Það verður að brjótast undan ofurveldi útgerðar. Afnema kvótann og hækka gengið.

Það er ekki líðandi að þjóðin láti falsa fyrir sér úr púlti Alþingis. 50% gengisfellingin í hruninu er varin af þeim sem skríða fyrir kvótahirðina til að milljarða gróði af peningum þjóðarinnar renni óskiptir beint inní bankana og beint í vasa kvótahirðarinnar.

Þjóðin verður að láta hætta að ljúga að sér að hér sé einhverju hægt að breyta án þess að afnema kvótann með öllu.

Í eðlilegu umhverfi með Sóknarmark og allan fisk á Markað myndi afli stór aukast og skiptast á miklu fleiri hendur og dreifast hringinn í kringum landið. Sá gífurlegi virðisauki sem til yrði í þessu umhverfi sjávarútvegs myndi verða lyftistöng fyrir allt atvinnulífið og marka þannig veginn fyrir meiri auð til þjóðfélagsins en við höfum nokkru sinni séð.

Vilji fólk velferð á Íslandi aftur eins og við sáum fyrir kvótakerfið þá afnemum við kvótann með ÖLLU.

Ekki láta rotið lið fjórflokksins koma með neinn ómöguleika á að breyta fiskveiðistjórninni því það er ekki þörf heldur nauðsynlegt að skipta um kerfi.


mbl.is Krónan ekki sjálfstætt vandamál
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband