17.2.2016 | 08:18
Sannleikanum er hver sárreiðastur. Borgarstjórn á kafi í bulli og borgin á kafi í snjó.
Þetta er nú alveg fáránlegt að Borgarstjórnar meirihlutinn treysti sér og borgarbúum ekki til að sjá sannleikann um "vondan" rekstur Borgarinnar og fáránlegar fjáraustur í tóma vitleysu á meðan börn og gamalmenni í borginni fá lélega þjónustu vegna fjárskorts.
Furðulegt að sjá hóp af kosnum fulltrúum neita að horfast í augu við staðreyndir og bregðast ekki við erfiðleikum þegar í stað heldur vaða áfram í sjálfshóli og eigingirni.
Það ver að vera erfitt að sjá hvor er lélegri í sinum verkum. Versta ríkisstjórn allra tíma eð versta Borgarstjórn allra tíma???
Já ég spyr líka. Hvað eru Píratar að gera með að styðja og vera hluti af þessum fáránleik sem á sér stað í stjórn Borgarinnar???
PS Allt á kafi í snó sem alls ekki á að moka NEMA HJÓLASTIGARNIR að sjálfsögðu sem voru mokaðir kl 0500 í morgun??? Sá einhver þúsundir manna geysast um á hjólum í morgun :o ???
Halda upplýsingum frá borgarbúum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.