Færsluflokkur: Viðskipti og fjármál
12.9.2013 | 07:27
Djöfulsins viðbjóður í gangi í þessu þjóðfélagi í skjóli kjána kjosenda.
![]() |
Fengu húseignir á góðum kjörum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 11:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nuna þegar betur og betur er komið i ljos að her verður ekki rekið velferðakerfi með haum kaupmætti almennra launa nema að afnema EINOKUNINA a fiskveiðum og vinnslu. Þegar velferðakerfið sem byggt var og rekið fyrir daga kvotans er að hrynja i hausinn a okkur þurfum við að vakna til vitundar um að eitthvað storkostlegt er að i uppbyggingu þjoðfelagsins.
Ein rikasta þjoð i veröldinni geti ekki lengur haldið mannsæmandi kaupmætti almennra launa og borgað t.d. læknum og hjukrunarfolki samkeppnishæf laun er oboðlegt i einu lengsta og mesta goðæri siðustu ara til sjavar og sveita?
Hefjum barattu gegn gendarlausri græðgi farra og naum aftur stjorn eigin mala ur höndum þeirra sem stra um sig illa fengnu gullinu til að þetta vörnina um serhagsmuni sina.
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 07:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.8.2013 | 12:13
Vinnuframlag, dugnaður og vandvirkni í stað græðgi, yfirgangs og frekju
Baráttan fyrir afnámi kvótakerfisins sem er að eyðileggja þjóðfélagið gengur ekki út á hatur og illgirni heldur afnám HAFTA og EINOKUNAR sem ekki á að þekkjast í nútíma þjóðfélagi.
Að sjálfsögðu á að afnema fiskveiðistjórnkerfi sem aldrei hefði átt að innleiða og búið er að þróa í þá átt að langstærstur hluti arðsins nýtist þjóðinni ekki. Búið er að útfæra umgjörðina í kringum kerfið á þá leið að sem minnst af arðinum rennur um æðar samfélagsins heldur rennur beint inní bankanna sem fitna og í hendur þeirra útgerða sem skuldsett hafa kvótaeign þjóðarinnar í botn.
Það vita allir sem vilja vita að kvótastýring á fiskveiðar getur aldrei skilað hámarks afrakstri hvers stofns við botntroll veiðar eins og við höfum kynnst illþyrmilega síðastliðin 5 ár þegar við höfðum svo sannarlega þörf fyrir þann auka afla sem ekki var tekinn í þorski, karfa, ufsa og síld. Milljarðar forgörðum í þeim eina tilgangi að halda uppi verði á kvóta og passa að skapa ekki offramboð á eign þjóðarinnar.
Kominn er tími til að þjóðin átti sig á því að afnám kvótakerfisins er stærsta hagsmunamál okkar og við verðum að brjóta niður múra EINOKUNAR um verðmæti hafsins til að geta brauðfætt þjóðfélagið og haldið gangandi velferðarkerfi og kaupmætti launa eins og var hér fyrir kvótakerfið.
Ekkert er því til fyrirstöðu að þjóðin knýi fram breytingar á fiskveiðistjórninni og afnemi það óréttlæti sem ríkir í greininni. Með því að taka upp sóknarmark að hætti Matthíasar Bjarnasonar sem var gott og skilvirkt kerfi og setja allan fisk á markað er búið að breyta þjóðfélags gerðinni sem kvótakerfið hefur eyðilagt. Hér mun aftur rísa þjófélag þar sem VINNUFRAMLAG, DUGNAÐUR OG VANDVIRKNI ERU Í FYRIRRÚMI VIÐ SKIPTINGU ARÐSINS AF TEKJUM ÞJÓÐARINNAR EN GRÆÐGIN, YFIRGANGURINN OG FREKJAN VERÐUR AÐ VÍKJA.
Viðskipti og fjármál | Breytt 24.8.2013 kl. 19:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.8.2013 | 04:34
Ísland vs Noregur
Takið eftir fyrir kvótakerfið var hagvöxtur á Íslandi slíkur að með áfram haldandi Sóknarmarki og allan fisk á markað eins og til stóð væru Íslendingar ein ríkasta þjóð veraldar við hlið NOREG!
En þá kom HALLDÓR ÁSGRÍMSSON.
Eyðilegging kvótakerfisins á íslensku efnahagslífi á sér enga hliðstæðu í hinum Vestræna heimi og eyðileggingin heldur áfarm þar til fólkið í landinu áttar sig loksins á því að þrátt fyrir að auðævi okkar séu mikil höfum við ekki efni á að halda hirð sem veltir sér uppúr arðinum af auðlindunum á meðan velferðarkerfið sem við byggðum og rákum fyrir kvótakerfið hrynur vegna fjárskorts.
Frelsi til veiða og allan fisk á markað þarf að taka við af Framsóknarstefnunni EINOKUN OG HÖFT.
![]() |
Olíusjóðurinn stækkar enn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 16:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
9.8.2013 | 10:06
Margföldun peninganna. Flæði fjár er nauðsyn til hagvaxtar.
"Saga peninganna" kenndi okkur hvernig bankinn getur nýtt sér innlögn í hreinu gulli og búið til þrefalt (nífalt) margfeldi gullsins og nýtt það til útlána.
Þetta var undirstaða stóra kvótafroðu þjófnaðarins. Eign þjóðarinnar var notuð sem eigin fé útgerðanna (hrein eign GULL) útgerðanna. Bankinn tók veð í útgerðinni kvótanum og lánaði útgerðinni einu sinni tvisvar eða þrisvar eða einhverjum öðrum því bankinn hafði nú þrefalt "verðmæti" kvótans reiknað út frá verði á kvótanum í viðskiptum útgerðarmanna á meðal.
En þetta er annað mál. Kvótarúllettan hefur skapað hrikalega aðstöðu sem þjóðin er að vefjast inní horfandi á lækkun launa og hrun velferðarkerfisins. Sérfræðingar þora ekki að segja hvað þarf að gera og pólitíkusar er múlbundnir á klafa gömlu hagsmunagæslu flokkanna.
Þjóðin nær sér ekki á strik af því að arðurinn af fiskveiðunum er múraður inní í útgerðunum og bönkunum með EINOKUN og nær ekki að flæða í gegnum æðar þjóðfélagsins og mynda þar með MARGFELDIÐ í virðisaukanum sem verður þegar segjum 45 milljarðar sem núna eru í höndum kvótahirðarinnar + 15 milljarðar sem ekki eru veiddir núna en eru til staðar (=60 milljarðar) færu með eðlilegum hætti í gegnum hendur fjöldans og fyrirtækja landsins.
Ég er ekki lærður hagfræðingur en veit að þarna úti eru heiðarlegt fólk sem gæti og hefur aðferðir við að reikna út hvað svona flæði fjár um þjóðfélagið myndi gefa í margfeldi eftir að hafa farið í gegnum verslun og viðskipti og endað inní ríkissjóði sem gæti þá staðið við skuldbindingar sínar.
EIGUM VIÐ EKKI BARA AÐ HÆTTA MEÐ ÞETTA ANDSKOTANS KVÓTAKERFI OG FARA AFTUR AÐ BYGGJA UPP OKKAR EIGIN ÞJÓÐFÉLAG ÁN KVÓTAHIRÐAR OG HIRÐFÍFLA ÞEIRRA?
Frábær ábending hjá Birni og segir mikið um hvernig komið er fyrir okkur sem þjóð með handónýtt þjóðfélag og banka sem nærast á EINOKUN og HÖFTUM.
Ekkert má lengur vera frjálst og opið einstaklingunum allt verður að vera háð EINOKUN OG KVÓTUM til að banka menn skilji verðmæti. Menn sem berjast af eigin rammleik eru taldir asnar af íslensku bankaelítunni sem veit hverjum þeir vilja þjóna.
Var ekki einhvern tíma til flokkur á Íslandi sem stóð við bakið á einstaklingunum og barðist gegn EINOKUN OG HÖFTUM? Hver fór hann?
Datt hann kannski ofaní haughús Framsóknar á eftir Formanni sínum?
![]() |
Furðulegur söfnuður í bankakerfinu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
![]() |
Nýjar aflareglur staðfestar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Viðskipti og fjármál | Breytt 1.8.2013 kl. 22:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
31.7.2013 | 14:29
SJÁVARKLASINN og Faxaflóahafnir eru nýtt ÁRÓÐURSTRÍÐI LÍÚ.
Fyrirtæki byggðarlaga á Faxaflóasvæðinu og kannski víðar eru nú innlimuð í SJÁVARKLASANN áróðurs og ofbeldisstofnun LÍÚ undir forsæti yfir Hag-Álfs útgerðinnar.
Eru byggðarlögin og fólkið sem í þeim búa tilbúin að samþykja það að fyrirtæki í þeirra eigu séu notuð í áróðurstríði útgerðarinnar gegn þjóðinni?
SJÁVARKLASINN sem stofnsettur er að undirlagi LÍÚ þar sem öll fyrirtæki sem vilja hafa viðskipti við núverandi kvótahafa verða að vera "meðlimir" og tilbúnir að setja nöfn sín við sóðalegar lyga áróðursauglýsingar LÍÚ sem dynja á fólki dagana langa. Enginn þarf að borga neitt bara leggja nafn sitt við auglýsingarnar. EINHVER borgar.
Ljótari hliðin á þessari SJÁVARKLASA vitleysu er ættað frá kvótapúkanum sjálfum prívat og persónulega er að enginn sem leyfir sér að hafa skoðanir og láta þær í ljósi getur verið starfsmaður fyrirtækja SJÁVARKLASANS.
Faxaflóahafnir og þar með eigendur þeirra eru ornir partur að þessu afkomu ofbeldi gegn fólki sem vissir aðilar innan útgerðinnar hafa stundað ljóst og leynt í 20 ár. Er þetta tækt?
![]() |
Skapar um 20 þúsund störf |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
30.7.2013 | 19:23
SA (LÍÚ) ættu að vera ánægð með að búið er að svelta ferðalaga ósiðið af almenningi
Þetta ætti að gleðja SA sem segja að almenningur hafi ekkert við há laun að gera þar sem fólk kunni ekkert með peninga að fara
og það auki bara þenslu ef skuldir fólk séu felldar niður eða laun hækkuð.
Aftur á móti eigi að láta kvótahirðina sjá um fjármunina þar komist þeir (fjármunirnir) í vinnu sérstaklega þegar skuldirnar séu afskrifaðir. Skuldir ríkissjóðs (afskriftirnar) draga nefnilega úr þenslu
![]() |
Fækkun í útgáfu vegabréfa |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |