30.9.2015 | 11:06
Loksins loksins .... kjósendur Sjálfstæðisflokksins segja loksins hingað og ekki lengra.
Þökk sé Guði.
Loksins virðist sem kjósendur Sjálfstæðisflokksins séu að rumska. Búnir að vera eins og heilalausar druslur í 20 ár eða síðan 1995 þegar Davíð Oddsson sveik flokkinn og leiddi til vara útgerðarbullurnar sem notað hafa Sjálfstæðisflokkinn af öllum flokkum til að standa vörð um EINOKUN í sjávarútvegi.
Með því að ganga gegn kvótahirðinni og Eimreiðarklíkunni og henda Lyga Hönnu út úr áhrifastöðu í flokknum er loksins búið að taka skrefið til að andæva gegn spillingunni í kringum Davíð og druslurnar sem honum fylgja.
Sjálfstæðisflokkurinn verður rassskelltur í næstu kosningum eins og hann hefur unnið til með spillingu og grímulausri hagsmunagæslu. En með kosningu Ólafar Nordal í varaformannstólinn er dregið úr þeim skell.
Skorað einróma á Ólöfu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkar: Bloggar, Viðskipti og fjármál | Facebook
Athugasemdir
Nú fer vonandi eitthvað að ske nafni :)
Ólafur Unnarson, 1.10.2015 kl. 16:21
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.