaði. Hagnaður af þjónustunni færðist inní útgerðarfyrirtækið og starfmenn lækkuðu í launum.

Við kvótakerfið hrundi samnings aðstaða sjómanna og hafa þeir verið beittir ofbeldi til að taka á síg part af kostnaðarhludeild útgerðarinnar án þess að fá rönd við reist.  

Stórútgerðirnar sóttust eftir að kaupa upp útgerðir sem unnu á frjálsum markaði með fisk þannig að minnkað framboð var á fiski "utan" samstæðanna. Þetta allt skeði hægt og bítandi en á skipulagðan hátt og í efnahagsbólunni sem veðlán útgerðanna ollu fann fólkið ekki fyrir peninga skorti þar sem ódýrir matador peningar voru í umferð.

En þá Hrundi allt enda allt byggt á fyrirfram greiddum arði útgerðarinnar. Gengið féll og fólk missti eigur sínar sem aldrei fyrr. Af hverju? Af því að nú var engin peningur frá útgerðunum í hringrás hagkerfisins. Allur arður og athafnir í kringum útgerð og fiskvinnslu var nú einangraður inní í útgerðarbatteríunum og arður byggður á lágu gengi fór beint inní bankana sem réttu fljótar úr sér en auga á festi á meðan fólkið missti eigur sínar og fyrirtæki á innanlandsmarkaði börðust í bökkum eða fóru á hausinn.

Og þetta hefur nú gegnið í 5 ár og greinilegt að eitthvað vantar í hagkerfið sem þarf til að þjóðin nái að rétta úr sér á meðan sjávarútvegsfyrirtæki og bankar blómstra af því að sjávarútvegsfyrirtækin einoka nú  fiskveiðar og vinnslu og allt er gert til að enginn komist inn og enginn segi frá.

Án eðlilegrar hringrásar tekna og arðs útgerðar og fiskvinnslu eru engir peningar að ráði í þjóðfélaginu til að halda gangandi því þjóðfélagi sem við byggðum upp fyrir kvótakerfið. Þess vegna tapar fólk eigum sínum og fyrirtæki hafa ekki rekstrargrundvöll. Ríkið fær ekki tekjur og getur ekki viðhaldið og rekið velferðarkerfið. Erlendar tekjur fyrir fiskinn skila sér ekki í hringrás innlends atvinnulífs eins og áður.

Ef við nú afnemum kvótakerfið og tækjum upp sóknarmark með allan fisk á markað myndi afli stór aukast þar sem í dag er haldið aftur af aflaheimildum til að halda hér háu kvótaverði. Þessi aukni afli myndi kalla á fleiri skip og fleiri vinnslur myndu byggjast upp og stækka. Þetta yrði sprengja í atvinnulífi þjóðarinnar og við sæjum algeran viðsnúning í afkomu heimila, fyrirtækja og ríkisreksturinn yrði auðveldari. 

Vel kom fram á síðasta þingi hvílík öfl eru í gangi í þjóðfélaginu til að verja það að við náum ekki að afnema kvótakerfið og einokunina sem ver útgerðirnar. Þessi öfl verður að brjóta niður með einum eða öðrum hætti annars missir þjóðin ekki bara tekjur sína heldur sáum við í lok þingsins að lýðræðið er í hættu.

Engin getur hjálpað okkur í því þorskastríði sem útgerðin hefur sett okkur í nema við sjálf. Kosningarnar í vor eru vígvöllur okkar til að gera breytingar. Við verðum að brjóta niður múra einokunarinnar 4 flokkinn. Við verðum að skipta út fólki sem gengur erinda útgerðarinnar á þingi og kjósa heiðarlegt fólk á þing. Nýju framboðin eru skipuð heiðarlegu fólki sem er reyðubúið að taka á vanda þjóðarinnar og breyta því sem breyta þarf.

Verum ekki hrædd við breytingar ástandið á Alþingi getur varla versnað er það? 

 


Látum svívirðinguna kenna okkur lexíu

Þjóðin var svívirt af meirihluta á Alþingi sem hafnaði meirihluta niðurstöðum úr þjóðaratkvæðagreiðslu til að tryggja hagsmuni útgerðarinnar sem hefur gífurleg áhrif á Alþingi íslendinga. 

Nú er komið að kjósendum að svara og gera það sem þarf til að þessir svikahrappar á Alþingi læri sína lexíu í eitt skipti fyrir öll. Kosningarnar er okkar vígvöllur með atkvæði okkar hendum við svikahröppum af þingi og kjósum inn nýja heiðarlega frambjóðendur sem munu ganga erinda okkar en ekki erinda útgerðaraðalsins. 

Enginn má vanmeta atkvæði sitt eða hundsa nýju stjórnarskrána. Við verðum öll að leggja atkvæði okkar á vogarskál lýðræðis gegn græðgi og spillingu. Núna er lag enginn má skorast undan. Fyrst verður að skrifa leikreglur svo getum við farið í pólitíkina á eftir.   

 


Þá lagðist Alþingi lægst þegar svikahrappar sátu glottandi og horfðu á stjórnarskránna fara í tætarann

Það var ógeðslegt að verða vitni að mestu lágkúru Íslandssögunnar þegar svikahrappar og kvíslingar Þorsteins Má sátu glottandi yfir óförum þjóðarinnar í svika vef spunnum af útgerðarmongúlnum gegn þjóðinni sem borið hefur þetta skoffín græðginnar á höndum sér í 30 ár.

Megi skömm þeirra sem þátt tóku í þessum skollaleik Þorsteins aldrei gleymast og verða þeim til ævarandi minnkunar. 


mbl.is Breyting á stjórnarskrá samþykkt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Handfæraveiðar frjálsar og kvótinn afnuminn í einn mánuð....

Þetta var góð ábending hjá kaupmönnum og vænti ég þess sama frá Atvinnumálaráðuneytinu að þeir gefi Handfæraveiðar frjálsar og aflétti kvótanum í einn mánuð svo kjósendur geti séð hversu mikið við erum að tapa á kvótakerfinu og einokuninni í kringum það. 

 Munið ég skrifa ekki af hatri heldur skynsemi og ósk um að ég geti hjálpað minni þjóð að skilja þau afbrot sem hér eru framin í skjóli kvótans.  


mbl.is Lækkað verð í 60 mínútur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Handónýt þjóð í járnum EINOKUNNAR KVÓTANS

Fólk virðist því miður seint ætla að skilja að þrátt fyrir að Íslendingar séu ein ríkasta þjóð í veröldinni þá kemur eyðilegging kvótakerfisins í veg fyrir að almenningur fái notið auðsins sem skildi. 

Við urðum fyrir tveim dögum vitni að einhverju mesta lýðræðis níði þegar þingmenn FRAMSÓKNAR OG SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS komum í veg fyrir að þjóðin kæmi sér upp stjórnarskrá sem hefði tryggt þjóðinni völd til að takast á við spillingar og græðgis öfl kvótahirðarinnar sem hér vilja öllu ráða.

Einokun kvótans kemur í veg fyrir flæði fjár um þjóðfélagið og kvótakerfið kemur í veg fyrir að við náum nokkru sinni að hámarka afraksturinn. Það er bara til að verja sérhagsmuni fámennis klíku kvótahafa sem þetta kerfi er haldið við lýði eins þjóðhaglega óhagstætt og spillandi það er.

Við eigum nóg af peningum til að taka þátt í þróunar aðstoð og fæða okkur veikustu það er bara spilling sem kemur í veg fyrir að það sé gert. 

 

PS Segið þeim sem reyna að segja að ég skrifi af hatri að þeir ljúgi því ég skrifa af hagsýni og skynsemi. Ég vill betra þjóðfélag án grægi og grimmd. 


mbl.is Fólk matarlaust síðustu daga mánaðarins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Svívirt þjóð situr uppi með svikahrappa á Alþingi

Þetta hlýtur að teljast versta kjörtímabil lýðveltissögunnar þegar þjóðin þurfti svo sannarlega á góðu og heiðarlegu þingi að halda. 

Í staðinn stjórnuðu þeir sem standa fyrir spillingu í landinu þinginu allt kjörtímabilið. 

 

Kvótapúkinn dansar af kæti  


mbl.is 38,1% samþykktu tillögu um 40%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband