26.10.2014 | 06:41
????"lögbundin atvinnuréttindi handhafa aflaheimilda"??????
Eitt sem ég rakst á í ísmeygilegum lyga og fals áróðri LÍÚ manna í viðleitni þeirra til að EIGNAST nýtingaréttinn á fiskveiðum við Ísland var þessi málsgrein "lögbundin atvinnuréttindi handhafa aflaheimilda". Þetta leyfir þetta "lið" sér að halda fram þótt að skýrt sé í lögum um fiskveiðar að úthlutun kvótans á sínum tíma sé krystal tær og myndi ekki nein réttindi til eignar eða EINOKUNAR.
Kvóti úthlutaður til eins árs í senn og þar með enda þessi réttindi.
Úthlutun veiðiheimilda samkvæmt lögum þessum myndar ekki eignarrétt eða óafturkallanlegt forræði einstakra aðila yfir veiðiheimildum.
Það má segja að þetta ákvæði í lögum um stjórn sé síðasta hálmstrá þjóðarinnar til að SEGJA þessum mönnum að þeir geti ekki EIGNAÐ sér og fjölskyldum sínum NÝTINGA EÐA EIGNA RÉTT að fiskinum í sjónum.
Þjóðin verður að skilja að það er án nokkurs vafa eyðilegging kvótakerfisins og EINOKUNIN sem því fylgir sem leitt hefur okkur í þau efnahagslegu öngstræti sem við nú erum í og kemur í veg fyrir að við náum aftur að byggja okkur upp sem velferðarþjóð við hlið frændþjóða okkar.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 06:43 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.