Færsluflokkur: Bloggar

Gæluverkefni Hjálmars "Grimma" óvinar einkabílsins gengur fyrir öllu öðru og kostar milljónir

Það er bara geggjun að Borgin sé að eyðileggja góða tengigötu í borginni eina af fáu tengigötum sem bera sína umferð.

Að ætla að fara streða 170 milljónum í þetta gæluverefni á sama tíma og borgin er að berjast í miklum fjárhagsvanda má ekki eiga sér stað. Aftur kalla og stoppa á öll svona gæluverefni í borginni og borgarfulltrúar eiga að einbeita sér að þjónustu við alla borgarbúa líka bílstjóra.

Gatnagerð í borginni og bruðl með skattpeninga borgaranna síðastliðin 20 ár er til hreinnar skammar og vinstrimenn verða að fara að átta sig á að útsvar borgaranna er ekki eitthvað sem fæst gefið. Að baki liggur þrældómur borgaranna sem þeir eiga að þjóna ekki refsa.


mbl.is Fækka akreinum og leggja göngu- og hjólastíga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"að frek­ar en að fela ein­um manni vald ætti að fela allri þjóðinni það"

Kári þetta er "pólitísk fílasofia" Pirata! Þarf ekki að leita lengra.  


mbl.is Kári ósáttur við upptöku Pírata
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ömurlegt hvernig þessi Borgarstjórnarmeirihluti er að klúðra þjónustunni við Borgarbúa

Þetta er að reynast VERSTI Borgarmeirihluti sem hér hefur setið síðan Davíð Oddsson var við völd í borginni. Hér hrynur hvert þjónustu stigið á fætur öðru og ekkert gert í umferðar og bílastæðamálum.

Og síðan kemur í ljós að búið er að eyða öllum peningum Borgarbúa í tóma vitleysu sem gagnast nánast engum 7 mánuði á ári og fáum eftir það.

Stjórnmálamenn sem gefa kost á sér til starfa fyrir almenning verða að bera þá lagmarks virðingu fyrir þegnunum að fara vel með peninga fólksins. Af hverju er það svona erfitt???


mbl.is Borgin ein um að hirða ekki tré
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aldrei ALDREI meira setja X við B. Aldrei má ein ríkisstjórn binda hendur annarar

Enn og aftur kemur fram ætlun þessa Framsóknarh***i að setja lög sem binda hendur næstu ríkisstjórna eitt tvö eða 3 kjörtímabil fram í tíma. Þetta veðrum við þjóðin að stöðva þetta RÁN má ALDREI verða.

Kæru kjósendur við verðum öll að skilja að Framsókn (og Framsóknarplebbarnir í Sjálfstæðisflokki) má alls ekki komast í stjórn. Við megum ekki greiða þessu h***i atkvæði okkar ALLS EKKI.


mbl.is Á við þrefalt Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Svipan keyrð í bakið á lífeyrisþegum á meðan útgerðin siglir seglum þöndum á vitlausu gengi

Mikið leggst Íslendingum fyrir að láta eldriborgara draga sig út úr hruninu sem þeir komu hvergi nærri að valda. Ekki er nokkur vafi að helsta ástæða hrunsins var seðlaprentun út á kvótaveiðin sem eingin inneign var fyrir.

Nú hefur fjármálaráðherra beitt sér fyrir að borga niður ódýr erlend langtíma lán og kaupum á gjaldeyri í þeim eina tilgangi að halda gengi krónunnar niðri fyrir útgerðina. Lægra gengi lægri kaupmáttur lífeyrisgreiðsna. Skilur fólk ekki að með þessu er verið að binda lífeyrisþega í þrældóm og varanlega fátækt???

Að gera árás á gengi gjaldmiðilsins er jafn ólöglegt hvort sem það eru einstaklingar sem fyrir því standa eða fjármálaráðherra. Enginn má ráðast ólöglega á gengið til að hygla hagsmunum eins á kost að annars. Slíkt er ekkert annað en ljótur glæpur.

Síðan langar mig að spyrja af gefnu tilefni. Afhverju er verið að reyna að ljúga því trekk í trekk að ríkisstjornin hafi gert meira fyrir elli og örorkulífeyrisþega en nokkru sinni áður hafi verið gert??? ENGINN hefur þurft að skera sig eins mikið niður en þessir hópar sem eru síðan síðastir í röðinni þegar útgerðarhrunið er að baki?


mbl.is Engar hreinar skuldir innan tíu ára
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hrunið skapaði mesta varanlega ójöfnuð sem á Íslandi hefur nokkru sinni verið

Það furðulega er að það sat vinstristjórn eftir hrun sem tók þátt í að skapa hér mesta ójöfnuð sem Ísland hefur séð hin síðari árhundruð. Ríkisstjórn sem skellti skolleyrum við að afleggja kvótakerfið illræmda sem sannarlega var orsök hrunsins. Þrátt fyrir allar ábendingar um að hér væri hægt að stór auka veiðar á þorski, karfa ufsa og síld 2008 - 2009 - 2010 o s frv gekk ríkisstjórnin í lið með útgerðinni og viðhélt skortveiðistefnunni og lágu gengi.

Með stór auknum veiðum strax eftir hrun hefði verið hægt að hækka gengi krónunnar og rétta þar með af launin og lífeyrisgreiðslur. Þetta var ekki gert því að innan VG og SF voru svikarar útgerðarinnar sem stóðu gegn öllum breytingum á fiskveiðistjórninni og komu í veg fyrir leiðréttingu á genginu sem varð til þess að hér myndaðist stór djúp gjá meðal þjóðarinnar þar sem þeir sem urðu undir í hruninu sitja eftir á meðan stór hluti fólks hefur hagnast verulega á eftirköstum hrunsins og með ríkisstjórn LÍÚ við völd mun þessi hópur stækka og fátækt þeirra aukast á meðan kvótahirðin og hennar fólk mun fitna eins og kvótapúkinn á fjósbitanum í Valhöll.


mbl.is Margir eiga ekkert annað en skuldir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Facebook er nauðsynleg Íslendingum sem sitja uppi með sauðspillta stjórnmálamenn

Spillingin á Íslandi og hagsmuna gæslan gera FACEBOOK ómissandi fyrir okkur Íslendinga sem berjumst við spilltasta Alþingi Evrópu og þótt víðar væri leitað.

Eins má líta til samráðs fyrirtækja í verslun og þjónustu sem er orðinn viðtekin venja.

Ég skora á fólk að koma sér á Facebókina og vera þar virkt í skoðanaskiptum. Það mun á endanum færa okkur aftur Lýðræðið og betra líf.


mbl.is Danir snúa aftur í raunheima
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lagaðu helvíts gengið maður áður en þú ferð að pretika aukinn kaupmátt

Búinn að standa fyrir aðför að gengi krónunnar í þrjú ár í þeim eina tilgangi að viðhalda óða gróða útgerðar og rústa þannig kjörum og eignum lífeyris- og bótaþega.

Fólk sveltur og þiggur matargjafir í miðju góðærinu sem er hvergi til nema í kjaftinum á þessari vonlausu fanta ríkisstjórn LÍÚ sem verður að víkja sem fyrst. Helst í gær.

Dómur forsetnas er skýr svona á ekki að þekkjast hjá ríkustu þjóð veraldar sem gefur útgerðinni EINKARÉTT á auðlindum þjóðarinnar.


mbl.is Skotin fljúga á milli Gylfa og Bjarna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stöðvun hvalveiða er þvílíkt rugl

Hugsið ykkur bara hérna við Ísland eru 12000!!! hvalir? Hvað hefur dýragarðurinn okkar að gera við 12000 hvali?

Hvalir þurfa að éta og við þurfum að éta. Hver ætlar að segja að við veðrum að ala hérna fleiri þúsund hvali á okkar fiskstofnum. Þessari endaleysu í kringum hvalveiðar verður að linna og við að hefja stórfelldar hvalveiðar þótt ekki sé til annars en að seðja hungur heimsins. Ég meina fólk sveltur.

Eins vitlaust of kvótakerfið er er þetta hvalveiðibann bara ekkert annað en bull.


mbl.is Um tólf þúsund hvalir á loðnuslóð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Áráttan að eyðileggja fyrir komandi ríkisstjórnum einkennir störf ríkisstjónar LÍÚ

Án þessa að vera sérstakur ESB sinni vill ég benda á enn eitt atriðið sem kemur hvað eftir annað fram hjá þessari aumu ríkisstjórn LÍÚ. Að freista þess að koma í gegnum þingið málum þannig byggðum að þau koma í veg fyrir og hefta störf og ákvarðanatökur komandi ríkisstjórna / kynslóða.

Þetta fólk er náttúrulega fötluð að láta stjórnast af annarri eins eigingirni og frekju hagsmuna aðilanna sem senda þeim "brúnu" umslögin.


mbl.is Afstaða ESB sætir furðu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband