13.5.2011 | 01:44
FRAMSÓKN HEIMTAR RANNSÓKN? RANNSAKIÐ ÞÁ ÁSTÆÐU ÞESS AÐ HALLDÓR BAR FRAM KVÓTAFRUMVARPIÐ? STÓR GLÆPUR!
Önnur eins lágkúra og kemur fram á framkominni þingsályktunartillögu Framsóknar manna og málflutningi þeirra í kjölfarið hefur held ég ekki sést og heyrst á þinginu. Framsókn á í kjölfarinu mestu spillingu sem þekkist í stjórnmálum þegar þeir létu félaga Halldór draga sig í gegnum ríkisstjórnar árin.
Víst ætti að fara fram rannsókn. Það á að fara fram rannsókn á öllum embættisverkum Halldórs Ásgrímssonar og upplýsa þá spillingu sem fólst í að afnema gott stjórnkerfi sem sátt var um og virkaði vel við uppbyggingu stofnanna.
Framsókn finnur hjá sér hvöt að reyna að sverta fólk sem var í brennidepli í "byltingunni" sem varð til vegna spillingar í og með Halldórs Ásgrímssonar en rannsakar ekki glæpina í eigin garði.
Steingrímur Hermannsson viðurkenndi að honum hefði orðið á í Sjávarútvegstíð sinni að gefa leyfi fyrir stór feldum innflutningi á togurum eftir að bann hafði verið sett á fjölgun skipa. Það var ekki kerfinu að kenna að hér urðu of margir togarar og átti ekki að afnema kerfið til að hygla fáum frystihúsum fyrir Norðurlandi.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.