HREINT VALDARÁN FER FRAM Á ALÞINGI

Það er komið í ljós að á Alþingi gengur ekki erinda fólksins í landinu. Kvótahirðin er búin að ná tangarhald á meirihluta þingmanna í þeim tilgangi að tryggja sér ævarandi nýtingarrétt á fiskimiðunum. 

Að koma nýju stjórnarskránni fyrir kattarnef (það er ekkert sem heitir frestun) er partur í plotti stórútgerðanna og síðan verður stór hættulegt kvótafrumvarp samþykkt þrátt fyrir látbragðsleik í kringum það til að villa mönnum sýn.

Þeir sem leggja á sig að lesa kvótafrumvarpið sjá að í niðurlagi 11 gR. er gert ráð fyrir að sett verði í lög að kerfið verði óbreytt eftir þau 20 ár sem EINOKUNIN á að gilda.

Tökum vel eftir öllum þeim sem styðja þetta ferli því hér eru sögulegir atburðir að eiga sér stað. Alþingi í stríði gegn sinni eigin þjóð til að festa í sessi spillingu og einokun sérhagsmuna. 


mbl.is Sammála um stjórnarskrármálið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband