23.1.2015 | 09:21
EINOKUN er orsök misskiptingar ekki skattlagning. SF er enn úti á túni.
Misskiptingin í þjóðfélaginu er óþolandi en hverjir voru í síðustu ríkisstjórn sem setti þessa stefnu með að færa útgerðinni 50% gengisfellingu á silfurfati.
Þeir sem halda að þeir leysi þessa misskiptingu með auknum sköttum eru bara úti á þekju.
Það þarf að afnema EINOKUN í sjávarútvegi og stórauka veiðar þar sem allir sitja við sama borð varðandi veiðar og vinnslu með sóknarmarki og allan fisk á markað.
Þannig dreifum við arðinum af auðlindunum í hendur allra þeirra mörgu hringinn í kringum landið sem nenna að vinna og leggja sig fram um a standa sig í samkeppninni um að skila bestri afkomu. Flæði fjár skapar fleiri skattgreiðendur og auknar tekjur í ríkisins.
Að gefa fáum EINOKUN eins og SF gerir og ætla svo að skattaleggja þá uppí rjáfur til að ná í pening er bara hreint bull. Stjórnmálin á Íslandi eru handónýt og kjósendur verða að gera sér grein fyrir að hér verður að gerbylta vali á fólki á þingið.
Þetta er hættuleg braut sem við erum á | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkar: Bloggar, Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 09:32 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.