PERSÓNUNÝÐI beytt til varnar kvótanum

Elíta Framsóknar, Kvótahirðin og Eimreiðin hafa í gegnum árin beitt menn alls konar aðferðum til þess að sverta þá og "eyðileggja" eins og það er kallað innan þeirra raða.

Þessi viðbjóðslega hegðun hefur verið að ná upp á yfirborðið þar sem menn eru orðnir bíræfnari eftir að hafa komist upp með að eyðileggja afkomu manna og gera þá burtræka úr heilu atvinnugreinunum. 

Um daginn var þó toppnum náð með aðförina að einstaklingum þegar ráðherra sendi yfirmanni annars höfundar undirskriftasöfnunnar gegn lækkun veiðigjaldsins e-mail.

En þessu er ekki lokið því staðreyndin er sú að meðlimir innan kvótahirðarinnar sem hafa alla tíð litið á hið frjálsa orð sem ógn við áframhald kvótans og spillinguna sem honum fylgir. Menn sem leyfa sér að segja sannleikann hafa verið hund eltir með níði af verstu sort og ekki er hikað við að beita lygum og njósnum til að koma höggi á viðkomandi. Er svo komið að þúsundir manna þora hvergi að láta skoðanir sínar í ljós vitandi að þeim yrði í engu eirt ef upp kæmist um skoðanir þeirra. 

Tilgangur minn með þessum pistli er að biðja menn sem hlusta á skíta áróðurinn sem dreift er af rottum bak við tjöldin um menn sem segja sannleikann um kvótann að hafa samband við viðkomandi og forvitnast um hagi þeirra í stað þessa að lepja upp drulluna sem vellur út úr skíthælum kvótahirðarinnar sem láta nota sig í að dreifa ósómanum og lygunum um saklaust fólk. 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband