Færsluflokkur: Bloggar
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
ALLT sem útgerðin er að bralla er þaul skipulagt og gert til að villa um fyrir almenningi í baráttu þeirra að komast út úr einnar árs reglugerðum varðandi kvótann. Þeir vilja koma í veg fyrir að ein ríkisstjórn geti afnumið kvótann eins og núna er.
Síðan fyrir kvótakerfið hefur alltaf verið notast við reglugerðir til eins árs. Í sóknarmarkinu var í desember ár hvert gefin út reglugerð varðandi þorskdaga og sama hefur verið gert í kvótakerfinu þar sem ráðherra samkv 3 grein laga um stjórn fiskveiða gefur út reglugerð til eins árs þ.e. 1 sept til 31 ágúst. Svo það er enginn ómöguleiki í því að hverju ári sé stjórnað með reglugerð.
Þegar útgerðin segir að það þurfi aukinn "fyrirsjáanleika" (eitt af mörgum nýyrðum) til meiri fjárfestinga í útgerðinni á það ekki við um að auka fjárfestingu í skipum og húsum heldur að geta selt kvótann á hærra verði.
Hvað varðar skip og tæki er yfirdrifið nóg og hefur alltaf verið að hafa veiðileyfi við Ísland.
Við þjóðin verðum að vera á varðbergi því að það er sannarlega verið að reyna að véla veiðiréttinn af þjóðinni og valda þannig öllum Íslendingum varanlegum fjárhagsskaða sérstaklega komandi kynslóðum sem munu búa við skert tækifæri allt sitt líf.
Telja ráðherra hafa brotið lög | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Furðuleg stefna sem Samfylkingin (Alþíðuflokkurinn) hefur tileinkað sér í kvótamálinu er í engu samræmi við "gildi" flokksins.
Þessu eiga Samfylkingarmenn að breyta og taka upp "Sóknarmark með allan fisk á markað".
Nú þegar komin er fullkomin leið til að bjóða út sóknardaga til fjögra mánaða í senn þar sem hámarks verð verður (markaðs verð) innheimt við löndun á mörkuðum. Þar sem allir standa jafnt að vígi og allir borga jafnt verð "hámarks markaðs verð" hverju sinni.
Breytið sjávarútvegsstefnunni Samfylkingar fólk og Íslendingar munu byrja að hlusta á ykkur aftur.
Hætti að tala sem gamaldags flokkur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
22.6.2015 | 15:57
Hef aldrei skilið skattlagningu á vasa útlendinga. Þeir borga skatta heima hjá sér.
Hvers vegna þessa skattagræðgi alltaf hreint? Eins og við borga útlendingar skatta heima hjá sér og við borgum skatta hérna.
Við höfum verið einstaklega lánsöm að hingað hafa streymt ferðamenn og ekki síst vegna brautryðjendastarfs manna eins og Gríms í Bláa lóninu sem er orðið vörumerki um allan heim.
Tökum útlendingum vel og bjóðum þeim að kaupa hér þjónustu og vörur en látum vera að nýðast á veskinu þeirra með skattheimtu.
Gera Bláa lónið tortryggilegt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
22.6.2015 | 07:43
Lögreglan á að læra að umgangast fólk ekki skjóta það
Fasisminn sem upphófst og var fylgi fiskur "hinna Kristilegu gilda" í Sjálfstæðisflokknum er enn að grafa um sig innan lögreglunnar. Það hlýtur að verða hlutverk komandi stjórnvalda að brjóta niður þessa byssu og ofbeldisvopna væðingu sem grefur um sig innan lögreglunnar.
Taser byssurnar eru miklu hættulegri en af er látið eins og mörg nýleg dæmi sýna og hafa bæði drepið og limlest fólk varanlega. Ekkert í íslensku þjóðlífi gefur ástæðu til að halda að lögreglan þurfi á þessum tólum að halda nema þá til að DREPA fólk sem er að mótmæla "vanhæfum ríkisstjórnum" á Austurvelli sem fer meikið í taugarnar á Eimreiðar liðinum um þessar mundir.
Beita sér fyrir upptöku rafbyssna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Gaman að því og mikilvægt þegar áhrifamiklir ritstjórar fjalla um landið okkar (já ég er líka Íslendingur) á jákvæðan hátt.
En skrítið að sjá þegar ferðamenn heyra sannleikann um viðbjóðslega spillinguna í kringum íslenskan sjávarútveg og mafíustarfsemina í kringum landbúnaðinn.
Mikið væri Ísland miklu fallegra land ef við losum okkur við Framsóknarflokkinn.
Ísland mest töfrandi land í heimi? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.6.2015 | 14:22
Viðbjóðsleg valdagræðgi KVÓTAPÚKANS krystallast í hegðun Ráðherra.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.6.2015 | 17:01
Má tala um Jesus á Jólunum?? Hræsni varandi fólkið á 17 Júní
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.6.2015 | 23:32
Eftir furðulega umfjöllun kemur hér ein grein sem gerir mótmælunum skil
Alveg er forkastanlegt hvernig ofsa fylgismenn handónýtrar ríkisstjórnar LÍÚ hafa komist upp með í fjölmiðlum að skrum skæla friðsöm og fyllilega réttlætanleg mótmæli fólksins á afmælisdegi þjóðhetjunnar Jóns Sigurðssonar.
Mér verður í raun flökurt að lesa það sem þetta fasíska hyski hefur skrifað um meðborgara sína sem að veikum mætti bendir á óréttlætið sem það hefur orðið fyrir á meðan ónýt ríkisstjórn heldur sig við hagsmunagæslu fárra á kostnað þjóðar.
Kæra þjóð við eigum í stríði við ljótt fólk í Guðana bænum förum að gera eitthvað. Í það minnsta náum í Nýju Stjórnarskránna okkar PLEASE.
Gagnrýnin byggð á misskilningi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Hvaða geggjun var það sem komst af stað í kjölfar stjónrar Davíðs Oddssonar og búsáhalda byltingarinnar að fara að vélbyssuvæða lögregluna? Var það "FYRIRSTJÁANLEIKINN" sem alltaf er verið að tala um?
Fari þetta hyski Norður og niður.
Vopnin burt fyrir helgi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)