31.10.2012 | 19:18
Þá vitum við hvaðan þetta bull er komið. Þeir ætla seint að gefast upp við áróðurinn
Eyða öllu þessu bleki og tíma til að reyna að reyna að slá ryki í augu almennings. Hvenær á að verða við kröfum úr þjóðaratkvæðagreiðslunni og afnema kvótann?
Þegar litið er til tækifæra sem íslenskt hagkerfi stendur fyrir er bent á að í skýrslunni að íslenskur sjávarútvegur stendur afar vel í alþjóðlegum samanburði. Það sé því mikilvægt að tryggja stöðugleika í rekstrarumhverfi sjávarútvegsfyrirtækja og sjá til þess að endurúthlutun á auðlindarentu greinarinnar leiði ekki til minnkandi skilvirkni. Til að stuðla að auknum vexti greinarinnar væri skynsamlegt að auka verðmæti núverandi útflutnings, t.d. með frekari uppbyggingu vörumerkja og virðisauka í gegnum markaðsetningu, samhliða því að vinna að nýjum vaxtarmöguleikum.
Ættum að flytja til 13 þúsund störf | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.