Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
![]() |
Nýjar aflareglur staðfestar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 1.8.2013 kl. 22:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
31.7.2013 | 14:29
SJÁVARKLASINN og Faxaflóahafnir eru nýtt ÁRÓÐURSTRÍÐI LÍÚ.
Fyrirtæki byggðarlaga á Faxaflóasvæðinu og kannski víðar eru nú innlimuð í SJÁVARKLASANN áróðurs og ofbeldisstofnun LÍÚ undir forsæti yfir Hag-Álfs útgerðinnar.
Eru byggðarlögin og fólkið sem í þeim búa tilbúin að samþykja það að fyrirtæki í þeirra eigu séu notuð í áróðurstríði útgerðarinnar gegn þjóðinni?
SJÁVARKLASINN sem stofnsettur er að undirlagi LÍÚ þar sem öll fyrirtæki sem vilja hafa viðskipti við núverandi kvótahafa verða að vera "meðlimir" og tilbúnir að setja nöfn sín við sóðalegar lyga áróðursauglýsingar LÍÚ sem dynja á fólki dagana langa. Enginn þarf að borga neitt bara leggja nafn sitt við auglýsingarnar. EINHVER borgar.
Ljótari hliðin á þessari SJÁVARKLASA vitleysu er ættað frá kvótapúkanum sjálfum prívat og persónulega er að enginn sem leyfir sér að hafa skoðanir og láta þær í ljósi getur verið starfsmaður fyrirtækja SJÁVARKLASANS.
Faxaflóahafnir og þar með eigendur þeirra eru ornir partur að þessu afkomu ofbeldi gegn fólki sem vissir aðilar innan útgerðinnar hafa stundað ljóst og leynt í 20 ár. Er þetta tækt?
![]() |
Skapar um 20 þúsund störf |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
30.7.2013 | 19:23
SA (LÍÚ) ættu að vera ánægð með að búið er að svelta ferðalaga ósiðið af almenningi
Þetta ætti að gleðja SA sem segja að almenningur hafi ekkert við há laun að gera þar sem fólk kunni ekkert með peninga að fara
og það auki bara þenslu ef skuldir fólk séu felldar niður eða laun hækkuð.
Aftur á móti eigi að láta kvótahirðina sjá um fjármunina þar komist þeir (fjármunirnir) í vinnu sérstaklega þegar skuldirnar séu afskrifaðir. Skuldir ríkissjóðs (afskriftirnar) draga nefnilega úr þenslu
![]() |
Fækkun í útgáfu vegabréfa |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Alveg er fáránlegt að fylgjast með fréttum af því að skip hafi ruðst inní 12000 tonna Makrílkvóta og sópað í sig 1800 tonnum og landað aflanum í gúanó. Hverjir gera svona. Ég bara spyr???
Alls ekki má koma til að svona hegðun komi til með að skapa veiðireynslu.
Það sem er sérstakt við umsögn Kidda er að fiskur er á stóru svæði og margir halda að hér sé um annan stofn að ræða en þann sem kemur frá Írlandi. Þetta verður að rannsaka. Enginn má komast upp með að þagga niður umræðuna um að hér sé íslenskur stofn og þjóðin á kröfu á að þetta sé rannsakað því fyrir liggur að alltaf öðru hvoru hefur orðið vart við lítið magn af makríl S-Vestur af landinu.
![]() |
Mjög góð makrílveiði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
27.7.2013 | 08:09
Fá gúanó prammarnir meiri kvótaúthlutun eða tífaldast aflahlutdeild "gæða" bátanna?
Hugsa sér að verkefni EINOKUNAR útgerðarinnar í sjávarútvegi er orðin svo mikil að ekki er tími til að vinna aflann og gæðafisk dælt í gúanó til að komast í næsta verkefni.
Vitandi vits að þeir ráða öllu í úthlutun aflaheimilda eftir reynslu ætlast þeir til að fá meiri kvóta en skipin (útgerðirnar) sem datt ekki annað í hug en að vinna aflann til manneldis og gera þannig miklu meiri verðmæti úr fiskinum.
Er græðgin og vitleysisgangurinn ekki orðinn nógu mikill í kringum kvótann og fólk sem tekur stundarhagsmuni sína fram yfir hag þjóðarinnar sem enn rambar á barmi gjaldþrots eftir KVÓTAFROÐUHRUNIÐ.
Sameinumst um að afnema kvótann og taka upp siðaðra manna fiskveiðistjórnun sem skilar arðinum af veiðunum strax beint til þjóðarinnar.
