EINOKUN & KVÓTASTÝRING eru arðvænlegustu hagstjórnartæki Íslenskra hagfræðinga.

Hver hagfræðings druslan upp af annarri ryðst nú fram og hampar kvótakerfinu og framsalinu á aflaheimildum. Hér er búið að fremja þvílíkan glæp gegn þjóðfélaginu í skjóli þessa kerfis þar sem efnahagskerfið allt hrundi út af óða lántökum og hreinum fjárdrætti manna sem löbbuðu út úr greininni.

Mál og skoðana frelsi manna hefur verið fótum troðið til að koma í veg fyrir að spillingin og glæpsamlegt athæfi komist í hámæli. Þetta veit fólk samt voga menntaðir hagfræðingar sér að koma fram með rökleysu og hreinar lygar til að styðja við bakið á fjárdrætti og einokun af verstu tegund. 

Árið 1983 stefndi þessi þjóð í að verða ein ríkasta þjóð í heimi við hlið Noregs. En þá var sett hér á kvótakerfi til að þóknast fáum sem ekki vildu taka þátt í samkeppninni um fiskinn. Á svipuðum tíma stofnuðu Norðmenn sinn auðlinda sjóð og auðlindin þeirra olían safnaði í sarpinn.

Er það ekki markmið Hafræðinnar að peningakerfi þjóða styrkist og eflist innanfrá eða er íslenska hagfræðin gerð út á að 30 ára arði auðlindanna sé sólunda? Eins og gert hefur veirð í íslenskum sjávarútvegi.

Íslenska þjóðin lýsti viðurstyggð sinni á kvótakerfinu og skipstjórar reyndu að koma mönnum í skilning um óhagræðið af aðferðinni. En græðgin var byrjuð að grafa um sig og 1993 "tvíhöfðanefndin" kom með lausnina framsalið. 

Í stað auðsöfnunar Norsku þjóðarinnar hófu einstaka útgerða aðilar sjálftöku á fé út úr bönkunum og keyrði þetta um þverbak þegar ríkisstjórn Davíðs Oddsonar tók við og var þessi fjárdráttur kallaður "alger snilld" (sjá Hannes Hólmstein og Davíð á youtube "þarna var allt i einu fullt af pening"). 

Þessum "ease money" varð nú að koma í verð og loftbólan byrjaði að þenjast út. Rúllettu peningum kvótans varð að koma í vinnu og voru engar hömlur á hvað menn buðu í góð fyrirtæki sem þrátt fyrir að vera vel rekin höfðu enga markað möguleika á Íslandi til að stand undir þeiim væntingum sem komu fram í þeim verðum sem boðin voru af "sægreifunum". Og svo fór sem fór. Þjóðin blæðir fasteignir fólksins hrundu í verði ásamt launum og peningar lífeyrisstjóða rýrnuðu. Ráðsett fólk endar stór skuldugt. 

Þetta er íslenska hagfræðin Einoku, Samráð,  Fjárdráttur og Þjónaður. HÍ ætlar að taka sér hlutverk verndara svona hagfræði. HALELÚJA!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband