9.7.2011 | 09:40
Á þessari endaleysu aldrei að linna???
Er ekki nóg að við erum að nýta undir helmings veiðigetu þorskstofnsins á nú að fara beita sömu aðferðum við Ýsu og Ufsa???
Hvað vita þessir vitleysingar um Ufsann??? Nákvæmlega ekkert. Eina ástæða þess að verið er að halda aftur af ufsa kvótanum og setja hann í aflamark er til að halda uppi verði á Ufsa kvóta Granda sem aldrei hefur getað náð að veiða sinn ufsakvóta. Til að halda uppi leigu verði fyrir þennan kvóta eru settar takmarkanir á úthlutanir.
Þessi endaleysa ætlar aldrei að linna þótt búið sé að eyðileggja samfélgið með þessari vitleysu og við séum orðin fátækasta ríki norðurlanda. Hvers vegna er þessi vitleysa ekki stöðvuð? Lifum við ekki í upplýstu þjóðfélagi?? Á að láta fámennisklíku LÍÚ halda áfram að eyðileggja afkomu þessarar þjóðar.
Íhuga útvíkkun aflareglu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.