24.7.2013 | 16:04
VAXANDI ATVINNULEYSI OG EKKI MÁ VEIÐA FISKINN !!!! Annað hrun og ekki má veiða fiskinn???
Er þessi andskotans vitleysa ekki genginn nógu langt? Nú þarf að afnema kvótakerfið strax og leyfa fólkinu að veiða og vinna fiskinn.
Það er komið nóg af sleikjuhætti við kvótahirðina. Það er ekki hægt að láta sauðspillta stjórnmálamenn sigla þjóðinni í annað hrun án þess að spyrna við fótum.
Til að bjarga fólkinu frá frekari skaða af hruninu sem FROÐAN sem kvótalánin olli verður að brjóta niður múra EINOKUNAR um sjávarútveginn. Afnema kvótakerfið þegar í stað og taka upp Sóknarmark Matthíasar Bjarnasonar með allan fisk á markað og leyfa fjölgun skipa í 85 skip til að byrja með.
Þetta mun færa þjóðinni þegar í stað meiri afla sem mun skiptast á fleiri hendur um allt land sem mun skapa það flæði fjár sem við þurfum til að hjól atvinnulífsins snúist eðlilega og ríkið geti rekið grunnþjónustuna sem við byggðum upp fyrir daga kvótakerfisins en núna er að hruni komin.
![]() |
Atvinnuleysið meira nú en í fyrra |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 25.7.2013 kl. 01:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.7.2013 | 06:51
"Þeir eru ennþá að deyja"
Fyrstu árin eftir að framsalið var lögleitt var viðkvæði þeirra útgerðarmanna sem stóðu saman að baki kvótanum og höfðu sett stefnuna á að nýta sér "EIGNARHALDIÐ" til fulls að ekki mætti auka við kvótann "því smá útgerðirnar væru ennþá að deyja".
Ekki veit ég hvernig fólk skilgreinir þessa hugsun sem fólst að baki þessari mannfyrirlitningu en mér varð óglatt að heyra mann sem í dag hefur verið í "fremstu röð" í íslensku atvinnulífi í 30 ár segja þetta. Hugsið ykkur að hérna voru menn haldandi á fjöreggi þjóðarinnar fiskveiðiheimildunum og voru vísvitandi að halda aftur af aflaheimildum til að svelta smáútgerðamenn til að selja frá sér alfaheimildirnar. Hversu marga menn eyðilögðu þeir? Hversu margar fjölskyldur liðu fyrir græðgina og frekjuna sem átti sér stað með þessu?
Núna eftir hrun hefur verið stanslaust góðæri í hafinu en við fáum ekki veiða fiskinn þar sem stjórn Hafró eins og fyrri daginn hefur neitað að auka við veiðarnar. Stjórn Hafró er enn skipuð sömu aðilum og fyrr frá útgerðinni og þeir hafa staðið gegn auknum afla en til hvers?
Hverjir eru núna ennþá að deyja?
Jú gott fólk þetta hyski er viljandi enn að spila sinn sorgar leik og horfir á þjóðina, fólkið missa ekki bara eigur sínar heldur hrynur lifistandardinn og velferðarkerfið en ekki má veiða fiskinn í sjónum því nú skal ganga milli bols og höfuðs á fólki sem vogar sér að standa gegn kúgurum sínum og vill brjóta niður EINOKUN EILÍTUNAR á sjávarauðlindinni. Það má ekki auka við aflaheimildirnar því óþekka þjóðfélagið er "ENNÞÁ AÐ DEYJA".
Stjórnmál og samfélag | Breytt 25.7.2013 kl. 01:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
23.7.2013 | 08:32
RÚSTIR í kjölfar kvótans. Tekjustofnarnir renna annað á meðan Velferðarkerfið hrynur.
Illa er komið fyrir íslenska VELFERÐAKERFINU sem síðasta ríkistjórn þóttist ætla að verja en gerði nákvæmlega ekki það sem þurfti að gera. Að ná aftur tekjustofnum þjóðarinnar úr höndum ræningjanna. Og núna þegar kjánarnir hafa kosið yfir okkur ríkisstjórn LÍÚ á að ganga endanlega frá margra ára þróun á heilbrigðiskerfi og lífeyriskerfi sem kostað hefur okkur skattgreiðendur ofurskatta síðastliðin 50 ár til að verja EINOKUN kvótahirðarinnar.
EINOKUN í sjávarútvegi er sannarlega orsökin fyrir því hvernig komið er fyrir okkur og hvers vegna við náum okkur ekki uppúr hruninu sem veðlaus kvótafroðan olli.
Nú spyr kannski einhver hvað ég sé að fara?
Það er í raun einföld skýring á hvers vegna við náum okkur ekki út úr hruninu eins og við gerðum hér áður fyrr þegar syrti álinn. EINOKUNIN hefur varið útgerðina sem fer sínu fram að vild. Með því að veðsetja kvótann og nota hann sem "eiginfé" hefur útgerðin kaf siglt útgerðinni í skuldum án þess að auka fjárfestingar í greininni heldur sett peningana í óskyldan rekstur og látið eignir félaganna drabbast niður. Þetta var gert með skipulögðum hætti til að búa til "HÓTUN" við stjórnvöld að ef hróflað yrði við kvótanum félli útgerðarhengjan "veð laus" á þjóðina.
Í annan stað hefur fáránleikinn að hafa LÍÚ til að ráða stjórn HAFRÓ valdið því að afkasta geta fisk stofnanna er hundsuð en verð á kvóta látinn ráða aflaúthlutunum. Þetta hefur kostað þjóðina milljarða á milljarða tap ofan í ónýttum afla. Og það sem verra er. Við höfum tapað því verðmætasta sem við áttum frá því fyrir kvótann MARKAÐSHLUTDEILDINNI. Skaðann af þessu ættu allir og þá ekki síst hag- og viðskiptafræðingar að skilja. Ekkert að skýla sér bakvið að ekki hafi mátt veiða meira því það hefur marg komið fram að fiskur sem ekki er veiddur "fer" en geymist ekki.
Með EINOKUNINNI og skuldunum rennur rentan af veiðum og vinnslu ekki lengur um æðar þjóðfélagsins heldur beint inní bankana og kemur þjóðfélaginu ekki að gagni. Ef okkur bæri gæfa til að snúa þessari vitleysu við og taka hér upp siðað fiskveiðistjórnkerfi eins og Sóknarmark Matthíasar Bjarnasonar með allan fisk á markað myndi verða hér alger viðsnúningur í okkar þjóðfélagi. Afli myndi aukast í Þorski, Karfa, Ufsa og Síld, skipum fjölga og nýir aðilar kæmu að vinnslunni. Þetta myndi færi arðinn nær fólkinu og skapa sjávarútveginu sinn fyrri sess í þjóðfélaginu. Hærri laun myndu strax skjóta rótum undir rekstur innlendra fyrirtækja i öllum stærðum, lífeyrissjóðir fengju sín innlegg og það sem kannski er mikilvægast ríkið fengi sína peninga sem þarf til að halda gangandi velferðarkerfinu sem við byggðum upp og rákum án vandræða fyrir kvótakerfið.
Góðu landsmenn látum ekki græðgina sem liggur að baki kvótakerfinu og skemmdunum sem það veldur ráða ferðinni lengur í þessu fallega landi sem okkur var fært. Skúrum burtu skítinn svo afkomendur okkar þurfi ekki að búa við nýlenduofbeldi þegar við föllum frá það yrði okkur til ævarandi skammar.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.7.2013 | 12:05
Það sem Þjóðin gefur það getur þjóðin tekið til baka.
Alveg er einstakt að fylgjast með nýjum stjórnarherrum hvernig þeir miklast af valdi sínu sem fengið var með vægast sagt vafasömum loforða flaum.
WE HAVE THE POWER!! Drundi í öðrum flokksformanninum úr sæti sínu þegar hinn stökk í pontu og öskraði og benti á menn og kvartaði undan misskilning sem nú viðgengst um alla ganga Alþingis.
Engum á lengur að dyljast að hér er ríkisstjórn LÍÚ og "skipulagða" valda öxulsins (eða eigum við að kalla það hakakrossins) sem liggur milli Skagafjarðar og Hornafjarðar og síðan Akureyrar og inní Eimreiðar Elítuna.
Aflanna sem hafa með skipulögðum hætti EINOKAÐ sjávarauðlindina, ruddust in í fjárhirslur ríkisskankanna með eign þjóðarinnar að veði. Hafa hrifsað völdin í opinberum stofnunum þar sem þeir raða sjálfum sér, vinum og hæfileikalausum vandamönnum í ofurlaunastöður.
Kjánar sem vissu ekki hvað þeir gerðu gáfu þessu liði forskot á annað heiðarlegt fólk sem vildi fara inná þing til að ganga erinda fólksins. En munum að eins og í stefnir núna þar sem þjóðinni birtist ein svika stjórnin frá fjórflokknum að það sem þjóðin gefur það getur þjóðin tekið til baka.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 7.7.2013 kl. 13:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)