Færsluflokkur: Viðskipti og fjármál
24.3.2015 | 09:15
Fiskur á markað og vegagerð.
Þegar okkur Íslendingum ber gæfa til að afnema kvótann og taka upp SÓKNARMARK MEÐ ALLAN FISK Á MARKAÐ verður eina áhersla ríkisins að sjá um að lagðir verði góði og öruggir vegir svo fiskflutningar gangi hratt og vel fyrir sig milli byggðarlaga og landshluta þess vegna.
Allar háþróaðar viðskiptaþjóðir eiga það sameiginlegt að hafa byggt upp háþróað vegakerfi og láta ekki flutningabíla með rándýra viðkvæma verslunarvöru staulast um örmjóa holótta drulluvegi (dirt road).
Með allan fisk á markað og góðu vegakerfi verður tryggt að þeir sem geta gert mesta verðmætið úr aflanum hafa forgang að bestu gæðunum og dýrasta fiskinum.
Flytjum úr moldarkofunum og úr Skagafirðinum því með réttu hugarfari eigum við erindi með fiskafurðir okkar á dýrustu markaði heims. Látum ekki EINOKUN og molbúahátt í veiðum og vinnslu eyðileggja líf og kjör landsmanna lengur.
![]() |
Fiskur út um allt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
23.3.2015 | 17:20
Engan bílakjallara????? Er fólk ekki í lagi?
Hvernig dettur fólki sem sér um skipulagsmál borgarinnar í hug að gefa út byggingar leyfi í miðborginni án þess að fara framá bílgeymslu fyrir íbúa???
Mætti til að mynda kynna sér reglugerðir annarra stórborga sem vilja byggja upp góðan miðbæ eins og t.d. Seattle sem er með reglur um vist mörg bílastæði fyrir hvern fermetra sem byggður er. Hærri bygging fleiri bílastæði í kjallara sem getur orðið 6 hæðir niður ef því er að skipta.
![]() |
Reisa fjölbýlishús á Barónsstíg |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
22.3.2015 | 09:02
"Veist var að þeim úr launsátri"...heitir þegar leppar kvótagreifanna fá mótframboð
Hvert er pólitík fjórflokksins komin þegar mótframboð gegn ríkjandi formönnum flokkanna eru kölluð svik og prettir við Flokkinn hverju sinni. Hvað er orðið að lýðræðinu í landinu ef það á ekki að tíðkast innan stjórnmálaflokkanna.
Þetta fólk innan og utan Samfylkingarinnar sem skríður niður á það plan að veitast að hugrökku fólki sem situr ekki þegjandi undir aðgerðum sitjandi stjórnar flokkanna farandi gegn lýðræðinu eins og Árni Páll gerði með því að þrátt fyrir 32 viljandi þingmenn með stjórnarskránni skaut hana út af borðinu.
Eins er gaman að fylgjast með hverjir taka upp hanskann fyrir Formanninn og má segja að hann fái stuðning frá SAMHERJUM í pólitíkinni...eða á ég að segja spillingunni.
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 09:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.3.2015 | 12:23
Wow stór hagnaður af Bæjarfyrirtæki...væri gott fyrir Reykvíkinga að eiga BÚR núna?
Já þetta sýnir okkur að það þarf ekki alltaf að selja eignir sem bæjarbúar eða þjóðin á til að skapa góðan rekstur sem skilar hagnað.
Það var á sínum tíma fáránleg ráðstöfun þegar ein stærsta EIGN Reykjavíkurborgar BÚR var notuð til að hala buxurnar upp um "pabbastráka" sem komnir voru í fjárþrot með fjölskyldufyrirtækið.
Með því að sameina BUR og Ísabjörninn og selja síðan sem eina heild stór töpuðu borgarbúar á sölu BUR og ekki nóg með það heldur var farið þetta ört varðandi stór gróða fyrirtæki sem borgin átti.
Náttúrulega er hægt að reka með hagnaði fyrirtæki hvort sem þau eru í einkaeigu eða í eigu almennings bara spurning um aðferðarfræði. BUR leið fyrri það að vera undir "útgerðarráði" þar sem menn með enga kunnáttu í útgerð og fiskvinnslu komu saman og rústuðu starfi fyrirtækisins með afleitum ákvörðunum og afskipti að daglegu rekstri.
HB Grandi er glæsilegt fyrirtæki sem byggir á grunni BUR og má sannarlega kalla stolt Reykjavikur en með skynsamlegri yfirstjórn hefði sambærilegt fyrirtæki í dag verið í eigu Reykvíkinga ef rétt og heiðarlega hefði verið á málum haldið 1984.
Einkavæðing er góð en á ekki að byggja á að gefa (selja mjög ódýrt) eigur almennings.
![]() |
Hagnaður Faxaflóahafna 644 milljónir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
15.3.2015 | 15:24
Ljótur leikur banka og útgerðar til að ráðskast með lýðræðið og skýlausan vilja þjóðarinnar.
11.3.2015 | 12:54
Bylgjan í Bítið í morgun ..... kvótakerfið gersamlega brugðist og spilling ræður rikjum
11.3.2015 | 12:48
Útgerðin getur ekki "fjárfest" í atvinnugreininni nema hafa 23 ára Nýtingasamninga.
Pólitísk spilling er ástæða þess að hér er ennþá kvótakerfið þrátt fyrir að kvótinn hafi ekki skilað þjóðinni neinu nema tapi í 30 ár. 30 árum er tapað úr stjórn fiskveiða sem átti að færa okkur betri kjör og halda okkur í fremstu röð.
Hér sjáum við menn sem vísvitandi ætla að skrifa undir það að útgerðinni verður færð eignin á auðlindum sjávar.
Verði þjóðareign breytt í ríkiseign til að ríkið geti gert "nýtingasamninga" við útgerðamenn gerir það ríkissjóð ábyrgan fyrir öllum breytingum næstu 40 árin sem þjóðin kýs að gera á kvótakerfinu.
Þetta er mesta frekja og geggjun sem þjóðin hefur orðið fyrir og ekkert annað en stríðs yfirlýsing sem þjóðin, við öll verðum að takast á við. Hér fara fram siðlausir bæjarstjórar sem voga sér að taka afstöðu með siðlausu hyski sem hefur gersamlega misst sig í valdagræðgi, frekju og yfirgangi. Þetta veðum við að stoppa.
![]() |
Bæjarstjórar vilja samningaleið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |