Samþykkt að gera útekt???? Hér hefur verið framinn glæpur sem öllum er augljós en Sjávarútvegsnefnd ætlar að gera úttekt á áhrifum kerfisins á mannlífið.
SÉRSTAKUR SAKSÓKNARI ÞARF AÐ RANNSAKA....
- var/er mönnum innan greinarinnar hótað ef þeir fjölluðu opinberlega um kerfið?
- voru ritstjórar þvingaðir til að hafna vissum aðilum um að birta skrif sín?
- voru menn reknir úr störfum vegna skoðanna sinna á kvótakerfinu?
- var fyrirtækjum hótað ef þau losuðu sig ekki við menn sem voru andvígir kerfinu?
- fara aðilar innan útgerðarinnar enn eftir vissum aðilum út af skoðunum þeirra og reyna að eyðileggja afkomu þeirra með skipulögðum hætti?
Rannsaka þarf öll kvóta viðskipti og ásakanir á bankana sem fóru á eftir minni kvóta eigendum og þvinguðu þá til að selja kvótana sína.
- voru lán gjaldfeld til að knýja menn til a selja kvóta sína?
- var sami kvóti seldur beint til næstu útgerðar sem gerði tillögu um að umræddur kvóti yrði gerður upptækur?
Eins þarf að skoða aðkomu stjórnmálamanna að fjárdrætti útgerðarinnar?
- hvöttu ráðherrar til þess að útgerðaraðilar notuðu kvóta sem veð í bönkum?
- þrýstu ráðherrar á að bankastjórar létu peninga út á kvóta veð?
- hvaðan kom hugmyndin að nota kvóta veð sem gull í verðmyndu á kvóta?
- hvernig var áhrifum LÍÚ á aflaúthlutun háttað?
- hver eru tengsl LÍÚ og HAFRÓ?
- hafa útgerðir gerst sekar um að skuldsetja fyrirtæki með kvótakaupum gagngert til að draga sér fé í formi afskrifta?
- eru ráðherrar og þingmenn viðloðandi útgerða aðila og ganga erinda þeirra á Alþingi og í umfjöllun um fisveiðistjórnina.
- hverjir á þinginu þiggja greiðslur frá útgrða aðilum.
- eru hagfræðingar og aðrir mennta menn i fjárhagslegum tengslum við útgerðina?
- eru tengsl milli sérfræði álita og greiðlsna eða annara tengsla við útgerða aðila?
Þetta þarf að fá upp á yfirborðið til að þjóðin nái aftur stjórn á landinu. Það er ólíðandi að glæpamenn komist upp með að hrifsa hér völd í skjóli ofbeldis.
SANNLEIKURINN ER SVERÐ MITT OG HEIÐARLEIKINN MINN SKJÖLDUR
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:49 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.