28.5.2011 | 09:40
ÓEYRÐALÖGREGLA Á SPÁNI STENDUR FYRIR ÓEYRÐUM. Spánverjar biðja um lýðræði eins og Íslendingar?
Það er hrikalegt að horfa á óeyrðar lögregluna berja á saklausum borgurum sem standa fyrir friðsömum mótmælum. Mér verður hugsað til þeirra félaga Davíðs og Björns Bjarnasonar þegar ég sé svona fantaskap. Björn mátti ekki á heilum sér taka að hafa ekki svona sveitir. Til hvers?
Spánverjarnir vilja íslenska Lýðræðið? Hvaða lýðræði? Þar sem frjáls skoðanna skipti eru þögguð niður með hótunum og persónu ofbeldi? Þar sem Alþingi kemur í veg fyrir að þjóðin nái fram vilja sínum í einu mikilvægast máli þjóðarinnar. Afnámi kvótans.
Þar sem Ritstjórar kalla til FANTA til að þagga niður greinar sem blöðum þeirra eru sendar.
Þetta er áríðandi ábending til okkar fólksins í þessu landi. Við megum ekki gefa tommu eftir. Við verðum að fá hér beint Lýðræði þar sem völdin eru í okkar höndum og við segjum Alþingi til en ekki öfugt.
Það eru furðuleg öfl á sveimi í stjórnmálum sem sýnir sig best í fram kominni þingsályktunartillögu um rannsókn á fólki varðandi "Búsáhaldabyltinguna". Það sýnir okkur að enn er fólk á sveimi sem ekki gerir sér grein fyrir hvar mörkin milli rétts og rangs liggja.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.