RÍKISSTJÓRNIN INNKALLI ÖLL VEIÐILEYFI SKIPA LÍÚ MANNA ÞEGAR Í STAÐ

Með hótun LÍÚ manna yfirhöfði sér á Ríkistjónin þegar í stað að innkalla og fella úr gildi öll fiskveiðileyfi aðila samtakanna. Og verði þau ekki endurútgefin fyrr en LÍÚ lætur af hótunum sínum, biður þjóðina opinberlega afsökunar og dregur sig út úr viðræðum SA og ASÍ.

Ríkisstjórnin og Alþingi ber SIÐFERÐISLEG OG LÝÐRÆÐISLEG skylda til að gefa þjóðinni kost á að kjósa milli kvótaleiðar eða sóknarmarks við fiskveiðistjórnina. Þjóðin á ekki að þurfa að horfa uppá að hér komist óprúttnir menn upp með það að reyna að hrifsa hér öll völd til að ná eignarréttinum yfir auðlindinni  í sínar hendur.

LÝÐRÆÐIÐ er heilagt og þegar samtök eins og LÍÚ gera svona atlögu að Ríkisstjórninni með því að setja atvinnulíf þjóðar úr jafnvægi er þetta stór alverlegt mál og verður að finna og rífa upp með rótum og eyða því "skemmda epli" sem stendur að baki þessari fyrirlitlegu framkomu. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband