Færsluflokkur: Bloggar

Vinnuframlag, dugnaður og vandvirkni í stað græðgi, yfirgangs og frekju

Baráttan fyrir afnámi kvótakerfisins sem er að eyðileggja þjóðfélagið gengur ekki út á hatur og illgirni heldur afnám HAFTA og EINOKUNAR sem ekki á að þekkjast í nútíma þjóðfélagi.

Að sjálfsögðu á að afnema fiskveiðistjórnkerfi sem aldrei hefði átt að innleiða og búið er að þróa í þá átt að langstærstur hluti arðsins nýtist þjóðinni ekki. Búið er að útfæra umgjörðina í kringum kerfið á þá leið að sem minnst af arðinum rennur um æðar samfélagsins heldur rennur beint inní bankanna sem fitna og í hendur þeirra útgerða sem skuldsett hafa kvótaeign þjóðarinnar í botn.

Það vita allir sem vilja vita að kvótastýring á fiskveiðar getur aldrei skilað hámarks afrakstri hvers stofns við botntroll veiðar eins og við höfum kynnst illþyrmilega síðastliðin 5 ár þegar við höfðum svo sannarlega þörf fyrir þann auka afla sem ekki var tekinn í þorski, karfa, ufsa og síld. Milljarðar forgörðum í þeim eina tilgangi að halda uppi verði á kvóta og passa að skapa ekki offramboð á eign þjóðarinnar.

Kominn er tími til að þjóðin átti sig á því að afnám kvótakerfisins er stærsta hagsmunamál okkar og við verðum að brjóta niður múra EINOKUNAR um verðmæti hafsins til að geta brauðfætt þjóðfélagið og haldið gangandi velferðarkerfi og kaupmætti launa eins og var hér fyrir kvótakerfið.

Ekkert er því til fyrirstöðu að þjóðin knýi fram breytingar á fiskveiðistjórninni og afnemi það óréttlæti sem ríkir í greininni. Með því að taka upp sóknarmark að hætti Matthíasar Bjarnasonar sem var gott og skilvirkt kerfi og setja allan fisk á markað er búið að breyta þjóðfélags gerðinni sem kvótakerfið hefur eyðilagt. Hér mun aftur rísa þjófélag þar sem VINNUFRAMLAG, DUGNAÐUR OG VANDVIRKNI ERU Í FYRIRRÚMI VIÐ SKIPTINGU ARÐSINS AF TEKJUM ÞJÓÐARINNAR EN GRÆÐGIN, YFIRGANGURINN OG FREKJAN VERÐUR AÐ VÍKJA.


Ísland vs Noregur

Takið eftir fyrir kvótakerfið var hagvöxtur á Íslandi slíkur að með áfram haldandi Sóknarmarki og allan fisk á markað eins og til stóð væru Íslendingar ein ríkasta þjóð veraldar við hlið NOREG!

En þá kom HALLDÓR ÁSGRÍMSSON.

Eyðilegging kvótakerfisins á íslensku efnahagslífi á sér enga hliðstæðu í hinum Vestræna heimi og eyðileggingin heldur áfarm þar til fólkið í landinu áttar sig loksins á því að þrátt fyrir að auðævi okkar séu mikil höfum við ekki efni á að halda hirð sem veltir sér uppúr arðinum af auðlindunum á meðan velferðarkerfið sem við byggðum og rákum fyrir kvótakerfið hrynur vegna fjárskorts.

Frelsi til veiða og allan fisk á markað þarf að taka við af Framsóknarstefnunni EINOKUN OG HÖFT. 


mbl.is Olíusjóðurinn stækkar enn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Margföldun peninganna. Flæði fjár er nauðsyn til hagvaxtar.

"Saga peninganna" kenndi okkur hvernig bankinn getur nýtt sér innlögn í hreinu gulli og búið til þrefalt  (nífalt) margfeldi gullsins og nýtt það til útlána.

Þetta var undirstaða stóra kvótafroðu þjófnaðarins. Eign þjóðarinnar var notuð sem eigin fé útgerðanna (hrein eign GULL) útgerðanna. Bankinn tók veð í útgerðinni kvótanum og lánaði útgerðinni einu sinni tvisvar eða þrisvar eða einhverjum öðrum því bankinn hafði nú þrefalt "verðmæti" kvótans reiknað út frá verði á kvótanum í viðskiptum útgerðarmanna á meðal. 

En þetta er annað mál. Kvótarúllettan hefur skapað hrikalega aðstöðu sem þjóðin er að vefjast inní horfandi á lækkun launa og hrun velferðarkerfisins. Sérfræðingar þora ekki að segja hvað þarf að gera og pólitíkusar er múlbundnir á klafa gömlu hagsmunagæslu flokkanna. 

Þjóðin nær sér ekki á strik af því að arðurinn af fiskveiðunum er múraður inní í útgerðunum og bönkunum  með EINOKUN og nær ekki að flæða í gegnum æðar þjóðfélagsins og mynda þar með MARGFELDIÐ í virðisaukanum sem verður þegar segjum 45 milljarðar sem núna eru í höndum kvótahirðarinnar + 15 milljarðar sem ekki eru veiddir núna en eru til staðar (=60 milljarðar) færu með eðlilegum hætti í gegnum hendur fjöldans og fyrirtækja landsins. 

Ég er ekki lærður hagfræðingur en veit að þarna úti eru heiðarlegt fólk sem gæti og hefur aðferðir við að reikna út hvað svona flæði fjár um þjóðfélagið myndi gefa í margfeldi eftir að hafa farið í gegnum verslun og viðskipti og endað inní ríkissjóði sem gæti þá staðið við skuldbindingar sínar.

EIGUM VIÐ EKKI BARA AÐ HÆTTA MEÐ ÞETTA ANDSKOTANS KVÓTAKERFI OG FARA AFTUR AÐ BYGGJA UPP OKKAR EIGIN ÞJÓÐFÉLAG ÁN KVÓTAHIRÐAR OG HIRÐFÍFLA ÞEIRRA?


Bankarnir styðja við EINOKUN & HÖFT en hundsa frelsið og einkaframtakið

Frábær ábending hjá Birni og segir mikið um hvernig komið er fyrir okkur sem þjóð með handónýtt þjóðfélag og banka sem nærast á EINOKUN og HÖFTUM.

Ekkert má lengur vera frjálst og opið einstaklingunum allt verður að vera háð EINOKUN OG KVÓTUM til að banka menn skilji verðmæti. Menn sem berjast af eigin rammleik eru taldir asnar af íslensku bankaelítunni sem veit hverjum þeir vilja þjóna. 

Var ekki einhvern tíma til flokkur á Íslandi sem stóð við bakið á einstaklingunum og barðist gegn EINOKUN OG HÖFTUM? Hver fór hann?

Datt hann kannski ofaní  haughús Framsóknar á eftir Formanni sínum?


mbl.is „Furðulegur söfnuður í bankakerfinu“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Velta sér í milljörðum á meðan Heilbrigðiskerfið hrynur .... allt í boði kjósenda.

Þjóðfélagið er handónýtt og ekki við neinu öðru að búast þegar veiðiheimildirnar eru EINOKAÐAR af fámennisklíku sem tekur hátt kvótaverð fram yfir mikinn afla. Með setu LÍÚ í stjórn Hafró hefur verið komið í veg fyrir að þjóðin nyti þess góðæris sem verið hefur í hafinu síðustu 5 árin og höfum við tapað milljörðum á því.
 
Þar fyrir utan er að koma í ljós að þetta afturhald í afla hefur stór skaðað markaðshlutdeild okkar sérstaklega á þorsk og síldarmörkuðum. þetta er að koma illa í bakið á okkur núna þegar Norðmenn og Rússar eru að margfalda veiði sína á þorski í Barents hafi.
 
Jafnvel þótt okkar litla þjóðfélag sé ríkt af auðlindum miðað við höfðatölu þá höfum ekki efni á að reka hér HIRÐ sem veltir sér upp úr milljörðum sem í skjóli EINOKUNAR rennur beint inní bankanna án þess að koma við í höndum almennings og nýtast í hringrás atvinnulífsins. Þessu verðum við að átta okkur á og skilja að við þessar aðstæður getum við ekki rekið heilbrigðiskerfið sem við byggðum og rákum fyrir kvótakerfið!
 
Með Sóknarmarki og allan fisk á markað munum við stórauka veiðar á þorski, karfa, ufsa og síld og í gegnum markaðina koma fleiri að vinnslunni og peninga flæði um landið allt myndi stóraukast. Þannig fengjum við hagvöxt í þjóðfélaginu sem myndi skila sér inní ríkissjóð. Almenningur verður að fara að þekkja varðhunda útgerðarinnar sem verja kvótastýringu á fiskveiðum með rakalausu kjaftæði.
Afnám kvótans er ekki bara stærsta hagsmuna mál þjóðarinnar heldur orðið lífsspursmál.

Hvað ræður takmörkun á aflaheimildum á UFSA?? Verð að kvóta og ekkert annað.

Fáránleikinn  í kringum úthlutun aflahlutdeildar er ein endaleysa frá upphafi til enda. Eins og allt þjóðfélagið er Hafró orðið handónýtt batterí í heljargreipum LÍÚ.
mbl.is Nýjar aflareglur staðfestar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

SJÁVARKLASINN og Faxaflóahafnir eru nýtt ÁRÓÐURSTRÍÐI LÍÚ.

Fyrirtæki byggðarlaga á Faxaflóasvæðinu og kannski víðar eru nú innlimuð í SJÁVARKLASANN áróðurs og ofbeldisstofnun LÍÚ undir forsæti yfir Hag-Álfs útgerðinnar.

Eru byggðarlögin og fólkið sem í þeim búa tilbúin að samþykja það að fyrirtæki í þeirra eigu séu notuð í áróðurstríði útgerðarinnar gegn þjóðinni? 

SJÁVARKLASINN sem stofnsettur er að undirlagi LÍÚ þar sem öll fyrirtæki sem vilja hafa viðskipti við núverandi kvótahafa verða að vera "meðlimir" og tilbúnir að setja nöfn sín við sóðalegar lyga áróðursauglýsingar LÍÚ sem dynja á fólki dagana langa. Enginn þarf að borga neitt bara leggja nafn sitt við auglýsingarnar. EINHVER borgar. 

Ljótari hliðin á þessari SJÁVARKLASA vitleysu er ættað frá kvótapúkanum sjálfum prívat og persónulega er að enginn sem leyfir sér að hafa skoðanir og láta þær í ljósi getur verið starfsmaður fyrirtækja SJÁVARKLASANS.

Faxaflóahafnir og þar með eigendur þeirra eru ornir partur að þessu afkomu ofbeldi gegn fólki sem vissir aðilar innan útgerðinnar hafa stundað ljóst og leynt í 20 ár. Er þetta tækt?  


mbl.is Skapar um 20 þúsund störf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

SA (LÍÚ) ættu að vera ánægð með að búið er að svelta ferðalaga ósiðið af almenningi

Þetta ætti að gleðja SA LoL sem segja að almenningur hafi ekkert við há laun að gera þar sem fólk kunni ekkert með peninga að fara W00t og það auki bara þenslu ef skuldir fólk séu felldar niður eða laun hækkuð. 

Aftur á móti eigi að láta kvótahirðina Cool sjá um fjármunina þar komist þeir (fjármunirnir) í vinnu sérstaklega þegar skuldirnar séu afskrifaðir. Skuldir ríkissjóðs (afskriftirnar) draga nefnilega úr þensluWoundering


mbl.is Fækkun í útgáfu vegabréfa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

20 falda veiðireynslu þeirra sem fóru vel með aflan og unnu allt til manneldis.

Alveg er fáránlegt að fylgjast með fréttum af því að skip hafi ruðst inní 12000 tonna Makrílkvóta og sópað í sig 1800 tonnum og landað aflanum í gúanó. Hverjir gera svona. Ég bara spyr???

Alls ekki má koma til að svona hegðun komi til með að skapa veiðireynslu. 

Það sem er sérstakt við umsögn Kidda er að fiskur er á stóru svæði og margir halda að hér sé um annan stofn að ræða en þann sem kemur frá Írlandi. Þetta verður að rannsaka. Enginn má komast upp með að þagga niður umræðuna um að hér sé íslenskur stofn og þjóðin á kröfu á að þetta sé rannsakað því fyrir liggur að alltaf öðru hvoru hefur orðið vart við lítið magn af makríl S-Vestur af landinu. 


mbl.is Mjög góð makrílveiði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fá gúanó prammarnir meiri kvótaúthlutun eða tífaldast aflahlutdeild "gæða" bátanna?

Hugsa sér að verkefni EINOKUNAR útgerðarinnar í sjávarútvegi er orðin svo mikil að ekki er tími til að vinna aflann og gæðafisk dælt í gúanó til að komast í næsta verkefni.

Vitandi vits að þeir ráða öllu í úthlutun aflaheimilda eftir reynslu ætlast þeir til að fá meiri kvóta en skipin (útgerðirnar) sem datt ekki annað í hug en að vinna aflann til manneldis og gera þannig miklu meiri verðmæti úr fiskinum.

Er græðgin og vitleysisgangurinn ekki orðinn nógu mikill í kringum kvótann og  fólk sem tekur stundarhagsmuni sína fram yfir hag þjóðarinnar sem enn rambar á barmi gjaldþrots eftir KVÓTAFROÐUHRUNIÐ. 

Sameinumst um að afnema kvótann og taka upp siðaðra manna fiskveiðistjórnun sem skilar arðinum af veiðunum strax beint til þjóðarinnar. 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband