18.6.2011 | 17:16
KÓTAPÚKINN ÁTTI SÉR SKRIÐKVIKINDI Í VINSTRI GRÆNUM sjá Fréttablaðið í dag Laugardag. .
Nú sjá menn hver það var sem flæktis fyrir gerð frumvarps um fiskveiðistjórnun allan tímann frá upphafi starfs núverandi ríkisstjórnar.
Í fréttablaðinu lýsir Skriðkvikindi Kvótapúkans því að best sé að festa hér í sessi óbreytt kvótakerfi að hætti Þorsteins Má Baldvinssonar.
Hann er ekki að leyna því hvernig hann hefur allan tímann, sem menn hafa verið að freista þess að gera lagfæringar á kerfinu, verið það eyðileggingar afl sem flækst hefur fyrir framþróun frumvarpsins sem nú er ónýtt og verður aldrei.
Jóhanna á við vanda að glíma með svona SVIKARA innan borðs en þarna sjáum við hvernig Kvótapúkinn vinnur. Grefur sig inn í fyrirtæki og stofnanir og eitrar innan frá.
Gefum þjóðinni kost á þjóðaratkvæðagreiðslu þar sem kosið verður á milli kvótakerfis leið Hreyfingarinnar og Sóknarmarksins. Þjóðin á rétt nú verður að nota hann.
SÓKNARMARKIÐ ER RÉTTLÁTT KERFI OG SLÆR KÖLD ÖLL RÖK LÍÚ KLÍKUNNAR
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Kjaramál, Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:49 | Facebook
Athugasemdir
Um hvern ertu að tala Ólafur? Það eru ekki allir sem lesa Fréttablaðið.....
Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 18.6.2011 kl. 20:20
Fréttablaðið er á netinu og þeir sem fylgst hafa með framgangi kvótfrumvarpsins sjá einn mann sem greinilega er á flökti í afstöðu sinni og eitt er víst hann setur stop á framþróun frumvarpsins þar sem hann kom því við.
Með framferði sínu er hann orðinn skömm íslensku skipstjórastéttarinnar.
Ólafur Örn Jónsson, 18.6.2011 kl. 22:12
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.