Færsluflokkur: Bloggar

Flokksskrípi kemst í ríkisstjórn þá eigi að umturna heilu stofnunum og þrælsetja fólk

Alveg er það einstakt að við skulum líða að Framsóknar hy..ið komist upp með að nota stöðu sína á þingi til að ráðast á ríkisstofnanir og rífa þær og fólkið sem þar vinnur upp með rótum og fleygja þeim út í óbyggðir.

Hver haldið þið að vilji flytja úr Reykjavík í Skagafjörð? Af hverju ekki bara út í Eldey?

Gott að Borgarstjórn ræðst gegn þessu og ver okkar verðmætu stofnun Landhelgisgæsluna og það góða fólk sem þar starfar. Enginn á svo illt skilið að vera fluttur hreppaflutningum hvorki í Skagafjörð né til Akureyrar kommon.

DRÖGUM HAUSINN ÚT ÚT RASSGATINU og mótmælum Framsóknar hy..inu úr Skagafirði á Austurvelli í dag.


mbl.is Leggjast gegn flutningi Gæslunnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Píratarnir standa illa þversum í kvótahirðinni og skoffíninu á Akureyri.

"Freki Kallinn" spólar í æðiskasti og lemur leppa sína áfram í að tryggja eitthvað út úr Makrílfrumvarpinu sem er að snúast illa í höndum þeirra og eyðileggja framgang sáttaleiðarinnar sem mátti aldrei verða.

Sáttaleiðin og nýtingasamningar voru bara til að búa til verðmæti fyrir KVÓTABÖRNIN sem hvorki nenna né þurfa að vinna. Verðmæti úr OKKAR vösum.

Setjum Freka Kallinn í GAPASTOKKINN a Austurvelli þar sem þjóðin getur hætt hann og spottað. Ætli lækki ekki í honum rostinn.


mbl.is Jón Gunnarsson „strikes again“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hver haldið þið að hafi ekki sætt sig við að bakkað yrði með Makrílfrumvarpið?

Ekki einu sinni spyrja einu sinni af hverju þessi endaleysa er komin upp á þinginu. Hér er Freki Kallinn á Akureyri (KVÓTAPÚKINN)sem búinn er að vera spólandi síðan þjóðin dirfðist að skrifa undir áskorun á Forsetann. Þingmenn og druslur hans hjá SFS hafa ekki haft undan að reyna að blíðka kvikindið en ekkert gengur.

Eigum við ekki að fara að viðurkenna að hér er einn maður sem ræður öllu í þessari rikisstjórn LÍÚ og ætlar að ráða öllu í landinu. Maðurinn sem hótaði Dalvík, maðurinn sem hótaði að sigla flotanum í land og maðurinn sem hélt flugeldasýningu og skrautshow á Akureyri til að sýna okkur hver hann er og hvernig á að tala við þjóðina.

Ríkisstjórn LÍÚ út úr þinghúsinu og Gapastokkur á Austurvelli væri hentugur fyrir þetta GERPI.


mbl.is „Enginn vilji til samninga“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta er bara viðbjóðslegt þjóðfélag GRÆGÐINNAR

Hér situr versta ríkisstjórn allra tíma og hyglar útgerðar....unni ó kostnað alls launafólks og sú krísa sem heilbrigðiskerfið er búið að búa við frá hruni nær ekki nokkurri átt.

Burtu með þessa ríkisstjórn LÍÚ sem hefur það eitt markmið að skríða fyrir kvótahirðina og hugsar ekkert um þá eyðileggingu sem hagsmunagæslan hefur á þjóðfélagið.


mbl.is Uppsagnarbréf hjúkrunarfræðings
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Geggjunin heldur áfram í stjórn fiskveiða og EINOKUNIN heldur í skjóli X-D

Þessar fréttir sýna okkur sem þjóð að við verðum að komast út úr kvótakerfinu og út úr EINOKUN LÍÚ. Norðmenn hnetu þessari 20% reglu fyrir nokkrum árum og aldrei hefur verið meiri fiskur við Noreg. Það er ekkert sem sannar að hér hafi nokkru sinni verið stunduð ofveiði og her er bara verið að koma í veg fyrir að við nýtum stofnanna og aukum útflutning til hagsbóta fyrir svelta þjóð.

Allt segir okkur sjómönnum að hér ætti að vera hægt að veiða 400 þus tonn + af þorski og stór auka veiðar á karfa og síld en útgerðin kemur í veg fyrir það með yfirgangi.

Við erum á villigötum og verðum að komast frá þessu.


mbl.is Hæsta aflamark á þessari öld
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

BÍDDU!!!! Er þetta þingmaður Sjálfstæðisflokksins....?? Snýr ekki eitthvað öfugt?

Sjálfstæðisflokkurinn stóð vaktina þegar Reykvíkingar brutust út úr EINOKUN MS á sínum tíma og gekk síðan eftir að frelsi réði ferð í landbúnaði eins og annars staðar í atvinnulífinu fyrir Davíð.

Það var þegar Davíð Oddsson SVEIK kosningaloforð og slagorð Flokksins 1995 "að moka Framsóknarflórinn" sem gert var eitt heildstætt samkomulag sem fól í sér "kvóta" á framleiðslu landbúnaðarvara og kvótinn í sjávarútvegi var fast settur.

Þetta voru stærstu svik sem þjóðin hefur mátt þola af hendi forystumanna stjórnmálanna og verður ævarandi skömm þeirra sem fram hafa haldið þessari stefnu í stjórn landsins sem kostar almenning í landinu mikið.


mbl.is Tíma sóað í að bíða eftir skýrslu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjómannadagurinn er og verður vettvangur málefna Sjómanna til góðs eða ills.

Við í Sóknarhónum vöktum athygli á nauðsyn þess að afnema kvótann og EINOKUN útgerðarinnar við hátíðahöldin á Sjómannadaginn. Gerum okkur grein fyrir að öll okkar vandamál væri auðleystari ef við afnemum kvótakerfið og EINOKUN útgerðarinnar.

Í dag líða sjómenn fyrir það að útgerðin hefur komist upp með að lækka kaup sjómanna á fiskiskipaflotanum með því að taka frá óskiptu alfaverðmæti áður en kemur til lögboðinna skipta við sjómenn. Má segja í dag að sjómenn taki þannig þátt í útgerðarkostnaði án þess að fá part í ofsagróða útgerðar.

Sama er siðan uppá teningnum þegar ný skip koma í flotann. Þá hirðir útgerðin núna 10% nýskipagjald af sjómönnum í 7 ár án þess að áhöfnin eignist réttilega hlut í skipinu. Þennan viðbjóð og yfirgang gegn sjómönnum verður að stöðva. Svona ofbeldi er ekki einka mál sjómanna heldur er þetta málefni okkar allra Íslendinga.

PS Mótmæli okkar fóru í alla staði vel fram og blásum við á öll ummæli um annað.


Þekkt "vandamál" í ferðamannaborginni Las Palmas höfuðborg Gran Canarias.

Götur hinnar gömlu borgar Las Palmas de Gran Canarias eru mjög þröngar og fæst hótelin hafa innkeyrslu. Rúturnar dreifa farþegum á lítil hótelin á hverjum degi. Bílstjórar hraða sér út og í hvelli er töskum sippað inn eða út úr rútunum og all aboard! Og eina ráðið sem virkar ágætlega heitir þolinmæði.

Byrji menn að þeyta hornin í óþolinmæði inní miðborginni mega þeir eiga von á að fá egg í framrúuna frá örgum íbúa.

Ferðamenn eru gangandi gjadeyrir sem nýtist allri þjóðinni og gæti hækkað gegið og þannig kaupmátt launa okkar allra.


mbl.is „Frekjukallahegðun“ á Snorrabraut
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mikilvægt að raungengi krónunnar styrkist EKKI?????

Hvað er að gangi???

Það átti að vera aðal verkefni eftir hrun að STYRKJA krónuna og leiðrétta þar með skaðann af hruninu á kjör fólks í landinu. Nú segir fjármalaráðherra að koma eigi veg fyrri að gengið hækki ekki og auki þar með kaupmátt laun- lífeyris og bótaþega.

Óða gróði útgerðarinnar byggir á 50% gengisfellingunni og aukinn útflutningur hefði hækkað gengið en komið hefur verið í veg fyrir að við fenjum meiri afla og allt gert til að ljúga að þjóðinni að þrátt fyrir hvert stór afla árið a fætur öðru hefur leyfilegur hámarks afli ekki verið aukinn.

Nú verður grímulausri hagsmunagæslu fyrir útgerðina að fara að linna. Þessi aðför að kjörum fólks í landinu sem borið hefur að fullu skaðann af hruninu verður að hætta núna. Við verðum að afnema EINOKUN á fiskveiðunum og rétta af þj´ðfélagið. 6 ár eiga að kenna okkur að hér er sannarlega vitlaust gefið og enn á að láta kné fylgja kviði í kúgun á almennum borgurum í landinu.

Kjósendur verða að skilja að allir sem nefna kvóta í sambandi við stjórn fiskveiða ætla grímulaust að vinna gegn þeirra hagsmunum og hagsmunum þjóðarinnar í heild.


mbl.is Losun hafta að bresta á
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vestmannaeyingar velkomnir í Sóknarhópinn ... og málið til Brussel

Að sjálfsögðu áttu Eyjmenn forkaupsrétinn.

Þessi viðbjóðslega græðgi og yfirgangur varinn af HÆSTARÉTTI er gersamlega ólíðandi hér í Vestamannaeyjum og í Hafnarfirði. Held að Vestamannaeyingar ættum að snúa við blaðinu og koma í hóp okkar sem berjumst gegn kvótanum og eyðileggingu hans.

Það ætti sannarlega að standa Vestmannaeyjhentar_ekki_bygg_arstefnu.jpgingum  næst því í Vestamannaeyjum er kjarni harðduglegra sjómanna sem sannarlega kunna til verka til sjós og er atvinnan í blóð borin. Sóknarmarkið á sínum tíma virkaði vel í Vestmannaeyjum eins og síðan kvótaúthlutunin sýnid síðar.

Þjóðin á að skilja hvílíkt óréttlæti er fólið í því þegar lög sem sett voru til að hamla því að atvinnurétturinn sé brotinn svona á fólki og byggðarlagi af HÆSTARÉTTI sem sannarlega gegnur hér gegn landslögum og mannréttindum. Virðist svo að HÆSTIRÉTTUR sé gengin inn í dys kvótahirðarinnar og er þá heldur betur kominn tími til að hreinsa til í þeirri stofnun eins og á rotnu Alþingi Íslendinga.

Þetta mál eins og Hafnarfjarða málið eiga að fara fyrir mannréttindadómstól Evrópu og láta réttlætið ráða því hvort hér geti endalaust vaðið uppi menn sem sjá sér ekki fyrir fyrir græðgi og yfirgangi. Einhvers staðar verður þessari endaleysu kvótans að ljúka og nú er mál að lynni.


mbl.is Bærinn átti ekki forkaupsrétt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband