Hvorki eru til peningar til að gera við illa farnar götur Borgarinnar né þrífa drulluna eftir veturinn en Hjálmar Grimmi óvinur einkabílsins kemst upp með að keyra í gegn ótímabærar og einnig fáráðlegar framkvæmdir fyrir hjólastíga.
Þessar framkvæmdir sem einhverra hluta vegna eru að fara í gang núna hafa engan tilgang eða eru á einhvern hátt nauðsynlegar fyrir framgang Borgarinnar. Það eru ekki til peningar fyrir þessum framkvæmdum (allur peningurinn tekinn að láni) á sama tíma og aðrar nauðsynlegar framkvæmdir um alla Borgina eru látnar sitja á hakanum.
Sama er síðan hægt að segja um aðrar reiðhjólastíga framkvæmdir. Eftir gott framtak í lagning hjólastíga er þessi endaleysa komin langt út fyrir alla skynsemi. Hraðbrautin meðfram Bústaðarvegi og yfir Elliðaárdalinn er hrein geggjun og sama má segja um framkvæmdir í neðra Breiðholti.
Afhverju getur Samfylkingarfólk aldrei lært að bera virðingu fyrir skattpeningum almennings sem aldrei eiga að fara í vitleysu eins og hér er gert.
Framkvæmdir við Grensásveg hafnar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.