ALÞINGISMENN ÓVINIR ÞJÓÐARINNAR # 1 ????

Þegar litið er til þess hvernig verið er að stela af þjóðinni arðinum af sjávarauðlindinni er með eindæmum að hlusta á þingmenn Alþingis verja þá aðila sem gengið hafa fram î því í tvo áratugi að festa hér í sessi versta og óréttlátasta fiskveiðistjórnkerfi veraldar. Þegar þjóðin gerir rétta kröfu um afnám KVÓTAKERFISINS laumast þetta hyski til að semja um 28 ára "AÐLÖGUNARTÍMA". Tveggja kynslóða "AÐLÖGUNARTÍMA". KOMON ?

Vegna reiknikúnsta í bönkunum erum við að missa eigur okkar og fjöldagjaldþrot hafa átt sér stað. Allt gert með stuðningi og hvatningu frá fólki sem við treystum til að standa vörð um hag okkar. 

Forfeður okkar sem yfirgáfu valdhroka og valdníðslu Noregskonungs og settust að á Íslandi komu sér upp Alþingi þar sem þeir réðu ráðum sínum. Hvað gerðu þeir þegar þeir lentu í svipuðum vandræðum og við afkomendur þeirra erum í núna. Jú þeir "ruddum dóminn". Nákvæmlega það sem við þurfum að gera núna með ónýtt Alþingi. Út með helvítis pakkið sem situr á þingi og leyfir sér að hundsa vilja og þarfir þjóðarinnar. 

Ekkert annað að gera en að henda þessu pakki út á götu og fá stjórnlagaráðið til að taka við og koma hér aftur á LÝÐRÆÐI. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Aðalsteinn Agnarsson

Flottur!

Aðalsteinn Agnarsson, 15.10.2011 kl. 18:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband