ÍSLANDI STOLIÐ! EINOKUNIN Á SJÁVARÚTVEGI ER ÞJÓFNAÐUR Í SKJÓLI SPILLTRA STJÓRNVALDA

Þegar fólk um heim allan mótmælir samsöfnun auðs og valda mótmæla Íslendingar þjófnaði fámennrar LÍÚ klíku sem er að reyna að sölsa undir sig verðmætustu eign þjóðarinnar fiskimiðin. Í skjóli spilltra pólitískra afla komust örfáir útgerða aðilar í þá stöðu að nota eign þjóðarinnar sjávarauðlindina sem "eigiðfé" fyrirtækja sinna og draga með því fé út úr ríkisbönkunum.

Eðlileg banka viðskipti ganga út á að lána fé út á gegnheil veð það er áþreifanleg verðmæti ekki út á hugtök. Bankastjórar ríkisbankanna voru hins vegar þvíngaðir til að taka "kvótaveðin" sem um skýra gull væri að ræða og lána útá þau sem eigiðfé fyrirtækjanna. Þarna urðu til gervipeningar sem þessir aðilar notuðu markvist í sína þágu í tvennum tilgangi. 

Annar vegar að skapa eignir og völd í öðrum atvinnugreinum  og hins vegar að skuldsetja svo fyrirtækin í sjávarútvegi að ekki væri hægt að afnema kvótakerfið eins og krafa þjóðarinnar gekk út á. Skýrt kom fram síðastliðið vor hvernig LÍÚ kíkan hafði tögl og haldir í SA sem nota átti til annars vegar að þvinga stjórnvöld og hins vegar að keyra niður réttlátar launakröfur. Stefnan er að hér verði þrælaríki þar sem þegnarnir rétt skrimti. 

Mikil leynd hvíldi yfir þessum áformum sem hófust með ályktun "tvíhöfðanefndarinnar" 1993 þar sem þetta plott hófst. Ef einhver úr sjávarutvegsgeiranum lét heyra í sér og varaði við óþverranum sem var í uppsiglingu var hann umsvifalaust sviptur vinnunni eða þvingaður til að stein halda kjafti. Farið var í fyrirtæki sem þjóðnustuðu útgerðina og eigendum þeirra og stjórnendum hótað ef þeir hefðu menn í vinnu sem leyfðu sér skoðanir á því sem átti sér stað í útgerðinni. 

Með þessu var komin á þöggun sem gerði þessum mönnum kleift að læðuPÚKAST áfarm eins og rottur um nótt og voru bankarnir þarna teknir í ánauð útgerðarinnar sem sett var í óhemju skuldir byggðar á lofti. 

Þetta er eitt ógeðslegasta valda rán sem átt hefur sér stað í Vestur Evrópu  síðusutu árhundruðin. Þetta er orðið illkynja æxli í þjóðarsálinni og rotnunin sem Davíð og Halldór guðfeður þessa gernings skildu eftir sig gerjar nú á Alþingi Íslendinga sem aldrei fyrr og má segja að þingið sé óstarfhæft. 

Íslendingar; hugsum um hag barna okkar og barnabarna og flykkjumst niður á Austurvöll og mótmælum með systrum okkar og bræðrum því óréttlæti sem grefur um sig í íslensku þjóðfélagi. Látum ekki lágkúrulegt illa innrætt kvikindi komast upp með að eyðileggja besta land í heimi. GEFUM AFKOMENDUM OKKAR FRAMTÍÐ. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Eyjólfur Jónsson

Sæll Ólafur Örn, þetta er eins og fólk segir "heilagur sannleikur". Það sem fer mest í mína sál er að fólk "sér"  ekki hvað sem raunverulega hrfur verið i gangi í lengri tíma. Þetta sérð þú og margir aðrir á landinu. Það er búið að læsa þessu stefnu fasta þar til markmiðinu er náð. Það er nú þegar búið að borga eða tryggja greiðslur eða tilsvarandi til þeirra sem framkvæma þennan gjörning. Ég var ekkert hissa þegar þessi þjóðverji hoppað inn í EB umræðuna hér um daginn. Þú "veist" að þjóðin verður að stofna sína eigin stjórn óháða öllum núsitjandi stjórnum og valdhöfum hvort sem það eru embættis eða fjármagns valdhafar. Þá getur svo þjóðin stofnað sína stjórn,sína banka,sitt orkukerfi, sitt mentakerfi, sitt heilbreygðiskerfi,sitt fiskveiðikerfi, sitt lögreglu og dómsvald,sitt vegakerfi,sinn hefðbundna bænda búskap,sinn strandsiglinga flota og sitt flugfélag. Þetta er ansi mikið, en þetta er bara það sem við þurfum að gera annars töpum við öllu landinu sem okkur þykir svo vænt um. En svo einföld er í raun lausnin að þeir sem núna eru við völd og á móti þessum umbreytingum munu snúast í lið með okkur og verða þá laus úr þessari gildru sem þaug eru núna föst í og hafa ekki hugmynd um hvernig á að komast úr. Svon aer það.

Eyjólfur Jónsson, 15.10.2011 kl. 13:55

2 Smámynd: Ólafur Örn Jónsson

Þakka þér innlitið Eyjólfur þetta á að vera orðið öllum ljóst þótt menn hafi seinir að átta sig á að svona nokkuð gæti hafa átt sér stað. Ástæða þess er að Þorsteinn Már Baldvinsson sem er driffjöðurin bak við þetta hélt sér til hlés og spilaði á fólkið í kringum sig sem hann beitti óspart í þessu plotti.

Menn sem urðu fyrir ofbeldi útaf þessu vissu ekki að þarna var þessi maður að baki því hann læddis eins og rotta og otaði sínum tota og jók völd sín og auævi án þess að menn sæju hvað var í gangi og gætu staðið í vegi fyrir honum. 

Hringjandi í menn og ausa yfir þá reiðilestri og skella á og öskra alla í kaf og rjúka svo út með hurðaskellum er stæll Þorsteins Más. Þannig er hann búinn að dominera LÍÚ og Sjáfstæðisflokkinn og gefur hvergi færi á sér. Menn hræðast völd hans því hann er óragur við að beita mönnum þvingunum og ofbeldi til að fá sitt fram í hvívetna.  þJÓÐIN þarf að átta sig á að hér fer hættulegur maður haldin óþrjótandi valdagræðgi sem verður að stöðva. 

Ólafur Örn Jónsson, 15.10.2011 kl. 15:13

3 Smámynd: Eyjólfur Jónsson

Ojá Ólafur, satt er það, og ég er nú loksins farinn á ellilaun og hef þá tíma til að finna eða öllu heldur, greina þann vanda og þær hættur sem að okkur steðja í dag. Útlitið er heldur dapurt en alls ekki vonlaust og þarf að hóa saman þessu liði og þjappa saman og ná góðri og öruggri fótfestu. Ég er með nokkra gamla þjarka sem eru ansi glöggir og meðvitaðir um akkúrat þetta vandamál. Það vefst ekki fyrir mér að taka á svona vanda frekar en þér að snúa trollinu rétt í straumröst mannlífsins. Látum okkur sjá hvað við gerum í vetur.

Eyjólfur Jónsson, 15.10.2011 kl. 18:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband