Það er nákvæmlega ekkert sem réttlætir þrengingu Grensásvegar en allt sem mælir gegn því að gata sem búín er að gegna hlutverki sínu vel og er enn í fullri notkun við að greiða fyrir þeim umferðarþunga sem fer um götuna á hverjum morgni, í hádeginu og um eftirmiðdaginn.
Að Borgarstjórn sem er með allt niður um sig í fjármálum Borgarinnar skuli líta á þessa framkvæmd sem forgangsmál er bara geggjun og svívirða við skattgreiðendur.
Þrenging Grensásvegar óskiljanleg | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkar: Bloggar, Viðskipti og fjármál | Facebook
Athugasemdir
Já, en Ólafur minn, fáráðlingar hafa alveg leyfi til að vera fáráðlingar og eyða í vitleysu, einkum þegar þeir eru að öðru leyti búnir að spila rassinn úr buxunum með eyðslusemi á öðrum sviðum líka.
Jón Valur Jensson, 27.2.2016 kl. 04:59
Annars er alveg ljóst, að þetta er casino-hugarfar hjá mönnunum.
Jón Valur Jensson, 27.2.2016 kl. 05:00
En það sorglegasta við þessar réttmætu aðfinnslur ykkar er þó sú kaldhæðnislega staðreynd, að þessi vanhæfi og spillti borgarstjórnar meirihluti er lýðræðislega kosinn til valda – af okkur sjálfum.
Jónatan Karlsson, 27.2.2016 kl. 11:06
Nei, öllu heldur: Af blekktum kjósendum.
Hvar eru t.d. allar íbúða-þúsundirnar hans Dags? Ekki byrjað að byggja eina einustu!
Jón Valur Jensson, 27.2.2016 kl. 12:08
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.