Færsluflokkur: Bloggar
Það verður að afnema KVÓTANN annars verður enginn sátt. Það var sátt um sjávarútveg fyrir kvótakerfið og til að ná sátt verður að afnema kvótann og EINOKUNINA í greininni.
Gera verður gagngera úttekt á vinnuaðferðum HAFRÓ og slíta öll tengs stórútgerðanna við stofnunina. Hér hefur sannarlega verið framin glæpur gegn þjóðinni og komast verður að hvaðan og hvernig að því var staðið.
Óháð úttekt til að skapa sátt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Styður þú þessa andskotans vitleysu?
Að þeir sem fengu kvótann og eru með kvótalánum búnir eru að sölsa undir allar aflaheimildir þjóðarinnar séu að leigja þeim sem eru að reyna að bjarga sér í sinni atvinnugrein veiðiréttinn sem þjóðin á á 3000 kr fyrir hvert tonn.
Þetta er þvílíkt ofbeldi gagnvart sjómönnum og smærri útgerðum að jaðrar við hreinar pyntingar. Þú verður að ganga í lið með okkur sem strengt höfum þess heit að stoppa þessa GEGGJUN.
Stöðug fækkun fiskiskipa | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nú afnemum við kvótakerfið. Þessi andsk vitleysa er gengin langt langt út fyrir öll velsæmis mörk. Við sveltum ekki þjóðfélagið lengur til að viðhalda þessu arfa vitlausa kerfi.
Öllum starfsmönnum sagt upp | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hugsið ykkur þessa kvóta árs þvælu?
Breyttu árinu svo þeir hefðu sumarið til að sópa upp því sek ekki fannst af fiski á arinu. Þetta vitlausasta og skaðvænlegasta fiskveiðistjórnkerfi í heimi er búið að rústa markaðsstöðu Íslands og eyðileggja margar af blómlegustu byggðum landsins sem eru eins og draugabæir í dag.
Þjóðin hefur tapað 2800 milljörum á skortveiðistefnunni sem LÍÚ stjórnar og SFS áróðursdeildin dásamar. Hættum að vera vitlaus þjóð og hendum þessum kvótalörfum út úr sjávarútvegi og hleypum að fólki sem kann og getur unnið í frelsi með ábyrgð. Sjálfbæru sóknarmarki sem færa mun okkur aftur heilbrigðis og velferðarkerfið.
PS
Vill að ganni taka fram að Óli Ufsi sem rekinn var frá Granda fyrir að segja sannleikann um ruglið og siðspillingu LÍÚ kaffaði Granda 3600 tonna ufsakvóta og veiddi að jafnaði 3 x meira en þeir skipstjórar sem komu næst í ufsa veiðinni. Sama mátti segja um karfakvótann Snorra Sturlusonar / Viðey sem voru þeir stærstu á landinu. Verði þeim að góðu að þvælast um með skottið á milli lappanna þessum EINOKUNAR ösnum.
Keppast við að veiða fyrir kvótaáramót | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.8.2015 | 09:08
Eigum við ekki að fagna að færeyskur makríll fari til Rússa og rýmki um á öðrum mörkuðum.
Frábært að frændur okkar Færeyingar geti notað sér svigrúm til Makrílsölu til Rússa og rýmki þar með þörf fyrir makríl á öðrum mörkuðum.
Niðurstaða þessa ferlis skilur bara eitt eftir sig. Við höfum falið aulum sem búnir eru að gera sig að fíflum fyrir framan alþjóð EINOKUN á auðlindum þjóðarinnar. Aulum sem hlegið er að allstaðar á Norður hveli jarðar.
Skilyrðislust AFNÁM kvótans og upp taka Sóknarmarks með allan fisk á markað þar sem dagar verða seldir hæstbjóðanda mun færa þjóðinni aftur fólk sem kann og nennir til að reka sjávarútveg sem skila mun þjóðinni arðinum sem við eigum skilið út sjávarútvegi. Ekki aðalega í gegnum gjaldið heldur sérstaklega í flæð fjár um hendur fólksins um allt landið. Þar verða auðævi þjóðarinnar tii.
Mala gull á viðskiptabanninu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Vestamannaeyingar undir forystu Elliða ættu þegar í stað að lýsa yfir sjálfstæði og slíta öll tengsl við "Herra þjóðina".
Mikil tækifæri felast í hinum miklu djúpum Suður af Eyjum og eins ætti ekki að skorta ferðamenn. Yrði þá loksins að veruleika það veiðimanna þjóðfélag sem "framsóknarmennirnir" komu í veg fyrir fyrr á öldum þegar þeir fóru með stríð á hendur nokkrum "frjálsum" formönnum sem gerðu þar út og drógu þá uppá fasta landið og hnepptu þá í þrældóm.
Þrældóm sem aftur er að verða að veruleika sjómanna á Íslandi sem knúnir eru til að borga útgerðarkostnað fátækra útgerða sem kveinka sér undan olíu kostnaði og illri meðferð ríkissins.
Vestmannaeyjar ekki hluti Íslands? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.8.2015 | 20:49
Hér gengur enn einn hagfræðingurinn fram og predikar fyrir kvótahirðina lágt gengi
Við verðum að skilja að það eru hrein svik við þjóðina að falsa svona gengið eins og gert er. Það eru fjárglæframenn sem gera í því að STÝRA gengi krónunnar með því að taka peninga fólksins og nota til að halda niðri gengi krónunnar og KAUPMÆTTI launþega!!!
Gengishækkun ein helsta hættan | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Skrítið að Sjálfstæðismaðurinn Ellið í Eyjum skuli ekki fagna afnámi kvótakerfisins og styðja við bakið á utanríkisráðherra. Fá byggðarlög myndu hagnast meira á því að afnema kvótakerfið illræmda en Vestmannaeyjar.
Hótanir Gunnars honum til skammar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.8.2015 | 07:23
Ríkisstjóður þennst út og óðagróði útgerða allt á kostnað láglaunafolks og elllífeyrsþega.
Gott er að farið sé að vinda ofan af hruninu og þeim áföllum sem það olli fjölda manns. En hvað hefur þetta kostað þjóðina? Ég meina almenning í landinu?
Nánast hver einasti íbúðareigandi missti hluta eigna sinna til bankanna og sumir misstu allan eignarhlut sinni í íbúðunum og var hraktir út á götu með fjölskylduna. Ekkert vildi vinstri stjórnin gera til að koma til móts við þetta fólk og þá koma lyga stjórn LÍÚ sem ALLT ætlaði að gera en lét síðan fólkið borga sjálfum sér leiðréttingu lánanna. Ekkert var gert fyrir þá sem kastað var út á götu með fjölskyldur sínar.
Staðið var í vegi að gengið hækkaði þrátt fyrir hæsta heimsmarkaðsverð á fiski, lækkun olíu verðs og risa fjölgun túrista. Af hverju mátti þjóðin ekki fá leiðréttinguna sem fólst í hækkun gengisins?? Jú útgerðin sigldi nú í mesta góðæri markaða og í afla með allt of lágt gengi. Kaupmætti almennings var fórnað fyrir óðagróða þeirra sem ollu hruninu.
Þáttur ríkisstjórna í að halda niðri genginu er marg þættur. Í fyrsta lagi réðst Vinstristjórnin ekki gegn kvótanum og jók afla eins og allar upplýsingar bentu til að nauðsynlegt væri strax eftir hrunið. Þarna fór gullið tækifæri til að leiðrétta hlut alls almennings strax á fyrstu 3 árunum eftir hrun en komið var í veg fyrir það og útgerðin fékk frítt spil með allan ágóðann af góðærinu. Komið er fram að þessu náðið útgerðin (bankarnir) fram með beinum hótunum gegn ríkisstjórninni og furðulegt að það mál skuli ekki gert opinbert.
Síðan kom hörmunga ríkisstjórn LÍÚ og þá var nú heldur betur tekið til hendinni enda gjaldeyri farinn að flæða til landsins og þrýstingur á gengið til hækkunar stór jókst. Byrjað var á að reka og ráða Seðlabankastjórann til að endursetja hann í hvað væri forgangurinn. Að halda genginu niðri og gera allt sem hægt væri til að halda lágu gengi fyrir útgerðina og þrátt fyrir að enn ykist góðærið. Söguleg lækkun olíunnar og sífellt fleiri ferðamenn. Leppur LÍÚ var nú til höfuðs Seðlabankastjóranum með hótun um að vera gerður að bankastjóra við hlið hans.
Og nú kemur Fjármálráðherrann fram og segir að til séu svo miklir peningar að hann viti í rauninni ekkert hvað hann eigi að gera við þá vegna hræðslu við þenslu (of mikinn hag þinn).
1. Væri kannski hægt að setja upp fría heimsendingaþjónustu með matvæli til barnafjölskyldna sem hraktar voru út úr eigum sínum?
2. Eða væri það þenslu hvetjandi að setja allar eignir ÍBL og bankanna á leigumarkaðinn til að freista þess að ná niður skikkanlegri leigu í borginni?
3. Kannski svigrúm til að hækka persónuafsláttinn til að hinir lægst launuðu eigi möguleika á að ná endum saman?
4. Með heilbrigðiskerfið væri kannski hægt að skapa langveiku fólki lyf eins og lög landsins gera ráð fyrir að gert sé??
Nei þeir sem hafa borið þessa þjóð út úr hruninu sem óða græðgi útgerðarinnar olli eiga ekkert að fá. Hér er grímulaust verið að byggja eitt ljótasta þjóðfélag Evrópu þar sem eigur almennings í velferðarkerfinu eru eyðilagðar og auðævi landsins EINOKAÐAR í höndum þeirra sem síst skyldi eða þjófa og ræningja.
Viðbjóðurinn sem við verðum vitni að frá þessu veruleikafirta fólki er engu lík.
Afgangur og skuldahreinsun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hey guys það er ekki allt í lagi hérna hjá okkur.
Ekkert víst í lífinu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)