6.5.2011 | 13:20
SÓKNARMARK ER LEIÐIN ÚT ÚT ÖNGSTRÆTI SPILLINGAR OG SORA KVÓTAKERFISINS. Hvar er HEIÐARLEIKI og RÉTTLÆTI?
Þjóðin hefur marglýst skoðun sinni um afnám KVÓTAKERFISINS en talar enn fyrir daufum eyrum ALÞINGIS sem virðist ætla að sýna þegnunum þá lítilsvirðingu að hundsa rétt þjóðar að ná fram vilja sínum.
Spurning er hvort nokkurn tíman í hinum siðmenntaða heimi hafi þjóð verið sýnt slíkt ofbeldi af hálfu stjórnsýslunnar. Það er líkast því að Alþingi og öll umgjörð þess og æðstu stofnanir ríkisins séu ORMÉTNAR OG ROTNAR SPILLINGAR TUNNUR sem nærast á vessanum sem lekur af GRÆÐGINNI í kringum útgerðina.
Hvað er það sem fær Alþingi og Ríkisstjórnir til að hafna svo vilja þjóðar og fara gegn skyldu sinni við samfélagið? Hvernig fólk er það sem veit og þreifar á óréttlætinu með dóm Mannréttindadóms Sameinuðu-þjóðanna á bakinu en getur ekki risið upp til að reyna að fikra sig út úr feninu.
Mér verður hugsað hvort þetta fólk las ekki sömu Íslands sögu og við hin um Hansa kaupmenn og einokun og heimssögu sem sagði frá leiguliða fyrirkomulagi í evrópu á miðöldum. Til hvers að ganga í skóla ef ekki er hægt að læra af sögunni. Spillingin verður að víkja úr hugum þess fólks sem við gefum brautargengi til valda.
ALÞINGI ÍSLENDINGA ER LÆGSTA OG SPILLTASTA STJÓRNLAGA STOFNUM VESTRÆNS RÍKIS OG ÆTTU ÞINGMENN ALLIR SEM EINN AÐ KOMA FRAM FYRIR ALÞJÓÐ OG BIÐJAST FYRIRGEFNINGAR Á ÞEIRRI SPILLINGU OG ÓRÉTTLÆTI SEM ÞEIR HAFA STAÐIÐ FYRIR Á ÞINGINU UNDANFARIN 27 ÁR.
Skilja ekki orðin HEIÐARLEIKI og RÉTTLÆTI?
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.