ÞAÐ ÞARF MIKINN SNILLING TIL AÐ HAFA HALDIÐ SAMAN STJÓRN MEÐ VG

Jóhann er sú sem er að halda þjóðinni frá enn meiri kreppu og gerir það án þess að njóta arðs af auðlindinni. Hvers vegna hún getur ekki, vill ekki eða fær ekki að breyta stefnunni í kvótamálinu er óskiljanlegt. Ef hún bæri fram frumvarp um tafarlaust afnám kvótakerfisins og tæki upp sóknarmark (fordæmi er fyrir slíku) myndi hún fullkomna feril sinn sem stjórnmála manneskja og verða þjóðhetja á borð við lansins bestu syni.

Baktrygging slíks frumvarps yrði að sjálfsögðu "þjóðaratkvæðagreiðsla" í anda Stjórnlagaráðs  sem tryggja myndi slátrun á kvótaruglinu. Sóknarmark myndi á örskömmum tíma koma hjólum atvinnulífsins á fulla ferð og með markaði fulla af fiski í hverju krummaskuði sæjum við hagvöxt fólksins sem aldrei fyrr.

En Jóhanna er umkringd karlpungum sem eru að ota sínum tota og stanslaust í skíta pólitík skeytandi engu um hag þeirra sem þeir sitja í umboði fyrir. Miðað við flestar karl druslurnar sem ég sé á þinginu glóir Jóhanna eins og eir af gulli hvað varðar heiðarleika og drengskap.

 

 


mbl.is Jóhanna á lista yfir pólitíska hugsuði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband