13.6.2013 | 10:26
Ráðaleysi nýrrar Ríkisstjórnar sem er föst í klafa hagsmunagæslu
Hvenær skyldum við eignast ríkistjórn skipaðri fólki sem kanna að sjá lausnir þegar vandi steðjar að. Nú þegar menn væla um 27 milljarða gat í fjárlögum er það fyrsta sem menn sjá eru tannviðgerðir barna?
Aukum tekjurnar og sláum tvær flugur í einu höggi eða reyndar þrjár.
50 þús tonna aukning á þorski, 40 þús tonna aukning á ufsa og 20 þús tonna aukning á karfa verði seldar hæstbjóðendum á árinu. Einungis þeir sem ekki eru í áskrift á aflaheimildum fá að bjóða í og mega eiga sem nemur einu fullfermi af aflaheimildum í hverri tegund.
Ávinningur:
Brotist út úr kvóta hugsuninni og opnar fyrir nauðsynlega nýliðun í greininni.
Fjárlaga gatinu bjargað.
Tönnum barna bjargað (og tekjum tannlækna).
Stórauknar gjaldeyristekjur.
Ráðist í að endurheimta markaðshlutdeild sem útgerðin er búin að glutra niður.
Stóraukið flæði fjár um þjóðfélagið sem mun virka sem drif fjöður á almennt athafnalíf í landinu og skaffa auknar tekjur fyrir ríkissjóð.
Lesandi góður ekki hugsa "þetta er ekki hægt" if there is a will there is a way. Þarf ekki annað en að setja þetta í framkvæmd og byrja. Blásum á stanslausa neikvæðni LÍÚ og setjum þá á hliðarlínuna þar sem þeir eiga heima með sinn afturhalds áróður og undirförult plott.
Sérstaka veiðigjaldið lækkað í nýju frumvarpi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkar: Bloggar, Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 12:56 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.