19.5.2012 | 07:33
ÁFRAM 2007 ÞJÓÐAREIGNIN AÐ VEÐI FYRIR ÚTGERÐINA
Það er sérstakt að hlusta á bankana halda áfram að mæla með því að kvótinn, óveiddur fiskur sem er eign þjóðarinnar, skuli vera notaður sem veð fyrir útgerðina. Það að þetta sé grundvöllur lánveitinga til velrekinna fyrirtækja er náttúrulega forheimska og ekkert annað en 2007 rugl. Þessi kvótalán voru upphaf hrunsins og ástæða þess að nú eru Lánasöfn bundin í þjóðareiginni komin í eigu erlendra aðila.
Í raun er bankinn að segja að ef þeir fái ekki að spila sömu endaleysuna áfram að veltast með kvótaveðin (eign þjóðarinnar) til hagsbóta fyrir útgerðina þá minnki þjóðarhagur? Lántökur útgerðarinnar út á kvótann sem skapað hafa 500 milljarða nánast óborganlegar skuldir útgerðar séu grundvöllur þjóðarhags? Nei það sem sannleikurinn í þessu er að 270 milljarða hengja hangir yfir bönkunum með "ólöglegu" veði í eign þjóðarinnar. Þessa 270 milljarða virðíst LÍÚ vera að nota til að þvínga Ríkistjórnina og þingið til að fallast á áframhaldandi kvótarugl.
Fólki á að vera ljóst eftir gengdarlausan hræðslu áróður og hótanir að kvótakerfið er ekki fyrir þjóðina heldur fámenn hirð sem ætla sér hér öll völd út á nýtingarréttinn hvað sem þjóðin segir. Í 28 ár hefur meirihluti þjóðarinnar réttilega krafist afnáms kvótakerfisins án árangurs og núna er Ríkisstjórnin að brjóta loforð sitt við þjóðina með því að vera að reyna að smygla 20 + frumvarpinu í gegnum þingið í skjóði hávaða sem þyrlað hefur verið upp í kringum auðlindagjaldsfrumvarpið sem er bara bastarður sem nota átti til að fela 20 + frumvarpið.
Hingað og ekki lengra. Með 20+ frumvarpinu sem samið var af lögspekingum LÍÚ og átti að færa útgerðinni eignaréttinn að auðlindinni til eilífðar og leggja þar með af sterkasta vígi þjóðarinnar gegn arðráninu þ e veiðiréttinum úthlutað til eins árs í senn. Þessu ákvæði má alls ekki fórna og þjóðin þarf að skilja að í dag eru lögin um stjórn fiskveiða enn það skýr að ekkert þarf að hafa samráð við einn né neinn nema eigandann af fiskveiðiauðlindinni þjóðina sjálfa. Við eigum nú ístað þess að hleypa í gegn þjófa frumvarpi ríkisstjórnarinnar 20+ að taka öll völd á fiskveiðistjórninni í hendur þjóðarinnar og passa að hér verði á engan hátt unnið að gerð fiskveiðistjórnar nema með fullri aðkomu þjóðarinnar.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.5.2012 | 18:59
HVERS ÁTTI ÞESSI ÁHÖFN AÐ GJALDA ÁRIÐ 1997 ??
HVERS ÁTTI ÞESSI ÁHÖFN AÐ GJALDA?
Áhöfnin á aflaskipinu B/V Viðey Re 6 sem var rekinn útaf aðför að skipstjóranum Ólafi Jónssyni - Ola Ufsa sem hafði leyft sér að krítisera spillinguna og ruglið í kringum kvótakerfið.
Stýrimennirnir 2 sem voru bestu fiskimenn Granda fengu ekki vinnu hjá félaginu og hafa aldrei kastað trolli á Íslandsmiðum frekan er ég skipstjórinn sem er enn hundeltur með hótunum um brottrekstur vegna skoðanna minna. Ekki einatt var ég sviptur vinnu minn heldur byrjuðu hótanir í minn garð fljótlega á eftir. Síðan hef ég verið keyrður í gjaldþrot og reynt að koma í veg fyrir að ég komist af stað á ný með hótunum til aðila í kringum mig.
Held að þessir menn sem fögnuðu svo ákaft á Norfirði og víðar þar sem er "valinn maður" í hverju rúmi ættu að skilja að þeir mega þakka fyrir að fá að veiða í hvaða kerfi sem eigandi fiskimiðanna þjóðin ákveður hverju sinni.
Eða er einhver á þessari aldeilis mynd frá Norðfirði sem ætlar að segja mér að hann hafi meiri rétt til að vera til sjós og veiða fisk frekar ég eða áhöfnin sem var rekinn vegna þess að ég leyfði mér að nota mín sjálfsögðu mannréttindi að láta skoðarnir mínar í ljósi.
Ég held að alvöru sjómenn ættu að fara að líta sér nær og spyrja sjálfan sig hvort hann ættli virkilega að láta EINN MANN SEM GREINILEGA GENGUR EKKI HEILL TIL SKÓGAR draga sig inní stríð við sína eigin þjóð útaf eigingirni sem er ein versta kennd sem maðurinn þarf að takast á við í sjálfum sér.
Ætlið þið kannski að fylgja fordæmi klíkunnar og hringja í fyrirtækið sem hefur mig í vinnu og segjast ekki nota trollin þeirra eins lengi og þeir hafi mig í vinnu? Eða á bara að stoppa viðskitin? Vona þá að þið látið okkur hin vita svo andskotans leynimakkið í kringum ófögnuðinn verði uppi á borðinu hér eftir.
STYÐJUM AÐ HÉR VERÐI TEKIÐ UPP SÓKNARMARK ÞAR SEM ALLIR SITJA VIÐ SAMA BORÐ OG EINOKUN RÁÐI EKKI LENGUR LÍFI OG DAUÐA SJÓMANNA OG SJÁVARÚTVEGSFYRIRTÆKJA. Þessari kvótavitleysu verður að linna það hlýtur hver heilvita maður að sjá
|
Hvað höfum við gert ykkur? |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.5.2012 | 14:57
Hreyfingin er að sýna ábyrgð með að setja stjórarskrármálið á oddinn.
En meira má koma til. Afglapa frumvarp sem felur í sér eignarhald á kvóta um alla framtíð má ekki læsa inni. Það verður að taka kvótamálið og koma því í hendur þjóðarinnar sem búin er að reyna að afnema þetta kerfi í 28 ár án árangurs.
Hvers átti áhöfnin á aflaskipinu Viðey að gjalda þegar þeir voru reknir fyrir skoðanir skipstjórans á kvóta sukkinu?
|
Munu verja ríkisstjórnina vantrausti |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
6.5.2012 | 09:31
NÝJA DÓTABÚÐIN HANS AFA SLÆR Í GEGN
|
8.000 komu í Bauhaus í dag |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
5.5.2012 | 11:28
Þóra fær gunsamlega mikinn stuðning frá Sjálfstæðismönnum
Skyldi liggja fiskur undir steini þegar harður kjarni í Sjálfstæðisflokknum ljári einum frambjóðaenda til kjörs forseta frekar en öðrum stuðning????
HVERNIG GÆTI STAÐIÐ Á ÞVÍ? Forsetaembættið er síðasta vígi Lýðræðis í landinu og vörn fólksins gegn valdagræðgi og arðráni. Þetta ættu kjósendur að hafa í huga þegar gengið verður til kosninga.
|
Þóra með 9% forskot á Ólaf |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
5.5.2012 | 11:16
Stór og flott DÓTABÚÐ fyrir afa.
|
Allt fullt hjá Bauhaus |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
29.4.2012 | 16:44
BEINT LÝÐRÆÐI það sem koma skal
Beint Lýðræði er leið Íslendinga út úr spillingunni sem orðin er viðvarandi hér á landi eftir 18 ára tíð Davíð-ismans. Nýja stjórnarskrá Stjórnlaganefndar er stórt skref í þá átt og má ekkert koma í veg fyrir að hún nái fram að ganga.
Þegar hyllir undir að völdin séu loksins að færast meira í hendur þjóðarinnar má ekki ske að Rikistjórnin og Alþingi samþykki lög um auðlindamálið sem gilda á í 20 ár eða lengur. Slíkt sýnir ekkert annað en valdhroka og ráðríki gagnvart fólkinu í landinu.
Öllum má vera ljóst að fiskveiðistjórnin er eitt mesta hagsmunamál þjóðarinnar og kvótakerfi verður ekki grunnur fyrir Nýtt Ísland sem verður byggt á SÓKNARMARKI MATTA BJARNA ef þjóðin fær að ráða.
Þjóðin þarf að slá skjaldborg um nýju stjórnarskránna og ónýta þau frumvörp sem verið er að reyna aðtroða í gegnum þingið í skjön við vilja og velferð þjóðarinnar. Það er illt að verða vitni að því að flokkur manna setji sig upp á móti þjóð sinni eingöngu til að fullnægja eigin GRÆÐGI.
|
66% styðja tillögur Stjórnlagaráðs |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
28.4.2012 | 13:42
Fortíðinni fær enginn breytt en FRAMTÍÐIN er í hættu!
Núna þegar flest hrunmálin eru í rannsókn eða komin fyrir rétt er vert að þjóðin fari að huga að framtíðinni. Eitt brýnasta hagsmunamál þjóðarinnar fiskveiðistjórnin er í uppnámi. UTGERÐIN ætlar sér eignarhald á fiskveiðum um alla framtíð og hefur fjórflokkinn að baki sér.
Þjóðin hvar í flokki sem menn standa verður að beita sér gegn því að ný kvótafrumvörp sem færa munu útgerðinni veiðiréttinn til allrar framtíðar í hendur nái fram að ganga. Alþingi brást þjóðinni í bankahruninu og má þjóðin ekki treysta á stjórnmálamenn þegar kemur að jafn veigamiklu máli og fiskveiðistjórninni.
Þjóðin verður sjálf að hafa stjórn á þessum málaflokki og setja reglur um veiðar og vinnslu. Það gerum við með því að krefjast þjóðaratkvæðagreiðslu um frumvörpin og kjósa síðan um afnám kvótans og upp töku Sóknarmarks með allan fisk á markað.
Ég bið fólk að forðast að halda að hér verði einhver Ragnarök við upptöku Sóknarmarks því ekki þarf einu sinni að kalla flotann inn bara samþykja lögin og halda áfram að veiða þar sem allir sem vit og kunnáttu hafa geta komið að á jafnréttis grunni.
28.4.2012 | 12:11
Gæti ég ælt .... er þetta talsmaður launafólks í landinu?
|
Strandveiðum verði hætt |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
27.4.2012 | 08:19
Nú afnemur þjóðin kvótakerfi Halldórs Ásgrímssonar og Nýtt Ísland rís á Sóknarmarki Matta Bjarna
Aldrei hefur lítil þjóð verið svívirt á jafn auðvirðilegan hátt eins og þegar Kvótakerfinu var logið upp á íslensku þjóðina til reynslu. Eins og sést á viðhenginu hér að neðan var reynslan mjög slæm og hrikalegt að horfa á besta fiskveiðistjórntæki veraldar Sóknarmarkinu rutt úr vegi fyrir þessa vitleysu.
Alþingi brást þjóðinni í bankahruninu og þjóðin getur ekki treyst þessu fólki fyrir stærsta hagsmunamáli þjóðarinnar fiskveiðitjórninni. Nú verður fólkið að taka að sér alla meðhöndlun á fiskveiðistjórninni. Við verðum að afnema Kvótakerfið sem engin sátt hefur náðst um í 28 ár og vilji þjóðarinnar verið hundsaður.
Við tökum upp Sóknarmark Matta Bjarna sem var mótað í samvinnu við íslenska sjómenn veiðandi á íslenskum miðum. Þetta kerfi var skilvirkt, og þjált og gerði öllum jafn hátt undir höfði. Það var þjóðarskömm að þetta kerfi var afnumið til að ganga erinda fárra sem ekki sættu sig við að sitja við sama borð og aðrir landsmenn.
Við að taka upp Sóknarmark með allan fisk á markað verða engin ragnarök og ekkert verður tekið af neinum. Það þarf ekki einu sinni að kalla flotann inn. Brottkast mun hætta og meiri fiskur mun berast að landi. Fleiri munu koma að veiðum og vinnslu og gjald mun tekið af hverju seldu tonni. Fyrst til að borga sannanlegar kvóta-skuldir* og styðja við brotna þjóð en síðar mun þetta gjald standa undir kosntnaði við Hafró og ganga í auðlindasjóð þar sem tryggt verður að stjórnmálamenn komist ekki með krumlurnar.
Talandi um fjárfestingu þarf enginn að halda að í grósku Sóknarmarks muni Bankarnir standa á hliðarlínunni þegar öflugir skipstjórar þurfa að endurnýja skip sín og duglegt fólk i fiskvinnslu þarf að koma sér upp aðstöðu. Allstaðar þar sem sjómenn hafa gert skipin út á eigin reikning hefur framþróun í veiðum og vinnslu fleygt fram eins og sást á Vestfjörðum og í Vestmannaeyjum á dögum Sóknarmarksins. Sannleikurinn er sagnanna bestu látum ekki ljúga að okkur lengur. Ísland þarf vítamínsprautu til að komast frá hruninu. Sprautan felst í að afnema versta og spilltasta fiskveiðistjórnkerfi í heimi.
*að senda pabba og mömmu á eftirlaun með 3 milljarða í vasanum eru ekki sannanlegar kvótaskudlir heldut tilraun til þjófnaðar.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)



ansigu
floyde
skagstrendingur
georg
mosi
gmaria
kreppan
johanneliasson
jonatlikristjansson
islandsfengur
joningic
fiski
jonmagnusson
bassinn
kallimatt
natthagi
kristinnp
wonderwoman
lydurarnason
nilli
njallhardarson
huldumenn
pallblondal
nafar
sigurfang
siggith
stefanbogi
svennip
saevarh




