25.5.2011 | 09:18
UMRÆÐAN UM FISKVEIÐISTJÓRNINA Á ALGJÖRUM VILLIGÖTUM. ÞJÓÐIN VILL AFNEMA KVÓTAKERFIÐ EN STJÓRNMÁLAMENN SJÁ EKKERT NEMA KVÓTA KVÓTA KVÓTA!
Það var hverju orði sannara hjá Reyni Traustasyni í Silfrinu að maður veit ekki hvert þetta stefnir og Róbert Marshall sagði við Ragnheiði Elínu "þið lengið svo bara leigutímann þegar þið komist í stjórn".
Hér er verið að eyðileggja umræðuna og draga athyglina frá raunveruleikanum. ÞJÓÐIN VILL AFNEMA KVÓTAKERFIÐ.
Kvótakerfið kostaði okkur HRUNIÐ og er núna að kosta okkur uppbygginguna. Genginu er haldið þannig að útflutnnigs greinarnar stór græða en peningarnir gagnast ekki fólkinu og verðtryggingin rýkur upp. Það á að láta skuldastöðu útgerðarinnar ganga fyrir hag almennings í landinu.
Nú er komið eitt KVÓTAFRUMVARP enn sem á að vera 3ja leiðin! Þetta væri það besta fyrir útgerðina að kjósa um 3 frumvörp. Þá vitum við hvað yrði ofan á nema að sjálfsögðu farið væri að eins og gert er erlendis í forsetakosningum þar sem kosið er tvisvar í seinna skipti milli tveggja efstu. Það er eina leiðin til að þjóðin nái rétti sínum.
En réttlátast væri að sjálfsögðu að KVÓTA MENN með þrjú KVÓTAKERFI sameini þau ef þeir geta og leggi gegn SÓKNARMARKS leið Lýðveldisins Ísland þ.e. þjóðarinnar sem vill AFNEMA KVÓTAKERFIÐ.
Spillingin og eyðileggingin sem viðgengisthefur í kringum Kvótakerfið og fjárdráttinn úr bönkunum í skjóli kvótaveða er að eyðileggja þetta þjóðfélag innan frá og Lýðræðið er fótum troðið.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.