29.5.2011 | 07:54
ALLS EKKI MÁ SETJA 3 KVÓTAKERFI Í ÞJÓÐARATKVÆÐI ÞAÐ ER ÁVÍSUN Á ÓBREYTT ÁSTAND. KJÓSA KVÓTA vs SÓKNARMARK
Hvað á að svíkja þjóðina oft um að fá að ráða ráðum sínum í Kvótamálinu? KVÓTA vs SÓKNARMARK
Nú er enn komin upp þessi hugmynd að setja 3 KVÓTAKERI í þjóðaratkvæði og talað um að jafnvel setja núverandi kvótatkerfi sem valkost??? Áframhaldandi framsal, óða skuldsetning og fjárdráttur. Er fólk ekki í lagi???
Nei komið ykkur saman um eina kvóta aðferð og látið okkur kjósa um KVÓTAKERFI OG SÓKNARMARK annað kemur ekki til greina. þvílik ands*****s lítilsviring sem fólkinu og lýðræðinu er sýnd af því fólki sem situr á Alþingi. Þjóðin hafnar KVÓTAKERFINU frá upphafi til enda.
KVÓTAKERFI, sama í hvaða mynd, er alltaf ávísun á spillingu og hagsmunapot svo ekki sé talað um brottkast og óveiddan fisk sem aldrei fæst í þessu fífla kerfi.
SÓKNARMARK slær spillingar tólin úr höndum spillingar og sérhagsmuna PÚKUM. Hámarkar aflann og gerir öllum sem stunda vilja sjó jafn hátt undir höfði.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.