16.3.2016 | 08:00
Af hverju fiskum við ekki bara okkar eigin þorsk og minnkum göngur þorsk í Barentshafið?
Það væri sannarlega gott að fá samninga við Rússa um veiðar en gerum okkur grein fyrir að skortveiðin á Íslandsmiðum er sannarlega styrking fyrir þorskveiðar í Barentshafi og við Grænland. Og eins styrkir skortveiðin hérna markaðsstöðu Noregs og Rússlands á þorsk mörkuðum.
Með því að byrja aftur að fullnýta okkar fiskstofna styrkjum við stöðu okkar aftur á mörkuðunum heimsins og stór aukum kjör og allt atvinnulíf á Íslandi. Kvótakerfið hefur haft gífurlega eyðileggingu í för með sér á íslenskan sjávarútveg og byggð í landinu. Þess vegna liggur beinast við að afnema kvótakerfið með öllu eins fljót og auðið verður og koma hér á sóknarmarki og setja allan fisk á almennan markað svo að allir sem vettlingi geta valdið hafi aðgang að auðlindinni og geti tekið þátt í verðmætasköpuninni hérna.
Með því að nýta að fullu þorskinn okkar líka í góðærum eins og sóknarmarkið myndi hjálpa okkur að gera myndu minnka göngur héðan til Noregs og Grænlands og styrkja þannig okkur í okkar markaðssókn ekki veitir af.
Búist við fundarboði frá Rússum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkar: Bloggar, Viðskipti og fjármál | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.