SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN ÆTLAR Í STRÍÐ VIÐ ÞJÓÐINA MEÐ KVÓTAPÚKANN ÞORSTEIN MÁ Á ÖXLINNI

Einokun og hagsmunagæsla er nú yfirlýst stefna Sjálfstæðisflokksins. Það er af að deila á Framsóknarflokkinn sem þekktur var fyrir svona spillingu nú er einokun og spilling stefna Bjarna Benediksonar og fylgisveina hans.

Sjálfstæðisflokkurinn ætlar ekki að taka þátt í að byggja hér Nýtt og Betra Ísland. Nei Það á að halda áfram með Davíð-ismann, spillinguna og hygla græðginni. Það er munur á eðlilegum viðskiptum og atvinnustarfsemi og græðgi sá munur speglast best í íslenska kvótakerfinu sem byggir á einokun.

Mjólkursamsalan var eitt versta dæmi um EINOKUN OG SPILLINGU og barðist Sjálfstæðisflokkurinn gegn þessari einokun og hafði að lokum sigur. Núna hyglar Sjálfstæðisflokkurinn samskonar EINOKUN í sjávarútvegi?

Ætla kjósendur virkilega að láta Kvótapúkann draga sig á Asnaeyrunum inní þetta kvóta stríð? Ætla kjósendur virkilega að styðja við áframhaldandi fjárdrátt í skjóli ólöglegar kvóta-veða sem búin eru að kosta þjóðina eitt hrun og mun kosta annað ef fram heldur sem horfir?

Ég er ekki skoðanabróðir Jóhönnu en ég styð  hana heilshugar í réttlætinu að brjóta niður kvótavitleysuna og vil hvetja alla sem styðja réttlæti að gera slíkt hið sama og hafna stefnu Sjálfstæðisflokksins í Kvótamálinu.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Aðalsteinn Agnarsson

Með kerlinguna við stýrið, er líklegt að Bjarna skoli fyrir borð.

Aðalsteinn Agnarsson, 19.5.2011 kl. 22:33

2 Smámynd: Ólafur Örn Jónsson

Sæll Aðalsteinn gott að heyra í þér félagi. Hvernig hefur þetta gengið?

Ég er alveg hissa hvernig "kerlingin í brúnni" hefur staðið sig og haldið stefnu annars vegar með þetta VG lið í vélinni sem ég treysti ekki fyrir fimmaura og svo með  Bjarna og LÍÚ strákana á dekkinu. 

Eins gott hún geti treyst eigin fólki í kokkaríinu og við stýrið.

Mér fannst hún standa sig nokkuð vel í þessari uppá komu í þinginu í gær. Ég vill bara að hún bæti í og keyri svoltið hressilega uppí til að bleyta svolítið í strákunum á dekkinnu til að slánka aðeins í þeim. 

Ólafur Örn Jónsson, 20.5.2011 kl. 10:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband